Fimmtudagur, 01. júní 2006
Stórt plaggat úr myndinni "Breakfast at Tiffanys" hefur vermt vegginn rétt við skrifborðið mitt síðan ég skildi. Í kvöld breyttist það.
Á morgun mun ég bora upp þessa risastóru töflu sem ég mun nota til að tússa upp hugmyndir og skipulag verkefna. Fyndið að þessi tafla skuli leysa myndina af Audrey Hepburn, í hlutverki hinnar óöruggu Holly Golightly, af.
Yes.. the times are a changing.
Ég er búin að finna mér endurskoðanda, þarf virðistaukanúmer og ferð til Boston í haust trónir á "to do" listanum.
Það er allt að gerast hérna megin.
Not to worry.. þetta er skemmtiferð til Boston. Með smá vinnu-ívafi.
--
Já og um leið og ég fékk töfluna skrifaði ég mikilvægasta orð vefiðnaðarins á hana. Orðið sem allir sem eru viðriðnir bransann þekkja. Sameiningartákn áhugafólks um veraldarvefinn. Því við skulum ekki gleyma.. þegar maður er lítill og blár og finnst allir vera á móti sér.. eins og frelsandi engill.. there will always be..