www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Detuning
Miðvikudagur, 26. júlí 2006

Ken er farinn frá mér.

Kom soldið upp og hann þurfti að fara út, kemur eftir viku. Í gærkvöldi sat hann í sófanum með mér og hélt utanum mig á meðan hann talaði við mig um hitt og þetta, með höndina utanum mittið á mér. Ég lá með höfuðið á öxlinni á honum og drakk í mig daufa svitalykt eftir daginn. Intoxicating.

Ég fékk á tilfinninguna í örfáar mínútur að við myndum aldrei gera þetta aftur en ýtti þessari tilfinningu til hliðar. Langaði frekar að njóta þess að hafa hann hjá mér - á meðan ég hef hann.

Eru það mistökin?

Ég spurði hvort honum liði vel. Hann brosti og sagði já, svo þagði hann í smá stund og sagði að hann hefði aldrei skilið af hverju fólk sæktist eftir að vera í samböndum. Allir sem hann þekkir, eintóm vandræði. Svo leit hann á mig og spurði af hverju það væri aldrei neitt vandamál með mér.

-Af því þú gerir allt rétt.

Ég lá á öxlinni hans og hugsaði um hvort ég væri að gera allt rétt eins og hann, því ég veit það ekki. Ég er ekki að gera neitt sem mig langar ekki að gera, ekki að segja neitt sem mig langar ekki að segja. Hvernig getur það verið rétt?

-Þú gerir líka allt rétt.

Stundum finn ég hvernig heilinn á mér framleiðir heróín þegar hann segir svona.

Ég finn samt oft hvernig honum líður. Þegar hann er fúll af því það gekk ekki vel í vinnunni, þá tala ég við hann. Leyfi honum að blow off steam. Hann veit alveg að það er í lagi og hann gerir það og líður betur á eftir. Stundum gerir hann það á meðan við erum að elda. Þá rétti ég honum stundum hníf og eitthvað til að skera á meðan hann er að tala. Hann fattar oft ekki fyrr en eftirá hvað það er gott að fá útrás á gúrku og salatið er með óvenju fínt sökuðum gúrkubitum þegar hann er mjög frústreraður útí einhverja fjárfesta eða clueless morons sem gera ekki eins og hann segir þeim að gera. Stundum tekur hann utanum mig þegar hann er búinn að tala, eins og til að þakka mér fyrir. Hvílir höfuðið á öxlinni á mér, bara í smá stund. Ég skil hvað hann er að segja.

Þegar ég finn að hann er þreyttur nudda ég stundum á honum axlirnar, eða strýk honum um hárið. Alveg eins og þegar hann finnur þegar ég er þreytt og uppgefin, þá tekur hann utanum mig, eins og til að hughreysta mig, eða dregur mig til sín í sófanum og strýkur mér um hárið.

Hann vill vera hjá mér og skipuleggur tíma sinn þannig að við getum verið sem mest saman. Hann vill hafa mig með í því sem hann er að gera. Það lætur mér líða eins og ég skipti hann raunverulegu máli. Hann segir mjög sjaldan hluti við mig eins og að honum finnist ég falleg eða skemmtileg. Hann lætur mig finna það með þessum hætti. Þegar ég er með honum líður mér eins og ég sé fallegasta konan á jörðinni. Hann segir það samt líka og hann gerir það alltaf á hárréttu augnarbliki.

Samt kom þessi tilfinning, að þetta væri búið, aftur.. þegar ég kvaddi hann útá flugvelli.

Eins og ég myndi aldrei sjá hann aftur.

--

Greind stúlka sem er öllum kostum búin til að ná árangri, en tekur oftast rangar ákvarðanir.


| anna | 15:22 |
comments

Getur verið að hann hafi fyllst skyndiafbrýðissemi útí Fordinn ? melodramatic Nei... það getur ekki verið. Hann hlýtur að koma aftur, af því þú gerir allt rétt í þessu sambandi... og hann líka colgate

Nr. 1 | posted by: Hugskot | 26.07.2006 | 15:42:08 | [+] |

Ken kemur aftur cool

þið eruð sköpuð fyrir hvort annað..

Nr. 2 | posted by: baun | 26.07.2006 | 16:38:47 | [+] |

sko.. ef hann er perfect.. eins og þú lýsir honum.. þá kemur hann þokkalega aftur!! því það er augljóst að hann elskar þig angel

Nr. 3 | posted by: Anna Andrea | 26.07.2006 | 19:25:15 | [+] |

Þeir vilja alltaf koma aftur hvort sem þér líkar það betur eða ver!

Nr. 4 | posted by: eddið | 26.07.2006 | 20:52:05 | [+] |

hehehe já... það virðist oft vera þannig.

Nr. 5 | posted by: anna | 27.07.2006 | 9:57:19 | [+] |
Greind stúlka sem er öllum kostum búin til að ná árangri, en tekur oftast rangar ákvarðanir.

Já, maður veltir þessu stundum fyrir sér. Why?

Nr. 6 | posted by: igor | 27.07.2006 | 19:04:14 | [+] |

Ég veit það ekki. Kannski gleymdist að úthluta mér Fairy godmother við fæðingu.

smile

Nr. 7 | posted by: anna | 28.07.2006 | 11:04:55 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web