Nr. 2 | posted by: anna |
9.06.2006 | 13:04:59 | [+] |
Þetta eru mjög töff börn. Rífast aldrei.
Á lau erum við Ken að fara út að borða. Ætla að segja honum frá þessu með Breka Dreka og Mist Eik. Kannski vill hann ganga þeim í föðurstað! Hann hefur þegar talað um að ættleiða Margeir.
En þú?
Nr. 3 | posted by: anna |
9.06.2006 | 13:47:35 | [+] |
ertu að reyna að næla þér í neikvæða athygli óþekka, skítuga stelpa?
Nr. 5 | posted by: anna |
9.06.2006 | 14:01:34 | [+] |
passaðu þig ljúfan veit ekki hversu lengi mér tekst að halda aftur af margeiri. Hann langar nefnilega svo til að prófa að pissa í þvottavélina, kúka undir millidínuna og klóra flösu oní seríosspakkann... +Þetta er náttúrulega mikilvægt þroskaskeið sem ég vill ekki að hann missi alveg af...
Passa mig? Getur hann bara ekki tekið þetta þroskaskeið út þegar hann er hjá þér?
Er þetta ekki bróðir þinn? Ha? Er ég ekki búin að veita honum ást og hlýju (eftir atvikum) í heilmörg korter á meðan þú varst á laxveiðum í frumskógum færeyja? Ha? Er það bara svona? Ég fórna undurfögrum líkama mínum í að ganga með ófædd afkvæmi þín og svo læturðu bróður þinn KÚKA undir millidýnuna mína!
Nr. 7 | posted by: anna |
9.06.2006 | 14:18:47 | [+] |
(vá hvað ég er búin að sakna þín mikið)
Nr. 8 | posted by: anna |
9.06.2006 | 14:19:25 | [+] |
já þú hefur lög að mæla, þetta er soldið gróft.
Ég talaði við marra og hann sættist á að kúka ekki undir millidínuna út af ófæddum afkvæmunum sem þyrftu þá að sofa á kúknum.
Hins vegar var hann þegar búinn að strauja kúk og setja hann inn í valda bók í bókaskápnum þínum... hann neitar að gefa upp nafn bókar og blaðsíðunúmer, nema þú endurhannir plan helgarinnar.
Geturðu komið með tillögu að plani helgarinnar sem er Marra þóknanleg..
Nr. 10 | posted by: anna |
9.06.2006 | 14:26:32 | [+] |
Marri var svo elskulegur að senda mér smáskilaboð með þessari tillögu að helgarplani:
Helgin 9.-11. júní: Anna fer EIN upp í sumarbústað og dvelur þar EINSÖMUL alla helgina. Þar sinnir hún ALEIN ýmsum störfum aðeins er hægt að sinna EINN Á BÁTI.
(ps. Anna má taka allt það fólk með sér í sumarbústaðinn, sem hún getur sannað með DNA sýnum að sé sér náskilt)