Sunnudagur, 11. júní 2006
Í framhaldi af nagla-umhirðu umræðu á síðunni datt mér í hug að birta færslu sem ég birti undir efnisliðnum "beauty is pain" á sínum tíma.
Djöfull er langt síðan ég hef haft svona flottar neglur. Þetta er vinna og undanfarið hef ég lítið verið að sinna svona hlutum, vegna annarar vinnu.
Annað.. ég er ekki með sterkar neglur en ég veit af eigin reynslu að það geta allar konur - og karlmenn líka ef útí það er farið - haft fallegar neglur og þá er ég að tala um sínar eigin, ekki gel dót. Líka þeir sem eru með neglur sem klofna og brotna - eins og ég. Það er bara aðeins meiri vinna.
Allavega.. hér er kennslustund í að laga brotna nögl, var upprunalega birt á "beauty is pain" 17. september, 2003.
--
Að brjóta nögl þarf ekki að þýða að nú sé rétti tíminn til að henda sér niður af svölunum.
Með réttu tólunum og með ca 30 mínútur* aflögu í friði og ró er hægt að gera ýmislegt eins og t.d. að laga brotna nögl.
Það vildi svo skemmtilega til að í kvöld leiddist mér og ég hafði ekki neitt um að hugsa nema hvað mig langaði rosalega mikið í sígarettu. Áður en ég vissi af var ég farin að naga neglurnar af miklum móð og stuttu síðar CRACK!
Brotnaði ekki ein nöglin undan ágangi tannanna í mér.
Við lifum á tímum geimferða og ferðaklósetta. Það er allt hægt.
Líka að laga brotnar neglur.
Eitt af því mikilvægasta af öllu í naglaviðgerðum er að passa upp á blessað brotið. Það er hægt að laga brotna nögl án naglabrotsins en það er höfuðverkur sem innifelur kaup á gervinöglum og föndur við að búa til brot sem passar á nöglina. Ég nenni því ekki nema það sé ekki fræðilegur möguleiki að passa upp á brotið. Eins og t.d. ef maður brýtur nögl við að loka klósettinu og brotið dettur ofaní. Þá er alveg þess virði að föndra nýtt brot úr gervinögl.
Á mynd nr. 3 sést brotið sem brotnaði af nöglinni á mér. Brotið er lítið en án þess er nöglin ógeðslega ljót.
Það sem við þurfum fyrir þetta nútíma kraftaverk er snilldar dót sem heitir "Sally Hansen Nail Repair Kit" (sjá mynd nr. 4 og 5) og tvær naglaþjalir. Eina soldið grófa og eina mjög fína með buffer.
Eins og á mynd nr. 6 byrjum við á að bera lím á nöglina þar sem hún er brotin.
Þessu næst er brotinu komið fyrir á sínum stað á nöglinni og þar næst er hvíta duftinu hellt yfir eins og á mynd nr. 7.
Þá er örlítið meira lím sett yfir hvíta duftið og meira hvítt duft yfir límið eins og sést á mynd nr. 8.
Á mynd nr. 9 sést nöglin. Hún er orðin ógeðslega ljót eða eins og fílamannanögl.
Þetta sést vel á mynd nr 10. Við skulum ekki örvænta því after all.. við erum konur og getum allt, við þurfum bara réttu áhöldin.
Það þarf að bíða í ca 5 mínútur eftir að þetta drasl harðni nú allt saman. Gott er að miða við að reykja eina sígarettu, þá er þetta komið. Fyrir þá sem ekki reykja er gott að naga hinar neglurnar. Það eykur líkurnar á að önnur nögl brotni og þá hefur þú nóg annað að gera en að hugsa um sígarettur.
Þegar límið og duftið er orðið glerhart byrjum við að forma með naglaþjölinni eins og sést á mynd nr. 11. Þetta tekur allt að 7 mínútur - allt eftir því í hversu mikilli æfingu viðkomandi er.
Á myndum 12 og 13 sést svo hvernig nöglin lítur út formuð og endurbætt.
Pís of keik!
*svona viðgerð tekur mig ca korter svo 30 mín er mjög fair fyrir enhvern sem er að gera þetta í fyrsta skipti.