www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Lófalestur
Miðvikudagur, 14. júní 2006

Um daginn var ég í vinnunni þegar ég tók eftir undarlegri rauðri línu í hægri lófanum á mér sem ég kannaðist ekkert við.

Í kvöld tók ég eftir línu í þeim vinstri sem er líka ný. Hún er dökk eins og hin var, en sú sem ég tók eftir um daginn er ekki lengur dökk heldur bara alveg eins og hinar línurnar í lófanum.

Hvað er að gerast? Af hverju eru að bætast línur í lófann á mér?

Mér finnst þetta stórmerkilegt.


| anna | 0:45 |
comments

Lófar breytast þegar þú tekur ákvörðun. Varstu að taka ákvörðun um hvað ætti að vera í matinn?
Og svo síðbúið svar við pælingum um sannleikann: Mér finnst ég alltaf geta skynjað hvenær þú "lýgur" og hvenær ekki þó stundum sé lygin svo flott framsett hjá þér að maður lifir sig inn í hana og fær gæsahúð og allt það. Mér finnst það brjálæðislega fyndið að fólk skuli hafa áhyggjur af þér. EKKI hætta!

Nr. 1 | posted by: parisardaman | 14.06.2006 | 7:06:14 | [+] |

Rófuköttur?

Nr. 2 | posted by: Útifrík | 14.06.2006 | 8:07:57 | [+] |

Varst þú nokkuð að fá þér ný og sterkari gleraugu?

Nema þetta sé bara lífið að marka sín spor?

Nr. 3 | posted by: igor | 14.06.2006 | 8:22:53 | [+] |

Kannski eru þetta afleiðingar ákvarðana síðustu daga. Hver veit. Mér finnst þetta samt stórmerkilegt.

Var að sjá þetta á netinu, að línurnar breytast þegar þú breytist. Magnað.

Nr. 4 | posted by: anna | 14.06.2006 | 10:13:49 | [+] |

Ég er forvitinn. Hvar í lófanum eru nýju línurnar?

Nr. 5 | posted by: Hugi | 14.06.2006 | 10:31:15 | [+] |

Þessi sem ég tók eftir í gær bættist aftan við líflínuna í vinstri lófanum. Þessi nýja í hægri byrjar neðst útfrá líflínunni og sker allar línur uppí hjartalínu - og hún er tvöföld.

Ég skal sýna þér þær við tækifæri og ef þú vilt sjá WEIRD lófa.. skal ég sýna þér vinstri höndina á mér.

Hún er vægast sagt skrítin. Ég á sko bók um lófalestur, dró hana fram í gærkvöldi.

Nr. 6 | posted by: anna | 14.06.2006 | 10:59:59 | [+] |

Hlakka til að sjá, geri mér ekki alveg grein fyrir þessu út frá lýsingunni - en það hljómar eins og þú hafir verið að græða örlagalínu.
Ef hún er tvöföld getur það skv. mínum heimildum þýtt tvennt - að þú ert dugleg, eða að þú eigir í vandræðum með skuldbindingu. Það veltur á bilinu á milli línanna. Og ég get auðvitað ekkert sagt nema sjá á þér hægri tána, stjörnukortið þitt, tebolla sem þú ert búin að drekka úr og fyrsta ökuskírteinið þitt. Og skvetta á þig kúablóði.

Og Anna, áttu bók um lófalestur? I'm shocked! Og hér er ég bara að lesa einhverja kverúlanta á Netinu

Nr. 7 | posted by: Hugi | 14.06.2006 | 11:22:35 | [+] |

Magnað! þú ert að stökkbreytast "life" á Netinu!
Það er svo margt skrítið og óskiljanlegt í lífinu... til dæmis hef ég enga haldbæra skýringu á hvers vegna ég hef, með stjarfa, hlustað á lagið Brother Lui með Modern talking í allan morgun og hreyft vinstri fótinn upp og niður í takt...

Nr. 8 | posted by: lifur | 14.06.2006 | 11:36:26 | [+] |

Bilið nær ekki millimetra.

Skal hafa rest tilbúna, stjörnukortið mitt (sem er btw ekki hægt að búa til því engin veit klukkan hvað ég fæddist), tebollann ert þú nú þegar með og fyrsta ökuskírteinið mitt er eitthvað sem vel má falsa!

Þú reddar kúablóðinu, er þaðggi? toungue

Já ég á bók um lófalestur. Langt síðan ég stúderaði hana.

Nr. 9 | posted by: anna | 14.06.2006 | 11:40:09 | [+] |

Millimetri - þá ertu líklega frekar dugleg, ekkert sem við vissum ekki fyrir. Ferlega eru hendurnar á þér eitthvað hægar til toungue

Ég banka upp á hjá Guðna á eftir og redda blóðinu.

Nr. 10 | posted by: Hugi | 14.06.2006 | 11:44:55 | [+] |

Ég var búin að gleyma öllu um þetta en nú langar mig hinsvegar að ná mér í línóleum svertu, rúllu og taka afrit af lófunum á mér - eða þrykk.

Ef ég geri það.. ætti ég þá ekki að setja það á netið? BERA SÁL MÍNA!

MÚOHOHOHOHOHOHOHO

Lifur. Þetta með Brother Lui er stress.

Nr. 11 | posted by: anna | 14.06.2006 | 11:51:56 | [+] |

Ekki er þetta loveline ??

Nr. 12 | posted by: Hugz | 14.06.2006 | 14:58:27 | [+] |

Já áttu við að þetta sé Ken!

toungue

Nr. 13 | posted by: anna | 14.06.2006 | 16:10:07 | [+] |

Ekki ólíklegt. Kannski hverfur hún þá fljótlega doubt

Nr. 14 | posted by: Hugz | 14.06.2006 | 23:00:39 | [+] |

Samkvæmt mínu lófamynstri ætti ég að vera löngu dauð.

Er kannski bara vampýra ??

Nr. 15 | posted by: Lindablinda | 14.06.2006 | 23:48:59 | [+] |

Nei, hún er varúlfur gnasher
Þess vegna fer engum frekari sögum af þessum fyrirmyndar karlmönnum, þeir eru fictional, eða þannig ...

Nr. 16 | posted by: Hugz | 15.06.2006 | 4:30:59 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web