Þriðjudagur, 06. júní 2006
Í morgun þegar ég vaknaði þá las ég andrésblöð með Ken og svo fengum við okkur að borða og fórum í vinnuna. Í hádeginu fór ég heim að hitta Ken svo við gætum lesið meiri andrésblöð saman.
Ég er búin að lesa svo mikið af andrésblöðum.. að ég get varla gengið.
Samt ætlum við að taka eins og einn árgang um leið og ég er búin í vinnunni.
Djöfull er gaman að vera til í heimi þar sem eru til andrésblöð og karlmenn sem kunna að lesa þau.
Stundum finnst mér samt eins og ég sé að vinna upp andrésblaða-áhugaleysi síðustu mánaða en jafnvel á sama tíma að fylla á kvótann mörg ár frammí tímann. Því ég trúi náttúrlega ekki að Ken sé for real.
Í vinnunni í morgun fór ég að spá í hvort ég gæti í alvöru verið svona heppin. Hvort hann sé bara ekki giftur eða hommi eða sikkópati eða jafnvel með mömmu sína uppstoppaða í skottinu á bílnum sínum. Mega sækó dæmi. Kannski er hann bara með mömmu sína í skottinu - á lífi! Vó hvað mér fyndist það spes.
Kannski er Ken geðsjúkur morðingi - eða bara klikkhaus eins og maðurinn sem býr í næstu íbúð. Þar býr miðaldra karlmaður sem heldur að hann sé Vigdís Finnbogadóttir - grínlaust. Hann er kostulegur. Hann er búinn að föndra einhvern örkumla fulg úr FIMO leir sem hann heldur fram að sé Fálkaorða og festir þetta í allan fatnað sem hann notar - Hagkaups-sloppa og svona eitthvað skræpótt rugl mussudót og svo sést hann ekki öðruvísi en í háhæla bleikum inniskóm með dúsk. Tekur sig vel út þannig í Melabúðinnni - með orðuna sína. Ég hef smá gaman að honum og stundum blessar hann mig þegar ég kem heim úr vinnunni og segir að ég sé Íslensku þjóðinni til sóma.
Ég efast reyndar ekkert um að það.
Smá neyðarlegt þegar hann reynir að tæla til sín gifta karlmenn í stigaganginum til að fá álit á stefnuræðunum sem hann semur í akkorði. Ég fæ þetta allt í póstkassann hjá mér. Vissu þið að Framsóknarflokkurinn er verndari Grænleska selastofnsins? Nei, þetta vissi ég ekki heldur og þessi fullyrðing sem hann kastar svona fram vekur fleiri spurningar en hún svarar. Bygons.
Kannski er Ken svona klassískt kryppildýr sem lýgur að konum að hann sé svona og svona æðislegur og reynir að fá þær til að skrifa uppá skuldabréf fyrir sig til að hafa af þeim peninga. Kannski er Ken kúkalabbi af verstu sort.
Kannski er Ken KLAMIDÍU KÓNGURINN!
Talandi um klamidíu - í hádeginu sá ég menn frá Borginni með fjaðurkústa að dútla í holunni sem Ken gróf í garðinum. Er þetta lið alveg vangefið?