www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ber að ofan
Mánudagur, 17. júlí 2006

kaupfelagsbuxurnar.jpgÞað er búið að vera æðislega gaman hjá okkur hérna í sveitinni. Ekki skemmdi fyrir þegar aðþrengdar (fyrrverandi) eiginkonur stormuðu á svæðið og gerðu allt vitlaust í singstar og á Stuðmannaballinu. Við vorum mætt snemma og fengum besta borðið á svæðinu - við dansgólfið. Kom reyndar upp smá ves á ballinu. Ken skrapp á barinn og ég sat með stelpunum við borðið þegar ungur maður með hatt kom uppað mér. Hann byrjaði á að horfa á mig og svo strauk hann hárið frá andlitinu, tók gleraugun og færði þau upp - eins og sólgleraugu.

Málið með þessi gleraugu er að ég fæ ekkert action þegar ég er með þau, þessvegna fer ég með þau út. Grínlaust. Mr. President er einn af fáum karlmönnum - eh.. fáum myndarlegum karlmönnum sem sýnir mér áhuga þegar ég er með gleraugu. Yfirleitt er ég látin mest megnis í friði þegar ég er með þau. Þessi strákur sá hinsvegar í gegnum þau, fyrst setti hann þau uppá haus á mér, svo tók hann þau hreinlega af mér og gaf í skyn að hann langaði að dansa við mig.

Ég fór að dansa við hann. Ég var ekki búin að dansa við hann í tvær mínútur þegar maðurinn hreinlega tætti sig úr að ofan. Stelpurnar ærðust úr hlátri svo ég hef vitni. Ég sagði ekki orð við manninn, hann bara tætti sig úr. Þegar Ken kom aftur varð hann frekar fúll, dustaði bera manninum í burtu og dró mig afsíðis og spurði hvað þetta ætti allt saman að þýða. Ég útskýrði fyrir honum að ég var bara að dansa. SEM ER SATT! Ég er alltaf að lenda í svona rugli. Blásaklaus en allt lítur voða vafasamt út. Stelpurnar voru ennþá í kasti. Ein þeirra spurði mig hvernig ég færi eiginlega að þessu.

Ég er náttúrlega smá göldrótt og hann var soldið flottur svona ber að ofan. tíhíhí.

Ken rauk út af ballinu og ég ákvað að leyfa honum að cool off. Enda var ég þarna sem aðþrengd (fyrrverandi) eiginkona, ekki sem aðþrengd refsigyðja. Þegar ég kom heim var Ken inní eldhúsi í fýlu og þegar stelpurnar voru búnar að útskýra fyrir honum að ég gerði ekkert - ÞVÍ ÉG GERÐI EKKERT - þá hætti hann í fýlu.

Hann refsaði mér samt soldið. tíhíhí

Vá hvað þetta var skemmtileg helgi. Sveitaball og alles í frábærum félagsskap! Vissi alltaf að ég átti að geyma þetta til fullorðinsáranna. Harpa sagði mér að fólk myndi mæta á svæðið með áfengi í kaupfélagspoka - yeah RIGHT - hugsaði ég. Trúði henni ekki - fyrr en ég stóð í miðasölubiðröðinni með fólki sem var allt með kaupfélagspoka fullan af áfengi. Wtf?

Ég var að sjálfsögðu í gallabuxunum sem ég keypti í kaupfélaginu fyrr um daginn. Ógeðslega töff kaupfélagsbuxur - eins og sjást á myndinni.

Harpa hafði líka áhyggjur af því að ég myndi drepast úr leiðindum því ég var sú eina sem var ekki að drekka en ég held að hún muni ekki hafa áhyggjur af því í framtíðinni. Ég var búin að reyna að segja henni að ég þyrfti ekki áfengi til að skemmta mér. Ég er pínu gamaldags og hefði fengið kikk útúr því að sjá Röggu á sviðinu, er ekki alveg að fíla Birgittu en Glanni Glæpur var svo magnaður að ég var alveg að kaupa hann. Þvílíkur stuðbolti þessi maður, það hálfa væri nóg. Heyrðist svo lítið í Birgittu, held að Ragga sé með sterkari rödd en hún. Annars veit ég ekkert um það og var svosem ekkert að velta þessu mikið fyrir mér, þetta var of gaman til að láta svona smáatriði fara í taugarnar á sér.

Ég var auðvitað bílstjórin á svæðinu - enda mitt fyrsta verk þegar ég kom í sveitina að senda Ken á ruslahaugana til að henda drasli úr bílnum. Ég er búin að kaupa svo mikið af heimilistækjum og það var svo mikið drasl í skottinu að við urðum að setja umbúðirnar af gasgrillinu í aftursætið! Þetta er allt komið á haugana og búið að bóna bílinn minn!

Í kvöld héldum við Harpa og Ken áfram í singstar, Ken er alveg furðu góður í þessu og ég fékk alveg fiðrildi í magann þegar hann tók "ain't no sunshine" áðan. tíhíhí

singstar_again.jpg

KARLMENN ERU DÁSAMLEGIR ÞEGAR KARLMENN ERU KEN!


| anna | 22:53 |
comments

Cool! Þráðlausir Singstar hljóðnemar! wave

Nr. 1 | posted by: Kalli | 17.07.2006 | 23:33:02 | [+] |

Heldurðu að ég bjóði uppá einhverjar ruslgræjur hérna í sveitinni Kalli, HA? toungue

Nr. 2 | posted by: Harpa | 17.07.2006 | 23:48:00 | [+] |

Nei, greinilega ekki. Þráðlaust Singstar og grænar dráttarvélar. Ken. Dráttarvél... verð að sleppa lélegum brandara... embarassed

Nr. 3 | posted by: Kalli | 18.07.2006 | 0:03:46 | [+] |

Þetta slagorð er magnað. Ég er búinn að prófa það við ýmislegt (og nota að sjálfsögðu spari-flauelisröddina mína.)


Bændur og búalið athugið. Rúlluplast er æðislegt, þegar rúlluplast er Triowrap.
Kaupfjelag Borgfirðinga.


Nr. 4 | posted by: Ljenzherrann | 18.07.2006 | 0:40:53 | [+] |

Kalli: lol

Ljénzherra: Finnst þér þetta ekki töff kaupfélagsbuxur?

Nr. 5 | posted by: anna | 18.07.2006 | 0:49:55 | [+] |

Ljensherra; prufaðu þá hvernig niðurlagið hljómar svona: "Kaupfjelag Húnvetninga" voða fínt sko chococat

Nr. 6 | posted by: Harpa | 18.07.2006 | 1:08:46 | [+] |

Get ekki betur sjeð en það sje sjerstakur vasi fyrir júgursmyrsl, það kemur sjer alltaf vel og þá hljóta þetta að vera "Levit´s"

Hægt að ganga í þeim öfugum (ekki á röngunni), ef þær eru farnar að slitna heldur mikið að framanverðu eða aftan, en verst þykir mjer að þú skulir eigi girða þau ofan í stígvjelin.

Fyrst þú varst að fata þig upp í kaupfjelagi á annað borð hefði mjer þótt algert lágmark að kaupa líka nokkur pör af "Panther" sportskóm með riflás, á þig og börnin.

P.S.
Mjer lærðist það af eigin rammleik,að það borgar sig eigi fyrir karlpjeninginn að ganga um með uppbrettar ermar á sveitaböllum. Slíkt er rjesept á vandræði og eins og samgöngurnar eru orðanar í dag dugar lítið að gefa sveitavargnum tyggjó og ætlast til þess að maður sje laus allra mála. Þá kom sjer vel að kunna sinn mjaðmahnykk, baneitrað klofbragð og kyngimagnaðan hælkrók.

Nr. 7 | posted by: Ljenzherrann | 18.07.2006 | 1:23:35 | [+] |

Harpa:
Ég hjelt að þeir væru bara með "Polybale" rúlluplastið, og það er bara alls ekki nógu gott.

Nr. 8 | posted by: Ljenzherrann | 18.07.2006 | 1:25:58 | [+] |

Nibb, Triowrap í KH. Ekkert rusl!

Nr. 9 | posted by: Harpa | 18.07.2006 | 1:40:08 | [+] |

Mér finnst svo cool þegar þú talar svona Ljénzherra. tíhíhí

Nr. 10 | posted by: anna | 18.07.2006 | 1:41:36 | [+] |

Þarna er andlitssvipurinn á Dodda lifandi kominn!

Nr. 11 | posted by: AlanHudson | 18.07.2006 | 1:58:49 | [+] |

Ég hef ákveðið að ræna þessum þræði.

Ég hef komist að því eftir útilegur vikunnar að megin munurinn á konum og körlum er þessi.

Karlar eru upp til hópa kaldari
Konur eru upp til hópa varkárari

Með kaldari meina ég að karlar séu líklegri til að taka sénsins án þess að beint hugsa alveg til enda afleiðingarnar. Eins og einhverntímann kom fram hér. Ignorance is bliss.

Konurnar eru varkárari/nákvæmari og reikna dæmið til enda. Þegar niðurstaðan er komin er tækifærið farið.

Skynsemi er leiðinleg sagði maðurinn við mig um helgina. Seinna kom í ljós að hann var gjaldþrota. Ég held að það sé líka leiðinlegt. En þetta er dæmigerð hugsun þess sem lætur ekki smáatriðin aftra sér. Frábær afsökun.

Maður sér þetta ágætlega í gönguferðum á hálendinu. Þegar stokkið er yfir læki, stiklað yfir ár, klifrað niður kletta. Nánast allir karlarnir sýna ekki hik (þó þeir geti verið logandi hræddir) en konurnar hika. Margoft hefur maður séð konu detta í læk eingöngu út af hræðslu og hiki.

Þetta gæti líka skýrt afhverju karlar lenda oftar í alvarlegri slysum. Þeir taka meiri sénsa en detta sjaldnar en almennilega þegar þeir detta.

Ég held að þetta sé meginástæðan fyrir því að karlar ná meiri frama í atvinnulífi en konur. Þeir sækja einfaldlega harðar eftir toppstörfunum. Þeir eru kaldari þó þeir hafi ekki endilega hæfileikana í starfið.

Ef þetta er rétt þá veltir maður fyrir sér hver sé besta skipting þessara eiginleika í einstakling sem sækist eftir stjórnunarstarfi. Er ekki draumastjórnandinn með 60-70%% af kulda karlsins og 30-40% af varkárni/nákvæmni konunnar?

Ef þetta er rétt hver er ástæðan? Eru þetta erfðir? Eða er þetta uppeldi?

Nr. 12 | posted by: igor | 18.07.2006 | 2:59:31 | [+] |

Æi... ég vildi að ég hefði heyrt Ken taka þetta lag. Hann hafði ekki kjark í það þegar ég þrábað hann um það. En það hefur kannski ekki verið kjarkleysi, þegar allt kom til alls. Auðvitað hefur hann viljað syngja bara fyrir þig - og þig eina. Kemur mér samt mest á óvart að hann skyldi ekki syngja það ber að ofan. cool

Hvað kom til ? wave

Nr. 13 | posted by: Hugskot | 18.07.2006 | 4:37:04 | [+] |

Ég fatta ekki alveg samhengið milli þess sem annars er hér til umræðu og þess sem Igor skrifar. En það mun kannski renna upp fyrir mér ljós.

Ég held ekki að nokkrum manni dytti í hug að halda því fram við aðþrengdu (fyrrverandi) eiginkonur, núverandi bloggsystur höfum litið út fyrir að vera sérstaklega varkárar þarna á ballinu þótt það náttúrulega hafi ekki verið Anna sem svipti sig úr að ofan, heldur gaurinn sem hún var að dansa við. Það var BÍÓ!!!!! 2thumbsup Og hvað Ken varð fúll!!!

Takk Anna fyrir frábæran félagsskap og allar þið hinar smile

Nr. 14 | posted by: Fríða | 18.07.2006 | 8:15:36 | [+] |

Fríða.

Það er ekkert samhengi. Þetta var þráðarán. wink

Nr. 15 | posted by: igor | 18.07.2006 | 8:23:53 | [+] |

Ken er höfðingi, hann gefur Önnu ógissla flottar gjafir...

svo syngur hann vel og ég held hann noti refsivönd sinn af ríkri réttlætiskennd happy

Nr. 16 | posted by: baun | 18.07.2006 | 8:32:10 | [+] |

Anna, hversvegna léstu mig þá fara út á ballið með gleraugun vitandi það sem þú veist? Auðvitað vill enginn heilvita maður konu með gleraugu. Tók líka eftir því að Ken var alltaf að rífa þau af þér. nerd

Ég hef vaðið í villu og svíma allan þennan tíma, djöfull er ég vitlaus!!

Ogghhh, hefði nú viljað heyra hann taka þetta lag, en þið voruð sæt saman í "Don´t go breaking my heart" wink

Nr. 17 | posted by: Lindablinda | 18.07.2006 | 8:55:16 | [+] |

Já þau eru sko sæt saman. En boj hvað þau geta sofið á morgnanna melodramatic

Nr. 18 | posted by: anna | 18.07.2006 | 9:49:17 | [+] |

Æi sorry, þetta var ég hérna að ofan, Anna hefur eitthvað laumast í tölvuna mína í gærkvöldi happy

Nr. 19 | posted by: Harpa | 18.07.2006 | 9:50:58 | [+] |

Alan: Já þeir eru skuggalega líkir. MÚHOHOHOHOHO

Igor: Þetta er góður punktur - og góð tilraun til þráðráns! hehehe

Hugskot: Ken er orðin pínu hræddur við Hörpu og er hættur að þora að vera ber að ofan. Ég held að hún þurfi á serious refsingum að halda! angel

Fríða: Nei, við vorum sko EKKI varkárar! Fyrstar á dansgólfið, stökkvandi yfir hljómsveitarmeðlimi, hættandi lífi og limum, fórum meira að segja á kvennaklósettið þarna!

Þori að veðja að engin karlmaður hefði þorað inná þetta kvennaklósett. wink

Baun: Oh já, hann notar þennan refsivönd sinn af svo mikilli nákvæmni og ég á sko allar þessar refsingar skilið. happy

Linda: Vissirðu þetta ekki????

Harpa: Láttu nú ekki svona, við fórum seint að sofa í gær! angel

Nr. 20 | posted by: anna | 18.07.2006 | 13:00:02 | [+] |

Hmm, nei það er svipurinn þinn, Doddi er einmitt með nákvæmlega þennan svip.

Nr. 21 | posted by: AlanHudson | 20.07.2006 | 1:11:15 | [+] |

avgrwpmn ptrgsoc pecart ysrectd svnml oasnjfd pyec

Nr. 22 | posted by: guywok srqvcjb | 27.02.2007 | 10:54:26 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web