www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Engin friður
Fimmtudagur, 08. júní 2006

Við Ken erum búin að sitja við opnanlega stofugluggann í allan morgun og fylgjast spennt með ruglinu sem á sér stað í garðinum.

Þetta ætlar að hafa afleiðingar sem ekki var nokkur leið að sjá fyrir, ég ætlaði bara að setja niður eitt tré.

Skilst á Lögreglunni að Geirfinnur sé fundinn, Jimmy Hoffa, Lindberg barnið og Dustin Hoffman.

Don't ask.

Tvær litlar flugvélar hafa verið dregnar út úr því sem nú virðist vera orðið náma og hluti úr geimferjunni Challenger. Frú Vigdís kíkti við áðan og fékk lánaða smokka - sagði okkur að Larry King hefði það fyrir satt.. að rústir sem fundust innarlega í námunni séu týnda borgin Atlantis og í litlum kistli hefðu þeir fundið fjársjóð Svartskeggs sjóræningja. Ég lamdi í upphandleggin á Ken, af hverju gat hann ekki fundið fjársjóðinn? Dísus. Síðasta hálftímann hafa menn í sótthreinsigöllum verið að bera hljómplötur með Liberace þarna uppúr, í gámavís. Hvað gaf maðurinn eiginlega út margar plötur? Maður spyr sig.

Ef þessi hola er ekki orðin níunda undur veraldar, þá veit ég ekki hvað.

Meina, fyrst skrítna konan í blokkinni á móti náði að vera áttunda.

Það er búið að handtaka litla feita ljóta kallinn sem býr á jarðhæðinni. Ég veit ekki fyrir hvað - kannski af því hann er grunsamlegur. Hann er það. Mér hefur alltaf fundist það. Ég er allavega búin að læsa Margeir inná baði svo þeir finni hann ekki, mér þykir vænt um kvikindið - svo er hann líka duglegur að skúra - þegar hann er motivated.

Jæja, ný sending af landgönguliðum uppá þaki og þá er ekki langt í að þeir láti sig síga niður eftir húsinu eins og köngulær í svörtu böndunum sínum. Má ég þá biðja um Portúgala..

Ætla að klæða mig í föt.


| anna | 12:46 |
comments

Ken? Jimmy Hoffa? Ég sem hélt að ég væri súr

Legg til að við skellum Önnu.is í sjónvarp eða útvarp svo fleiri geti fengið að njóta eðal súrmetis.

Southpark? Robot Chicken? Amatúrar chococat

Nr. 1 | posted by: Andri | 8.06.2006 | 12:56:24 | [+] |

fundust greindarvísitölustigin mín í holunni? what

Nr. 2 | posted by: baun | 8.06.2006 | 13:32:58 | [+] |

hahaha

Ekki gleyma Huga, hann er nú partur af þessu öllu saman og Ken. Ken er æðislegur. Hann bara er það.

Nr. 3 | posted by: anna | 8.06.2006 | 13:33:10 | [+] |

Já þeir fundu háa greindarvísitölu þarna, skilst mér á Frú Vigdísi, en hún er náttúrlega bara að lepja allt upp eftir Larry..

Nr. 4 | posted by: anna | 8.06.2006 | 13:35:29 | [+] |

Léttir að sjá að líf þitt gengur sinn vanagang mín kæra...
Geturðu borið þessari Frú Vigdísi kveðjur mínar?

Nr. 5 | posted by: lifur | 8.06.2006 | 13:40:01 | [+] |

LIFUR! HVAR ERTU? ERTU KOMIN HEIM?

Er ég ennþá eina Anna Laufey í lífi þínu? Saknarðu mín? Ég er búin að sakna þín átakanlega.

Nr. 6 | posted by: anna | 8.06.2006 | 13:41:29 | [+] |

hádí!
Hvað, á ég bara að líta fram hjá þessu Jude-shaped lífformi þínu og láta sem ekkert hafi gerst? Ha? ha?
Neihei! Ég ætla sko að biðja frú vigdísi um að koma með mér í fjarbúð og er viss um að hú...það mun þiggja boð mitt með þökkum!

Nr. 7 | posted by: lifur | 8.06.2006 | 13:53:45 | [+] |

Láttu nú ekki svona Lifur. Frú Vigdís er karlmaður. Förum til ráðgjafa. Ætlarðu að ganga út eftir allan þennan tíma? Á ekki að gefa manni séns?

Nr. 8 | posted by: anna | 8.06.2006 | 13:56:59 | [+] |

hehe gaman að vera heima aftur!
verð að fara að ydda á mér þumalfingurinn...
þér eruð augljóslega ofarlega á mínum lista eins og alltaf...

Nr. 9 | posted by: lifur | 8.06.2006 | 14:08:20 | [+] |

Gott að fá þig heim aftur!

Þú ert jafn ofarlega á mínum. Þetta með Ken er bara eitthvað tímabil, ég held ég sé komin á breytingaraldurinn eða eitthvað. Þú hlýtur nú að sjá í gegnum fingur þér með það. Þú veist vel að ég hendi honum út um leið og ég er búin að sjúga úr honum allan lífsvilja.

Áttu rækjur?

Marvin Gaye eða Ray Charles?

Nr. 10 | posted by: anna | 8.06.2006 | 14:11:16 | [+] |

ok, þú mátt halda leikfanginu þínu eitthvað áfram víst hann er ekki endurskoðandi.

Ég veð náttúrulega í rækjum og alls kyns skelfiski eins og fyrri daginn... ætti í raun að heita Lifur Mokveiði Líndal.

Svarið við tónlistarspurningunni er að sjálfsögðu Lúdó-stefán!
Við aftur erum á byrjunarreit beibí!
Húrraaaaahh fyrir Eiríki Haukssyni!

Nr. 11 | posted by: lifur | 8.06.2006 | 14:38:00 | [+] |

eins og sést, eins og sést, eins og sést... þá er ég auðvitað eirikur hauksson. Erum við ekki öll pínu eikar einhvers staðar í hjartanu? Ég er líka soldil helga möller þessa dagana, en ekkert meiri pálmi en hver annar íslendingur.

ef þú yrðir, hvort myndirðu fara í þrísleik við eirík og pálma eða halla og ladda?

jú, díll með passasama manninn. Svo lengi sem þú lofar að henda honum fram af svölunum um leið og þú færð leið á honum... margeir hefur svo gaman að því að skrapa upp fólk af bílastæðinu og jarða það í blómabeðinu.

Nr. 12 | posted by: lifur | 8.06.2006 | 15:03:16 | [+] |

Merkilegast finnst mér að Lindberg barnið sé fundið þar sem það var ekki týnt. En það sýnir nú bara hversu mikil undrahola þetta er. Ég sit spennt yfir beinni dagskrá úr garðinum þínum á CNN, segðu Ken að draga fyrir inni á baði, ég sá aaaðeins of mikið!

Nr. 13 | posted by: María | 8.06.2006 | 15:08:39 | [+] |

Það furðulega er að þeir eru líka með beinar útsendingar frá holunni á Al Jazeera - arabískan mín eitthvað farinn að ryðga en mér finnst eins og þeir séu að tala um Aladin...já, nema það sé Bin Ladin....en eins og ég segi arabískan mín er eitthvað farin að ryðga aðeins frá því ég var skiptinemi....

Nr. 14 | posted by: Simmi | 8.06.2006 | 15:22:55 | [+] |

Lifur. You have yourself a deal. Ætlar þú þá að halda áfram að vera fjarbýlingur minn sem ég er að deyja því ég elska svo mikið? Og þrái. Líkamlega.

María. Nei þetta er nefnilega algengur misskilningur. Það héldu margir að Lindberg barnið væri ekki týnt. Það var áður en þeir fundu það.

Simmi. Ég held að ég hafi séð Bin Laden þarna úti og ég held að hann sé á amfetamíni.

Nr. 15 | posted by: anna | 8.06.2006 | 16:13:37 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web