www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
DRAMATÍSK SAMBANDSSLIT Á ANNA.IS
Miðvikudagur, 05. júlí 2006

Anna og Lifur hafa slitið fjarbúðinni!

Fyndið annars með þetta orð "drama". Karlmenn nota það yfir allt sem konur segja sem þeim finnst leiðinlegt að heyra. Konur nota það yfir drama.

Auðvitað voru þetta ekki dramatísk sambandsslit, við Lifur eru agaðir einstaklingar og fullorðið fólk, eins og margoft hefur komið í ljós á öldu þessara ljósvaka. Við elskum hvort annað, og reyndum.. en það gekk ekki upp. Lífið var einfaldlega of erfitt og þjóðfélagið í heild vann að því hörðum höndum að stía okkur í sundur en ég mun aldrei gleyma því síðasta sem Lifur sagði mér:

"ég mun drippla honum Margeiri eftir hellulagðri innkeyrslunni á hverjum morgni í þinni minningu!"

Mun hvísla þetta í hvert sinn sem ég er döpur.

Fyrstu viðbrögð Hörpu:

Harpa says: eru þið skilin í alvörunni?
Anna says: já
Harpa says: æji af hverju?
Harpa says: á ekkert að lappa uppá þetta?
Anna says: lol
Harpa says: þið eruð svo óþroskaðir einstaklingar
Harpa says: venjulegt fólk vinnur í sínum málum
Harpa says: fólk er alveg hætt að tala saman í dag, það er ekki von að þetta endist ekki

Harpa hefur fordóma.

Nánari fréttir væntanlegar.


| anna | 16:59 |
comments

maður getur ekki annað en haft áhyggjur af Margeiri í þessu máli (drama), en það er kannski bara af því að maður þekkir hann ekki

(tek annars undir með Hörpu, hún veit hvað hún syngur)

Nr. 1 | posted by: baun | 5.07.2006 | 17:14:43 | [+] |

Maður verður fyrir hverju áfallinu á fætur öðru við að lesa bloggið þitt. Fyrst uppgötva ég að þú ert ekki engill og þarft að fá þér prosthetic vængi eins og hver annar, og svo núna Lifur! Þið voruð svo glæsilegt par melodramatic

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 5.07.2006 | 17:33:42 | [+] |

Ég finn aðallega til með Hörpu....
.....ég er sammála henni og mér finnst þið ættuð nú allavega að prófa fjarbúðaráðgjöf áður en þið gefist upp eins og einhverjir punks.

hmmm

Nr. 3 | posted by: Elín | 5.07.2006 | 17:45:31 | [+] |

Ég held þú sért að gera mistök, Lifur er gull af manni... það sér hver bloggari

Mér finnst að þið ættuð að reyna online fjarbúðarráðgjöf minnstakosti áður en þið gefist alveg upp.

Nr. 4 | posted by: Andri (The IT Consultant) | 5.07.2006 | 17:47:54 | [+] |

Vá, ég sé að Elín skrifaði þetta flotta orð á nánast sama tíma og ég... "respect!"

ps.

Mynduð þið leyfa mér að nota "fjarbúðarráðgjöf" í scrabble?

Nr. 5 | posted by: Andri (The IT Consultant) | 5.07.2006 | 17:50:23 | [+] |

Þú ert velkominn í Scrabble með mér Andri. Scrabble er EKKERT gaman nema maður reyni að púsla saman sem ólíklegustum og helst sem dónalegustum orðum. Að vera drukkinn gerir þetta bara betra.

Nr. 6 | posted by: Kalli | 5.07.2006 | 17:52:23 | [+] |

Andri Skál cool

(sé reyndar núna að ég gleymdi einu erri... en hvað er eitt err á milli vina?)

...og já þetta væri sko gilt í scrabble

Nr. 7 | posted by: Elín | 5.07.2006 | 18:05:11 | [+] |

Hættiði nú þessu rugli. Þetta er karma, allt saman. Við vorum einfaldlega ekki ætluð hvoru öðru.

Nr. 8 | posted by: anna | 5.07.2006 | 18:42:20 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web