And on and on..
Miðvikudagur, 12. júlí 2006
Ég var hjá Dr. Acne.
a) Ég er ekki ófrísk (skrítið)
b) Ég á minnst TVO mánuði eftir á lyfjunum (say what?)
Einnig var rætt um að stækka lyfjaskammtinn. Ég er mjög hlynnt þeirri stefnu.
Þegar ég kom út hafði ég nokkra valkosti í stöðunni.
a) Fara að gráta.
b) Hengja mig.
c) Kaupa nýja tösku.
Ég keypti nýja tösku. Er alvarlega að spá í að fara að kaupa mér aðra tösku til að hressa uppá mig - eða jafnvel bara töskuBÚÐ. Kræst. Ef þetta heldur svona áfram neyðist ég til að skipta yfir í naglalakk.
Tveir mánuðir í viðbót. TVEIR!
come on..