Laugardagur, 17. júní 2006
Á morgun er systir mín að fara að gifta sig, manni sem hún kynntist fyrir rétt rúmu ári síðan. Þau eiga von á krókódíl og eru að leita sér að framtíðarhúsnæði saman. Á mánudaginn fljúga þau til Ítalíu í brúðkaupsferð.
Í dag var ég að klára allt sem þurfti að klára.
Ég kvíði smá að vera veislustjóri, en ég hlakka svo til að sjá systur mín ganga að eiga manninn sem hún elskar.
Vona að ég verði jafn hamingjusöm og hún einn daginn.