www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Karlmenn og tólin þeirra
Föstudagur, 09. júní 2006

Ég er í vinnunni. Ken var að hringja og anda í símann - eða eitthvað álíka.

Það eiginlega blasir við að LTMA® hentar ekki fyrir síma - og ég er í vinnunni.

Ég sagði honum að láta í mig friði, ég væri að vinna.

Kíki á hann í hádeginu.

Kannski refsar hann mér fyrir að vera svona stutt í spuna.

Annars virðist ég ekki alveg ætla að sleppa við allar óþægilegar aukaverkanir af þessum rófuketti. Þó ég hafi ekki stundað neina líkamsrækt á þeim tíma sem ég hef verið að bryðja þessi lyf tvisvar á dag.. þá var ég gjörsamlega að drepast í hnjánum þegar ég vaknaði í morgun og mér finnst eins og kjálkinn sé að detta af mér. Kannski verð ég að fara að ganga í flatbotna skóm og hætta alveg að tala.

Ég tala nú ekkert svo mikið.

Spyr Dr. Acne útí þetta næst.

Annars var Dr. Acne voða kátur að sjá mig og sagði að ég ætti eftir einn - topps tvo mánuði eftir á lyfinu. Ég fór að spá í hvort hann les bloggið mitt því hann spurði mig þrisvar hvort ég væri orðin þunglynd. Kannski fannst honum grunsamlegt að ég var með þetta reipi um hálsinn. Ken er bara ekki klárari að losa hnúta en þetta - what are you gonna do.

Svo gerðist svolítið undursamlegt hjá lækninum.

Hann sagði "Heyrðu.. legstu á bekkinn, ég þarf að taka þig."

Mér dauðbrá.. en létti stórum þegar ég áttaði mig á að hann var að tala við hræðilega stórann fílapensil á kinninni á mér. Hann lagðist á bekkinn - nei... jesús.. ég lagðist á bekkinn og læknirinn tók nál og stakk henni í fílapensilinn sem gargaði af lífs og sálarkröftum þannig ég tók fyrir eyrun. Dr. Acne var með heyrnahlífar, heyrði að hann var að hlusta á FM - sem mér fannst ekki traustvekjandi - en þegar hann var búinn að pota með nálinni í hann náði hann í eitthvað lítið tæki og potaði því í kinnina á mér í nokkrar sekúntur - svo sagði hann "kominn".

Ég lá á bekknum og fann að þungu fargi var af kinninni á mér létt og þó ég hafi spurt mig af hverju hann gat ekki tekið allt á þennan hátt, þá var ég svo hissa - að ég gat ekki talað.

Þetta var samt það eina sem var verulega nazty eftir þarna í hægri kinninni. Þetta fer að verða búið og í gær þegar ég leit í spegil og pírði augun þannig að ég sá mig ekki - fannst mér ég líta alveg rosalega vel út.

Allt að gerast.


| anna | 9:21 |
comments

ég skrifaði óvart amma.is þegar ég mætti til vinnu... það fannst mér fyndið í ljósi þessarar fallegu læknadæmisögu. ömmur+bólur er tenging sem vantar meira af í þjóðfélaginu.
Annars er "fílapensill" svo fallega skapandi orð að ég skil ekki hvernig þér dettur í hug að reyna að útrýma þessum litlu doppóttu vinum þínum!
Af hverju seturðu ekki zónah mynd af tvíburunum á síðuna, ha? anna, ha?
mig langar svo í tívolí... af hverju er ekkert tívolí á íslandi?
Í hversu miklu stuði ertu í dag (1-14)?

Nr. 1 | posted by: lifur | 9.06.2006 | 10:19:01 | [+] |

LOL

Þetta er svo 80's.

AMMA'ÐÍN!

Fyrrverandi maðurinn minn sagði alltaf að ég væri fasisti. Kannski er það þessvegna sem ég er svona mikið fyrir útrýmingarbúðir.

Ég er ekkert búin að fara í sónar strax með tvíburana, hvað er þetta! Ég er ekki komin nema hvað? Sex mánuði á leið?

Mig langar líka í tívolí og ég er sko í stuði. 28,3

Nr. 2 | posted by: anna | 9.06.2006 | 10:28:05 | [+] |

ég heimta myndir af börnunum!
hef ástæðu til þess að fá úr því skorið hvort þau líkist mér eða frú vigdísi... segjum bara að ég hafi fengið "símtal".

Nr. 3 | posted by: lifur | 9.06.2006 | 11:20:36 | [+] |

Þú færð myndir RELAX!

Símtal.. give me a break... melodramatic

Nr. 4 | posted by: anna | 9.06.2006 | 11:27:33 | [+] |

VÍST!
Það hringdi einhver maður í mig með þokkafulla rödd og sagði mér á brotinni íslensku að "ég ekki eiga thessi krakkar í maga anna"!

Nr. 5 | posted by: lifur | 9.06.2006 | 11:39:34 | [+] |

Hver getur nú sagt "you bring out the beast in me" Mér sýnist Lifur vera að sýna hér hlið sem er ansi athyglisverð. hvernig ræður hann nú við þetta? er þetta eitthvað svona green eyed monster... Anna, þig vantar þannig "broskall".

drphil
(ég er sko að þykjast vera dr Phil)

(og dj. sem ég á eftir að misnota þessa broskalla!)

Nr. 6 | posted by: Útifrík | 9.06.2006 | 11:40:09 | [+] |

drphil rúlar!

Nr. 7 | posted by: anna | 9.06.2006 | 14:04:44 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web