Fimmtudagur, 08. júní 2006

Ken er soldið fúll útí mig núna. Eða.. hann er eiginlega brjálaður. Búinn að loka sig inná baði með Margeiri og svoleiðis gerir engin að gamni sínu.
Fyrr má nú vera þörfin fyrir að forðast mig. Hann getur náttúrlega ekki farið út.. þar bíður hans bara endaþarmsleit og önnur óþægindi af svipuðum toga. Mér finnst ónáttúrulegt að nota riffla á þennan hátt en samt pínu sætt þetta með sápukúlurnar.
Honum fannst ég vera einum of kát að sjá að Lifur er komin aftur. Þá veit ég það. Ken er afbrýðisamur og höndlar ekki að ég er í fjarbúð með öðrum manni.
Það hlaut að vera eitthvað að honum.
Ekki bara það.. Lifur er afbrýðisamur og höndlar ekki að ég sé í sambúð með öðrum manni.
Karlmenn.
Lifur bað mig að skila kveðju til Frú Vigdísar. Geri það á eftir, heyrist Larry vera á fullu í refsingum þarna inni. Hann galar eins og hani. Mér finnst það spes.