www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
I'm cool with that
Þriðjudagur, 06. júní 2006

Þá eru börnin búin að hitta Ken. Frumburðinum fannst magnað að hann heitir Ken því hún er að lesa bók sem er eftir mann sem heitir líka Ken. Hún tók hann í þriðju gráðuna og Ken kom bara nokkuð vel út.

Frumburður. How old are you?
Ken. 37
Frumburður. Have you been married?
Ken. No.
Frumburður. Do you have any kids?
Ken. No.
Frumburður. Why?
Ken. Never found the right woman.
Frumburður. What makes you think my mom is the right woman?
Ken. Sometimes, you just know.
Frumburður. Are you fucking with us?
Ken. I most certainly am not.
Frumburður. Because if you are, I will kill you.
Ken. That is... good to know.
Doddi. And when you're dead, you'll never fuck with us again.

Ég held að börnin hafi erft þetta hræðslu-vekjandi-element frá mér.

Doddi tók honum með miklum fyrirvara og hans þriðja gráða var töluvert öðruvísi en frumburðarins.

Doddi. Do you have a dog?
Ken. Nope.
Doddi. DEM IT! Do you like the Simpsons?
Ken. Yup.
Doddi. Who's your favorite?
Ken. Homer
Doddi. YESS! Do you love my mom?
Ken. Yes I do.
Doddi. Are you gonna make her cry?
Ken. I will try my best not to.
Doddi. Because I'm not cool with that.
Ken. I understand.
Doddi. Will you get married?
Ken. I don't know.
Doddi. Do you like the arrested of the development?
Ken. Yes, very much.
Doddi. Who is your favorite?
Ken. Tobias and Buster.
Doddi. I'm cool with that. Do you want babies?
Ken. Yes.
Doddi. Will you make me babysit?
Ken. No.
Doddi. Hann er cool mamma, þú mátt eiga hann.

Ekki flókið.

Þessu næst sýndi Doddi Ken nýja hlaupahjólið sitt - sem er vélknúið og Ken, verandi frummaður, varð heillaður og spurði hvort Doddi vildi koma út að leika. Male bonding er stundum svo fallegur hlutur. Þegar þeir komu inn fór Ken beint á netið að skoða hlaupahjól með tvöþúsund hestafla vélum.

Frummaður.

Börnin eru farin aftur til pabba síns og ég verð að hætta að skrifa núna, Ken er svo refsingarglaður að ég held að hann hljóti að hafa verið hátt settur hjá spænska rannsóknarréttinum í fyrra lífi.

Ég er allavega farin að styðja mig við skíðastafi sem ég fann niðrí geymslu. Verður spennandi að sjá hvort hann elskar mig nóg til að redda hækjum..


| anna | 22:04 |
comments

Ég er að spá í að taka þig mér til fyrirmyndar. En kannski fyrst þegar ég kemst í sumarfrí, fyrr hef ég kannski ekki tíma til að skrifa. Fj. vinna sem alltaf þarf að trufla mann! Jú, ég held ég verði að vera í sumarfríi því annars bara dett ég í dagdrauma öllum stundum og það má ekki í vinnunni.

Nr. 1 | posted by: Útifrík | 6.06.2006 | 22:20:14 | [+] |

Ég get ekki annað en mælt með því að allar konur kynnist a.m.k. einum Ken um ævina. wink

Nr. 2 | posted by: anna | 6.06.2006 | 22:42:11 | [+] |

Eða Kalla. Það er náttúrulega næsta nafn í stafrófinu. Þannig séð.

Nr. 3 | posted by: Kalli | 6.06.2006 | 23:02:34 | [+] |

Úlala... maður bregður sér af bæ yfir helgina og þegar heim er komið er bara allt mögulegt og ómögulegt búið að gerast... bitter barbie komin með ken, igor í heavy mokstri og skellir sér í rúmið í moldargallanum... fjölskyldumeðlimir hittast í kommentum um einhver lyf og nú er ken meira að segja búinn að hitta börnin. Vá segi ég nú bara... hef skemmt mér VEL við að lesa skrif undanfarinna daga colgate

Nr. 4 | posted by: Sigga | 6.06.2006 | 23:07:20 | [+] |

Já, ég segi nú bara að ég er að spá í stofna svona mjólkurútburðarfélag. Hef heyrt þess getið að það gefi vel í öðrum löndum wink

Nr. 5 | posted by: Simmi | 6.06.2006 | 23:31:39 | [+] |

Þessar yfirheyrslur barnanna minntu mig óneitanlega á yfirheyrslur föður þíns þegar einhverjir nýir komu með okkur heim á sínum tíma. Þá ekki endilega strákar. En ég man hversu ítarlegt eyðublaðið var sem allir strákar þurftu að fylla út og skila pabba þínum í fjórriti alveg þar til þú varst tvítug. Börnin hafa á efa erft þetta frá afa úlf.

Nr. 6 | posted by: eddið | 7.06.2006 | 19:42:58 | [+] |

Það er ekkert skrítið þó maður sé eins og maður er..

Nr. 7 | posted by: anna | 7.06.2006 | 19:44:46 | [+] |

Very good site. Thank yousmile
http://buy-accutane.org/product.php?category=Skin+Care&item=Accutane Buy Accutane

Nr. 8 | posted by: Buy Accutane | 27.02.2007 | 8:05:18 | [+] |

Very good site. Thank yousmile
http://buy-accutane.org/product.php?category=Skin+Care&item=Accutane Buy Accutane

Nr. 9 | posted by: Buy Accutane | 27.02.2007 | 8:05:36 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web