www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Doddi 8 ára
Fimmtudagur, 22. júní 2006

Ég samdi við Dodda um að hann myndi koma uppí rúm til mín að kúra um leið og hann vaknaði í morgun og hann stóð við það. Við kúrðum heillengi saman og það var yndislegt. Um hádegið fór ég að kaupa afmælisgjöfina. Þegar ég kom inn í Nexus sá ég strax hvað myndi lýsa andlit sonar míns upp - svo ég keypti það.

millenium.jpg

Hvað er undir teppinu?

millenium2.jpg

In shock.

millenium3.jpg

MILLENIUM FALCON!

Það er ekkert eins gaman eins og að gleðja þá sem maður elskar.

Nú ætla ég að baka súkkulaðiköku!


| anna | 14:01 |
comments

Til hamingju með daginn Doddi wave

Nr. 1 | posted by: Simmi | 22.06.2006 | 14:06:57 | [+] |

Innilega til hamingju með litla sjarmatröllið!

Nr. 2 | posted by: Sigga | 22.06.2006 | 14:13:38 | [+] |

May the force be with him happy

Nr. 3 | posted by: Kalli | 22.06.2006 | 14:14:23 | [+] |

Til hamingju með sæta stóra strákinn þinn Anna mín wave

Nr. 4 | posted by: Harpa | 22.06.2006 | 14:39:58 | [+] |

Geeeeeðveik afmælisgjöf smile

Nr. 5 | posted by: Hugz | 22.06.2006 | 15:22:11 | [+] |

Til hamingju með daginn Doddi happy

Þú gætir ekki fengið betri dag - frábært veður, mögnuð gjöf... Njóttu vel smile

Nr. 6 | posted by: Þór | 22.06.2006 | 15:25:25 | [+] |

´Til hamingju með Dodda þinn colgate

Nr. 7 | posted by: Elín | 22.06.2006 | 15:40:05 | [+] |

Til hamingju með Dodda Dúllu smile

Nr. 8 | posted by: Atviksorða-Anna | 22.06.2006 | 17:15:11 | [+] |

Til hamingju með drenginn. Ekkert smá flott gjöf! smile

Nr. 9 | posted by: farfuglinn | 22.06.2006 | 17:16:00 | [+] |

Takk, takk, takk! smile happy

Nr. 10 | posted by: anna | 22.06.2006 | 17:29:41 | [+] |

Meiriháttar! Til hamingju smile

Nr. 11 | posted by: Útifrík | 22.06.2006 | 19:40:48 | [+] |

Til hamingju með daginn Doddamann clown

Nr. 12 | posted by: Lindablinda | 22.06.2006 | 21:12:27 | [+] |

hjartanlega til hamingju með sæta strákinn þinn wave

Nr. 13 | posted by: baun | 22.06.2006 | 21:41:30 | [+] |

Til hamingju með daginn, Doddi og til hamingju með strákinn, Anna.

Nr. 14 | posted by: igor | 22.06.2006 | 22:32:57 | [+] |

Mamma, mamma, sjáðu þetta! Og sjáðu þetta! Er þetta ekki cool skip? Sjáðu þetta! Og sjáðu það kemur ljós!

Mamma, sjáðu þetta, það er hægt að skjóta, finnst þér þetta ekki cool? Þetta er klikkað flott skip mamma, sjáðu, hérna er hægt að fela kalla og svo kemur hljóð þegar maður kveikir hér og svo er svona stjórnklefi fyrir einn kall og hérna eru fæturnir þegar það lendir!

Ég er ógeðslega ánægður að þú komst með þetta skip handa mér, það er klikkað flott, finnst þér það ekki cool mamma? Vá þetta er svakaleg græja maður, úff.. ógeðslega þungt, úff, viltu.. viltu aðeins halda á þessu. Hva.. hvað gerðist? (heyrðist skjótuhljóð og hann fattar hvað gerðist) COOOOL! MAMMA, ÞETTA ER SVAKALEG GRÆJA!

Jóhanna, Jóhanna, sjáðu, ég ýti bara á þennan takka og þá kemur svona skjótuhljóð, finnst þér það ekki geðveikt cool?

Þetta er búin að vera mjög góður dagur. smile

Nr. 15 | posted by: anna | 22.06.2006 | 23:23:05 | [+] |

vá. ég verð að muna eftir þessarri græju þegar Finnur verður 7!!! melodramatic

Nr. 16 | posted by: hildigunnur | 22.06.2006 | 23:59:27 | [+] |

Getur ekki tapað! happy

Nr. 17 | posted by: anna | 23.06.2006 | 0:21:15 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web