Mánudagur, 05. júní 2006

Eins og sést á myndinni hér að ofan er ég með smá móral útaf Lifur núna.
En ég meina.. það er ekki eins og ég hafi planað þetta og Lifur er búin að vera að dúlla með þessum rækjum þarna í færeyjum - ég veit það. Lifur hefur yfirgefið mig og öll ógetnu börnin okkar. Ef ég væri ekki svona hrifin af þessum Jude Law lookalike og hvernig hann svoleiðis refsar mér eins og endalok heimsins séu í nánd - þá myndi ég pottþétt upplifa rosalega mikla höfnun.
Margeir er í losti.
Mér finnst það gott á hann.
Ég er búin að kalla þennan yndislega mann "Jesús, Guð, Fastar, Hraðar, Já, Meira, Ástin, Aftur, Neðar, Svona, Akkúrat svona, Já, Já, Já, Já, Jesús" en áðan fékk hann skyndilega málið þegar hann hvíslaði: "Jesus" - við skemmtilegt tækifæri, og ég komst að því að hann talar ensku, svo fékk ég uppúr honum að hann heitir Kenneth Bentley. Kallaður KEN.
Ég sagði honum að ég væri kölluð Bitter Barbie og hann fór að hlæja. HANN HEFUR HÚMOR LÍKA! Ég er ekki búin að ná utanum að hann heitir Bentley. OG MIG HEFUR ALLTAF LANGAR Í SVOLEIÐIS! Ég hafði bara ekki hugmynd um að það yrði svona svakalega.. fullnægjandi lífsreynsla fyrir mig að eignast einn!
Kannski dó ég í gær og veit ekki af því. Mér finnst það ekkert ósennilegt.
Hann er sofnaður aftur. Örmagnaðist. Ég get ekki sofið. Ég bara get það ekki. Hvernig á ég að geta það? Kannski yrði hann farinn þegar ég vaknaði aftur. Það hefur svo oft verið þannig og ég vil ekki að hann fari í burtu frá mér. Ekki gera það - ég trúi ekki að hann geri það. Honum finnst nefnilega líka alveg rosalega góð lykt af mér - ég spurði hann - og svo finnur hann líka eitthvað skrítið í maganum og höfðinu þegar hann horfir í augun á mér - alveg eins og ég. Eins og að fá heróín í æð og það neistar á milli augnanna okkar. Það er eins og við séum á öðru segulsviði þegar við horfumst í augu og ég get varla slitið mig frá honum til að fara á klósettið!
Ekki þarf ég að borða - hef misst alla lyst. Þessi tilfinning sem ég fæ í magan þegar ég horfi á hann, hún er alveg rosalega seðjandi.
Hei! Ég get handjárnað hann við ofninn!
Best ég geri það, verð að fara að fá einhvern svefn.
Ég ætla að eiga hann.