Fimmtudagur, 22. júní 2006
Fyrir ca mánuði síðan var ég að tala við mann sem ég þekki mjög vel og búin að þekkja síðan ég var unglingur. Hann spurði hvort ég væri ennþá ein. Ég sagði "já, hef ekki verið með manni síðan í fyrra". Þá spurði hann hvort það væri allt í lagi með mig. Ég sagði já, þetta væri nú ekki mikið mál - mjög svipað og að vera giftur.
Í dag spurði annar maður mig að því sama og hann fékk sama svar - í fyrra. Hann spurði hvort ég væri ekki að verða geðveik og ég sagði nei.
Kannski er ég að verða geðveik og veit ekki af því.
Það er alltaf möguleiki.
Mér finnst "í fyrra" mjög gott mál en hinsvegar er "í hittifyrra" orðið scary reply - sem þýðir að ég þarf að gera ráðstafanir fyrir gamlárskvöld.
Eða.. kvöldið fyrir gamlárskvöld.
Það má ekki vera hjartasjúklingur.