www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
This time..
Mánudagur, 05. júní 2006

Ég vaknaði ein í rúminu mínu í morgun.

Það fyrsta sem ég hugsaði var að þetta hefði bara verið draumur eða ímyndun eða.. en ég vissi að ég var ekkert að ímynda mér. Fór fram og ég leitaði.

Kallaði.

Sagði "this isn't funny".

Mjög hátt.

Svo fór ég að gráta.

Af hverju? Ég skildi það ekki. Ekki einu sinni bless. Hvernig er hægt að feika svona? Hvernig er hægt að feika hvernig honum leið í gær?

Hvernig fara karlmenn að þessu.

Ég handjárnaði hann auðvitað ekkert í alvörunni svo ekki var það að hann væri hræddur við mig - ekki útaf því allavega. Af hverju mátti ég ekki eiga hann? Af hverju fara allir? Ég veit að honum fannst jafn gott að vera hjá mér og mér fannst að vera hjá honum og ég náði - ekki - utanum.. vonbrigðin. Ég var svo sár og þó ég ég gæfi ekki frá mér eitt einasta hljóð hættu tárin ekki að streyma niður kinnarnar á mér.

Settist við tölvuna og skrifaði og skrifaði. Skrifaði um hvað karlmenn eru miklir fávitar. Skrifaði um hvað ég er mikill fáviti. Aftur geri ég sömu mistökin og reikna með því að einhver, einhver sem mér finnst svona æðislegur vilji vera með mér. Af hverju geta þeir þá bara ekki sagt mér hvað er að mér? Ha? Hvað ég er að gera rangt. Hvað verður til þess að þeir sjá enga ástæðu til að hafa mig nálægt sér - þó þeim líði vel þegar ég er hjá þeim. Þetta meikar ekkert sense!

Þegar ég heyrði lykli snúið í skránni hljóp ég inná bað, því ég vildi ekki að krakkarnir sæu mig því ég var að gráta. Fór að þvo mér í framan. Allt eins, þau áttu ekki að koma heim fyrr en seinnipartinn. Ég stóð við vaskinn að þurrka mér þegar ég sá hann í speglinum.

Vá hvað mér brá. Hann brosti en þegar hann sá mig hætti hann að brosa og spurði mig hvort ég hefði verið að gráta. Ég fór eiginlega að gráta aftur - æ ég bara gat ekkert að því gert! Ég var svo fegin og hissa að sjá hann aftur og það gaf mér smá von um að það væru ekki allir karlmenn vangefnir eða að leika eitthvað rugl og spila með tilfinningarnar mínar og ég tók utanum hálsinn á honum og hélt fast utanum hann og blurtaði út í einni romsu að ég væri svo hrifin af honum og ég var einu sinni gift manni sem fór og kom einhvertíma og einhvertíma heim og stundum kom hann bara alls ekki.. og svo fann ég mann sem vildi aldrei vera hjá mér og fór alltaf og skildi mig eftir og ég er búin að vera svo einmana og svo rifjaðist upp fyrir mér hvað það er gott að hafa einhvern sem heldur utanum sig og hvað það er gott að leyfa sér að þykja alvörunni vænt um einhvern og þora að treysta að honum þyki kannski pínulítið - mikið - vænt um þig líka og trúa að það sé ekki af því ég er svona eða hinsegin heldur bara af því ég er eins og ég er og af því það er svo gott og þegar hann bara fór í burtu þá hélt ég að hann myndi aldrei koma aftur og þá varð ég svo leið og svo sár því ég hélt í alvöru að honum liði eins - þó við værum bara nýbúin að hittast og..

(þetta kom í alvöru miklu betur út á ensku)

Hér sagði hann "Anna", og ég hætti að tala.

(hann sagði Anna)

Þegar hann var búinn að segja "Anna" þá sagði hann mér að á þessum þrjátíu og sjö árum sem hann væri búinn að vera á lífi væri hann búinn að ferðast mikið vegna vinnu sinnar (hann vinnur ekki við rækjusölu) og hann væri búinn að hitta margar konur útum allan heim. Hann væri búinn að sofa hjá nokkrum þeirra en aldrei, ekki í eitt skipti, leið honum eins og hann væri í vímu á meðan. Aldrei hafi hann hitt konu sem honum leið svona vel með og aldrei hafði hann hitt konu sem fór í sturtu með honum áður en hún sagði svo mikið sem eitt orð við hann. Hann sagði mér að á þessum sólarhring sem hann væri búinn að þekkja mig, væri ég búin að kynna hann fyrir alveg nýrri tilfinningu. Honum leið eins og hann væri kominn heim.

(ég - ennþá að gráta)

Hann sagði mér að um morguninn hafi hann hringt í vin sinn (íslenskur strákur) til að láta vita af sér - sama mann og sendi hann að selja þessar helvítis rækjur fyrir sig og þessi vinur hans sagði honum að hann og konan hans - og allir fokking vinir þeirra eru búin að liggja á refresh á anna.is frá því hann fór því ég er bloggari (sem Ken vissi ekki) og þau vita hvað ég mér finnst Jude Law sætur og þeim fannst óborganlega fyndið að senda hann til mín að selja færeyskar rækjur (útaf Lifur) og vildu vita hvað ég myndi skrifa - því allir sem þekkja Ken vita að hann er rosalega líkur Jude Law. Ken benti mér á að það væri reyndar ekki hann sem væri líkur Jude Law, hann er eldri en Jude svo Jude er sá sem líkist honum - þetta atriði virðist skipta hann máli.

(ég - hætt að gráta)

Svo horfði hann í augun á mér og sagði að ef mér liði eins og honum þá langaði hann virkilega að kynnast mér miklu betur því honum líkaði við allt so far og ef ég gæti eldað líka væri hann líklega dáinn og farinn til himna.

(hann var að grínast)

Þegar hann var búinn að segja allt þetta við mig.. fór hann með mig inní eldhús þar sem ég sá poka úr bakaríi og miða á borðinu - sem ég tók ekki eftir þegar ég var að leita að honum. Á miðanum stóð að hann ætlaði að skreppa útí bakarí og hann kæmi strax aftur. Og ég elska það. Ég elska að hann hafi látið mig vita. Ég elska að hann hafi ekki bara farið og skilið mig eina eftir. Ég elska að hann kom aftur. Ég elska hvernig mér líður. Ég elska hvaða áhrif hann hefur á mig. Ég elska lyktina af honum. Ég elska röddina hans. Elska hvernig orð hann notar. Elska hvernig hann heldur fast utanum mig eins og hann vilji ekki sleppa mér.

Við erum búin að eyða deginum uppí rúmi - að tala. HANN TALAR VIÐ MIG! Hann fílar Woody Allen ekkert aaalveg eins og ég en finnst hann "all right" og honum finnst diskó pínu gay - sem er allt í lagi því hann fílar funk og jazz og blues og hann fílar að halda utanum mig því honum finnst það gott og honum finnst ég mjúk og honum finnst góð lykt af hárinu mínu og.. og.. hann drekkur sjaldan og finnst léttvín vond (eins og mér) og á mömmu sem er á lífi en pabbi hans dó fyrir nokkrum árum og hann á tvö systkini sem búa bæði í Bretlandi og eru eldri en hann og hann fílar Bottom og honum finnst ekkert rosalega gaman að veiða silung því hann fílar lax og hann spilar golf og vill kenna mér að spila og honum finnist rassinn minn alveg rosalega flottur og honum finnst ég hafa fallegustu augu sem hann hefur séð og honum finnst hnetu m&m best - eins og mér og hann elskar lasanja og sushi og hann á engin börn af því hann hefur aldrei fundið konu sem hann langaði að eignast þau með. Hann fílar Futurama og hann trúði mér ekki þegar ég sagði honum að ég ætti allt Arrested Development og svo töluðum við um hvað Tobias er mikill fáviti og hann hló og hló þegar ég sagði honum að Gulli hafi einu sinni verið í svona cut-offs innanundir því hann og Júlía voru að stríða mér og reyndu að taka mynd af mér þegar Gulli fór úr buxunum en ég var ekkert hissa og.. og.. og..

..og ég get - ekki - hætt - að brosa.

Hann er alvöru. Hann hefur hug og hjarta og hann hefur sál og hann vill gefa mér það allt saman.

Mig langar svo að fjölga mér með þessum manni!

Nú er hann farin til vinar síns að ná í föt því hann er að bjóða mér út að borða í kvöld, vill kynna mig fyrir vini sínum og konunni hans. Og ég veit ekki í hverju ég á að vera og ég er smá stressuð en samt svo spennt og ég hlakka til að hitta fólk sem hann þekkir! Og ég trúi að hann komi aftur því hann lét mig fá símanúmerið sitt og hann er búinn að senda mér tvö sms frá því hann fór. Og þau fengu mig bæði til að brosa.

Ég verð að þakka ykkur Svenni og Eva. Takk .. fyrir að senda hann til mín.

Eins og staðan er í dag - er ég mögulega búin að finna þann sem kemur, með tímanum, til með að verða ástæðan fyrir því.. að ég hætti að blogga.

Fólk hættir nefnilega oft að blogga þegar það eignast líf.


| anna | 18:52 |
comments

Þú ferð í rauðu skónum og engu öðru............ til dyra.


Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 5.06.2006 | 19:15:57 | [+] |

Ég fer að halda að allir hafi bara hreinlega misst puttana um helgina af lesendum þínum, því það virðist ekki nokkur hafa skoðun á þessum nýju ævintýrum þínum. En jólin hafa komið um mitt ár hjá þér.... happy

Nr. 2 | posted by: Simmi | 5.06.2006 | 21:45:28 | [+] |

Uss Simmi. Ekki trufla.

Svo þarf ég að fara að tína upp alla geisladiskana sem duttu úr hillunni minni áðan við síðustu 10.

Ég bý í Kópavogi. Var ég búinn að nefna það?

Nr. 3 | posted by: Kalli | 5.06.2006 | 22:09:11 | [+] |

weepy

Hætta að blogga? eignast líf?
og hvað? á þá bara að eyðileggja líf fjölda fólks með því að hætta að blogga?

Ég sver það sumt fólk er svooo tillitslaust.

Nr. 4 | posted by: Elín | 6.06.2006 | 1:12:00 | [+] |

Ken er karlmaður. Hvað heldurðu að taki hann langan tíma að hætta að vera æðislegur?

Ég er á skeiðklukkunni.

Nr. 5 | posted by: anna | 6.06.2006 | 1:14:15 | [+] |

Auðvitað, hvernig læt ég.

Anna, ég verð því miður að vona fyrir mig og mannkynið að hann floppi silent

Nr. 6 | posted by: Elín | 6.06.2006 | 1:25:15 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web