www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
True blue
Sunnudagur, 04. júní 2006

Þegar ég fór út að ná í rækjusölumanninn áðan gekk ég hægt uppað honum og þvílík sjón. Hann var búinn að tæta sig úr að ofan og svitinn rann niður bakið á honum og bjó til tærar rákir í drulluna. Ég held að þessi maður hljóti að vera sendur til mín frá Guði, hann er svo fallega vaxinn. Hann er svo sterkur, pínu svona.. mjúkur líka og mér finnst það kostur. Hann er ekki massaður, ekki feitur... þrekinn. Held að hann hafi verið soldið fegin að sjá mig, sýndist hann vera orðin soldið þreyttur - og hræddur því lögreglan var komin með menn frá byggingareftirlitinu og voru að spyrja hann einhverra spurninga. Rosalega fljótur að grafa þessi maður, mætti byggja lítið fjölbýlishús í garðinum núna. Hann virðist missa málið þegar hann sér mig og ég sagði löggunni og blýantanagaranum að hann væri vangefinn - þetta væri allt mér að kenna því hann má ekki komast í skóflur, þá fer hann að grafa. Málið var dautt.

Þegar löggann fór þá fór ég alveg uppað honum og byrjaði að lykta af honum. Fyrst lyktaði ég af bringunni, svo af handleggjunum, svo af hárinu og jesús kristur.. ég fékk tár í augun. Og egglos. Ég þarf ekkert að fjölyrða hvað ég gerði næst - og það hafði afleiðingar.

Þessi rúmgafl var nú orðin soldið þreyttur hvort sem er og mátti alveg fjúka ofanaf svölum. Í raun vantaði mig bara einhvern til að bera hann útá svalir og henda honum frammaf fyrir mig. Ekki verra þegar búið var að brjóta hann í spað fyrst, því hann er/var soldið stór. Hugi gæti verið soldið fúll útí mig, því það var tíu all over the place og allt gler í íbúðinni er brotið.

Hann er sofandi núna en ég get ekki sofið. Fyrst lá ég í faðmi hans og drakk í mig þessa dásamlegu lykt þangað til mér leið eins og ég væri drukkin, þá opnaði ég augun og horfði á hann. Hann er svo flottur þessi maður, ég hef aldrei á ævinni séð fallegri einstakling. Finnst eins og ég geti horft inní sálina á honum þegar ég horfi í augun á honum. Og hann er sterkur. Hann er svo sterkur. Þegar hann heldur utanum mig líður mér eins og ekkert slæmt geti komið fyrir mig.

Ég er farin að finna allskonar rugl langanir - langar að búa til marengs með ávaxtafyllingu og færa honum. Langar að búa til vöfflur, læra að búa til alveg hrikalega gott kaffi sem ég get fært honum á morgnanna, langar að kaupa nærbuxur á hann sem honum finnst þægilegar og nærbuxur á mig sem honum finnst gaman að tæta mig úr. Mig langar að hrópa HALLELÚJA OG ÞAÐ VAR SATT! HANN VAR FRELSARINN OG HANN VAR STÓRKOSTLEGUR!

Mig langar að geta með honum börn. Mig langar að flytja með honum einhvert útí rassgat þar sem ég get átt hann alveg ein. Mig langar að renna höndunum í gegnum svitastorkið hárið hans og mig langar að horfa í augun á honum og segja honum að ég elski hann með hjartanu mínu. Mig langar að hlekkja hann við rúmið mitt og handmata hann.

Mig langar að nudda á honum fæturna eins og ég gerði áðan, hann lá í rúminu og ég byrjaði á að nudda ilina og tærnar og færði mig svo upp.. og það var svo dásamlegt því þessi lykt gerir hluti við mig sem ég bara skil ekki, þetta er víma, og hann brosti svo fallega til mín og svo settist hann upp og dró mig til sín og kyssti mig á meðan hann hélt fast utanum mig með þessu sterku, sterku handleggjum sem.. sem.. oh..

Og mig langar að gefa honum hluti sem honum finnst gaman að eiga og mig langar að leyfa honum að hvíla sig núna aðeins þangað til ég vek hann á eftir til að refsa mér meira fyrir hvað ég var vond að láta hann grafa holu svo að hann varð allur sveittur og skítugur - í framan.. jesús og..

..og mig langar að vita hvað hann heitir.


| anna | 23:44 |
comments

Nú ertu komin í sjoppusölumarkaðinn - og það er fínt.

Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 5.06.2006 | 1:23:58 | [+] |

Hvað er sjoppusölumarkaður? doubt

Nr. 2 | posted by: anna | 5.06.2006 | 1:25:52 | [+] |

það er svona gæða - "literatúr" sem er einungis seldur í gæðasjoppum (sem selja kók og sígó) eins og Svarta svaninum, Tíglinum og Drekanum..... good stuff wink

Hemingway .... pjúra Hemingway colgate

Nr. 3 | posted by: Lindablinda | 5.06.2006 | 1:34:35 | [+] |

Thanks for nice and actual info' Be the Best!
Best site in bleep! My thnx to webmasters.

Nr. 4 | posted by: car insurance | 19.07.2006 | 8:25:29 | [+] |

Thanks for nice and actual info' Be the Best!

Nr. 5 | posted by: ringtone | 29.07.2006 | 5:29:11 | [+] |

Thanks for nice and actual info' Be the Best!
http://download-ringtone.chicagonoise.net/

Nr. 6 | posted by: ringtone | 30.07.2006 | 0:42:18 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web