Fimmtudagur, 15. júní 2006
Ég er á þriðja stílnum sem segir mér að ég komi til með að þurfa tvo í viðbót til að verða ekki geðveik úr sveppaveseni.
Komin með liðverki.
Á eftir að stytta buxurnar hans Dodda.
Á eftir að semja ræðu.
Á eftir að klára allt varðandi gjöfina (sem verður bara betri og betri - og hún var góð fyrir!)
Æfa mig að brosa þannig að varirnar á mér springa ekki.
Æfa mig að muna að ég er að losna við bólurnar.
Æfa mig að kópa þó ég sé uber strung out.
Bera á mig Dove Summer Glow svo ég verði ekki eins og framliðin í kjólnum.
Mér er smá illt í maganum.
Setja inn meta á síðu.
Afrita templates.
Senda inn tilboð.
Mér er illt í brjóstunum.
Dusta Margeiri útí vegg.
Ganga frá í eldhúsinu.
Þrífa inná baði.
Sofa.
Borða.
Fara í bað.