www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Elín to the rescue
Þriðjudagur, 13. júní 2006

Sá óheppilegi atburður átti sér stað á föstudaginn að hún systir mín fór í klippingu. Konan sem var að klippa hana spurði hvort hún ætti ekki að "skerpa aðeins" á litnum á hárinu á henni.

Systir mín var með sítt, ólitað hár.

Hvernig einhverjum lætur sér detta í hug að lita manneskju með sítt, ólitað hár viku fyrir brúðkaup er gjörsamlega beyond me.

Hún systir mín reiknaði að sjálfsögðu með því að konan væri fagmaður og vissi hvað hún væri að gera. Þegar hún gekk út af hárgreiðslustofunni var systir mín með töluvert mikið dekkra hár, útí fjólublátt.

Þetta atriði varpaði þónokkrum skugga á næstu daga sem komu í kjölfarið þó hún næði að gleyma sér stund og stund í gæsuninni. Eins og ég var búin að segja fékk hún að velja eina búð í Kringlunni þegar við fórum með hana þangað og hún valdi að fara í Aveda búðina, keypti þar hárnæringu og bursta.

Á sunnudaginn komst hún að því að hárnæringin virtist leysa upp þennan óhugnað (sem er in fact lífrænt skol) og þetta dofnaði töluvert - ég er ekkert smá fegin.

Ég benti henni hinsvegar á að fara til Elínar hjá Hár Fókus, þessa sem ég minntist á um daginn, og í dag fór Júlía þangað og guess what. Júlía var að hringja á leiðinni heim frá Elínu, in high spirits. Það kom mér reyndar ekki á óvart.

Kannski er engin tilviljun að hún heitir Elín Björg.


| anna | 15:33 |
comments

Ég ætti kannski að kíkja á þessa Elínu og sjá hvort ég á ekki séns í alvöru konur í staðinn fyrir að láta meira að segja þessar fictional hryggbrjóta mig.

Nr. 1 | posted by: Kalli | 13.06.2006 | 15:42:17 | [+] |

Hvernig dettur þér í hug að kona eins og Elín sé á lausu?

(Hún er gift)

Nr. 2 | posted by: anna | 13.06.2006 | 17:31:33 | [+] |

Ég var bara að spá í að láta hana klippa mig. Hvað heldurðu að ég sé? doubt

Nr. 3 | posted by: Kalli | 13.06.2006 | 17:43:31 | [+] |

Ertu búinn að vera að láta fictional konur klippa þig Kalli!

Það veit aldrei á gott.

toungue

En þú ættir að kíkja á Elínu því hún klippir karlmenn líka vel.

Nr. 4 | posted by: anna | 13.06.2006 | 17:59:34 | [+] |

Augljóslega. Ég er nú einu sinni með hár í mythical proportions.

Nr. 5 | posted by: Kalli | 13.06.2006 | 18:17:45 | [+] |

Já, við höfum frétt eftir krókaleiðum hvað þú ert grösugur.

Nr. 6 | posted by: Gestur | 13.06.2006 | 18:29:08 | [+] |

Mér finnst nú óþarfi að kall El Hugo krókaleiðir.

Nr. 7 | posted by: Kalli | 13.06.2006 | 18:36:51 | [+] |

Nei, kannski ekki. Respect. El Hugo er beinn og breiður.

Nr. 8 | posted by: Gestur | 13.06.2006 | 18:41:10 | [+] |

Jáh Elín Björg-vættur segi ég nú bara!

Ég gæti ekki verið ánægðari með þessa útkomu, fyrir utan það að ég var in fact tekin í prufugreiðslu hjá henni þar sem við diskúteruðum málin fram og aftur og komumst að ýmsu (eða ég) - eitthvað sem hin konan bauð ekki einusinni uppá!! "Þetta verður aldrei eins..." sagði hún, illa hárgreiðslukonan þ.e.

Ég er bara hálf fegin að þessi grimma hárgreiðslukona klúðraði hárinu á mér fyrst það beindi mér í opinn faðm Elínar. Ég er bara hálf hiss á því að ekki skuli vera fjallað um Elínu í Biblíunni?
angel

Nr. 9 | posted by: Júlía | 14.06.2006 | 8:40:27 | [+] |

Merkilegt, ég ætlaði að fara að skrifa þér línu og spyrja um nafnið á konunni sem klippir svona vel. Ég held nefnilega að ég sé loksins komin yfir hryllinginn sem ég lenti í í desember síðastliðnum, þegar ég bað um strípur sem væru örlítið ljósari en minn hárlitur og fékk í staðinn aflitaðar rendur í hárið. Til að redda því setti hárgreiðslukonan annan lit yfir og ég var þá komin með gulrótalitað hár. Það var ekki fyrr en hún setti þriðja litinn í hárið á mér að hann minnti örlítið á minn upprunalega hárlit. Sjitt, hvað mig sveið í hársvörðinn. Og svo þurfti ég að borga fyrir klippinguna!

Ég tékka á þessari Elínu.

Nr. 10 | posted by: María | 14.06.2006 | 11:03:26 | [+] |

Öppdeit. Elín búin að klippa og lita á mér hárið. Fær toppeinkunn. Elín búin að klippa hárið á afkvæminu og sprengir skalann, endalaus hamingja. Hún er komin með nýjan fastakúnna.

Nr. 11 | posted by: María aftur | 4.07.2006 | 14:13:38 | [+] |

Er að segja það, hún er alveg frábær! Takk fyrir að segja okkur þetta María! wave

Nr. 12 | posted by: anna | 4.07.2006 | 14:16:14 | [+] |

Nú verð ég að fara að kíkja á þessa Elínu. Haldiði að hún geti gert mig sætan? nerd

Nr. 13 | posted by: Kalli | 4.07.2006 | 15:44:33 | [+] |

Bara ein leið að komast að því..

Nr. 14 | posted by: anna | 4.07.2006 | 15:46:09 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web