Laugardagur, 24. júní 2006

Ken var dauðþreyttur eftir mávasafaríið svo ég nuddaði á honum axlirnar og strauk á honum bakið. Hann var smá pirraður því hann veiddi bara tvo. Líka smá pirraður því hann þurfti að kaupa sér föt í dag því ég henti hinum - óvart.
Það fór líka smá í taugarnar á honum að ég er strax búin að slíta allar tölur af öllum nýju skyrtunum sem hann keypti.
Mér var ekki sjálfrátt.
No, really.
Svona maður á ekkert að hafa leyfi til að ganga í fötum heima hjá sér.