Miðvikudagur, 07. júní 2006
Rétt áðan kom komment á síðuna mína sem mér finnst hreint út sagt alveg magnað. Það birtist hér með í heild sinni:
-------------------
Það var að renna upp fyrir mér ljós. Núna.
Ég er búinn að uppgötva hvaða aðferðafræði svokallaðir fávitar nota við að hámarka ávinning sinn af ástinni.
Ég er ekki frá því að þessi uppgötvun sé hæf til nóbelsverðlauna. Þó ég segi sjálfur frá.
Ég nefndi hér áðan í færslu númer 43 að lýsing þín á ástinni sé ekki ólík lýsingu á hlutabréfamarkaðnum. Á þeim markaði eru notaðar margvíslegar aðferðir við að hámarka arð af fjárfestingu.
Ein þeirra kallast "Riding the wave".
Í grófum dráttum felst í aðferðinni að kaupa hlutabréf rétt áður en þau hækka (öldubotn) og selja þau rétt áður en þau lækka (öldutoppur). Tæknigreining, eins og ofan er lýst, er notuð við þessa aðferð. Aðferðin er ekki áhættulaus en gefur gífurlega ávöxtun ef vel tekst til.
Fávitinn notar sömu aðferð. Hann fer inn þegar sálartetur konunnar er í tætlum (öldubotn), byggir upp ástina og rétt áður en hámarki ástarinnar er náð (öldutopp), beilar hann út og stekkur á næsta fórnarlamb.
Þannig nær hann mest út úr ástinni yfir líftíma sinn.
Rétt er að benda þeim fávitum á sem þetta lesa að eins og á hlutabréfamarkaðnum er þessi aðferð ekki áhættulaus. Á hverjum tíma eru alltaf einhverjir sem verða ástinni að bráð.
-posted by: igor
-------------------
Maðurinn er að meika svo mikið sense að það er ekki fyndið.. svo þegar konur eru litlar og bláar og þurfa alveg roooosalega á ást að halda - er rétt að taka tíma í að byggja sig upp í friði til að verða ekki fávita að bráð.
Don't let'em ride the wave!