Þrátt fyrir hvatningar sálfræðingisins um að gera salernið hemilislegra og umkringja sig þar uppáhalds hlutunum úr ófáum utanlandsferðum hans þá fannst Rúnari ennþá erfitt að lifa með þessari langvinnu hægðatregðu, og það skein úr svipnum.
Snilld! Ef ég fæ fleiri svona tillögur mun ég gera þetta að föstum lið á síðunni.
Nr. 3 | posted by: anna |
3.06.2006 | 16:00:26 | [+] |
Eskill var bjartsýnn en þó orðinn nokkuð niðurdreginn, bíðandi eftir að stúlkan sem hann hitti á ölstofunni hringdi. Hann hafði rétt henni nafnspjaldið sitt þar fyrir rúmri viku og sagt henni að slá á þráðinn þegar hún væri til í að fara með honum út á lífið, hún hafði svarað "When hell freezes over" Nú var bara að bíða eftir hagstæðum veðurskilyrðum.
Vá nú brá mér. Hélt kannski að þú værir strákurinn sem strauk yfir rassinn á mér síðast þegar ég var á Ölstofunni, árið.. 2004.
Nr. 8 | posted by: anna |
3.06.2006 | 17:06:05 | [+] |
Víglundur hafði treyst konu sinni, hún sagðist sko gott vel hafa vald á skærum, hann hafði ekki haft hjarta í sér tl að banna henni að klippa sig en nú sá hann eftir væskilshættinum, hann varð að fara að læra að standa með sjálfum sér.
Og þarna sat hann fyrir framan spegilinn með þennan leiða svip og þorði ekki að líta upp.
Anna lofaði að hringja. Hvar getur hún verið? [Sigh]
Hún ætlaði að bjóða mér í mat með krökkunum og ég er einn af þeim sem koma alltaf á réttum tíma.
Ég er enginn Júlli.
Ef hún hringir ekki bráðum, fer ég hreinlega að gráta.
Ég þarf svo að tjá mig um tilfinningar mínar.
Nr. 14 | posted by: anna |
3.06.2006 | 18:07:08 | [+] |
Það þarf engan texta þarna, boblan er tóm. Kallar sem eru svona á svipinn eru ekki að hugsa neitt. Já, það er hægt, kallar geta það. Það kemur með æfingunni skilst mér.
Í þessari senu byrjar Bill Murray reyndar á að segja:
"Why don't I start. The simplest way to put it: I have problems."
Nr. 16 | posted by: anna |
3.06.2006 | 18:33:12 | [+] |
"Hún er enn að tala. Af hverju ætli ég heyri aldrei hvað hún er að segja. Best að segja já núna.... Ætti ég að þora að líta á klukkuna, Formúlan hlýtur að vera að byrja."