www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes guestbook ruv universe
Anna, hættu að blogga? - Blámerkt færsla
Sunnudagur, 11. júní 2006

blah.gifHvað er nú þetta?

Ha?

Þetta er ég - drawing a diagram.

Hér til hliðar er mynd tekin af júní útgáfu bloggsins míns. Ég er búin að merkja færslurnar með táknrænum litum til að auðvelda fólki að greina á milli sannleika og skáldskapar. Færslur sem eru bláar eru þær sem ég held mig mest megnist við sannleika, ef það er eitthvað til sem getur kallast sannleikur. Færslur sem eru svartar eru ekki skrifaðar af mér. Færslur sem eru rauðar eru skáldaðar og þá er ég að tala um frá a til ö. Sannleiksinnihaldið er nákvæmlega ekki neitt. Ja.. fyrir utan að mér finnst Bentley flottir bílar. Ein færslan er blá og rauð því þar fer ég úr fiction yfir í sannleika.

Ég hef ákveðið að gefa fólki inn með teskeið hversu mikið af því sem ég skrifa er satt og hversu mikið af því er fiction frá upphafi til enda. Undanfarið hef ég verið að fá undarlegt feedback frá fólki sem ég þekki og þekki ekki. Sumir hafa nefnilega áhyggjur af því að ég sé að bera sálu mína á netinu. Segir mér hversu góð sögumanneskja ég er. Ég get búið til eitthvað úr engu og fólk virðist hafa gaman að því að lesa það. Kannski er það ekkert gaman lengur þegar það veit að það er skáldskapur, well.. það skiptir mig eiginlega ekki máli.

Ég reikna reyndar með því að fólk sjái almennt hvenær ég er að bulla.

Ef ég ætti að bera sálu mína á netinu þá myndi ég segja frá hlutunum sem snerta mig í daglegu lífi. Hlutum sem snerta ekki bara mig heldur annað fólk sem ég umgengst - og ég geri það ekki. Þessvegna er anna.is að stórum hluta eins og hún er.

Fiction.

Það blasir auðvitað við mér að ég myndi t.d. aldrei á ævinni bjóða manni inn til mín og fara í sturtu með honum, þó svo ég yrði alveg skuggalega ástfangin af honum við fyrstu sýn. Af því mér finnst þetta svo far out.. reikna ég með því að aðrir - sem lesa mig - sjái það líka og finnist það jafn absúrd/fyndið og mér.

Undanfarið hef ég dregið mig í hlé vegna rófukattarins, hef ég snúið mér meira að því að lifa þessu fiction lífi - á milli þess sem ég þreyji þorrann í raunveruleikanum. Af því ég hef frá nákvæmlega engu að segja.. skrifa ég skáldskap. Hugi nágranni minn tók þátt í þessu með mér á tímabili og mér fannst þetta alveg ofboðslega gaman. Hann fann upp nýja hluti sem ég spann utanum og ég fann upp nýja hluti sem hann spann utanum. Mest megnis var þetta gert án samráðs, þó lítill hluti hafi orðið til á msn.

Rétt áðan var ég að komast að því að það var hann sem myrti Ken. Ég er svo hrekklaus manneskja að ég veit að það hlýtur bara að hafa verið óvart. Hugi er ekki þesslags maður að hann færi að drepa saklausa menn í sjúkrarúmum. Ég held ekki. Veit samt að hann á flugnaspaða sem mér finnst grunsamlegt. Þarf að hugsa þetta mál aðeins. Takið eftir hvað ég tek þessum fréttum með miklu jafnaðargeði.

There's plenty more where that came from og ég efast ekki um að við Hugi gætum tekið aðra syrpu af þessum toga ef við verðum í stuði til þess áfram. Má ég minna á að það er ennþá (fictional) hola í garðinum mínum sem er ekki búið að ganga frá. Týnda borgin Atlantis og fleira skemmtilegt að ógleymdri Frú Vigdísi.

Þó ég skrifi stundum einlægar hugleiðingar um mig, samskipti fólks eða lífið sjálft og hvernig mér líður þá er þetta blogg ekki raunsæ mynd af mínu lífi. Ég gerist svo djörf að ætla fólki það sense að það fatti að það er að lesa sögu þegar það les þessa síðu. "Höfundurinn" hefur vissulega sína aðkomu að málinu en það er víkjandi. Ekkert af því sem ég hef skrifað frá sjálfri mér á þessa síðu er eitthvað sem ég get ekki staðið undir og það kom mér í raun á óvart þegar ég var í dag beðin um að hætta. Ekki einu sinni heldur tvisvar. Annarsvegar manneskja sem þekkir mig nánast ekki neitt, hinsvegar manneskja sem ætti að þekkja mig betur en hún gerir. Það er að hluta til my bad.

Já. Þetta er spurning.

Á ég að hætta?

Á ég að hætta vegna þess að fólk heldur þetta og hitt um mig sem er rugl? Fyrirgefiði.. ég þekki engan sem er svo hreinn og beinn að engin heldur ekki eitthvað rugl um viðkomandi. Fólk er stöðugt að vega og meta aðra útfrá því hvernig fólk klæðir sig, segir, talar, hreyfir sig. Ef ég met mig útfrá anna.is og því sem mér finnst greinilega vera fiction og því sem mér finnst greinilega vera "satt", myndi ég segja að ég væri fullorðin kona með húmor sem á tvö börn, vinnur mikið og langar að eiga gott líf. Hún hefur stundum áhyggjur af því að hún finni engan til að eyða lífi sínu með, en það líður oftast fljótt hjá og hún heldur áfram með það sem hún er að gera. Já og hún er á lyfjum til að losna við bólur sem hún fékk á gamals aldri.

Ekkert af þessu eru upplýsingar sem fólk getur ekki fengið hjá sínum local slúðurbera með réttu tengingarnar - ef það kærir sig um.

Reyndar voru rökin hjá annarri manneskjunni að ég ætti að hætta að skrifa "frítt" og fara að fá borgað fyrir það. Í sannleika sagt eru ekki nógu miklir peningar í að skrifa freelance í blöð til að ég sækist eftir því og auk þess þarf ég þá að beygja mig undir allskonar bögg eins og deadlines og annað í þeim dúr. Hér þarf ég þess ekki. Ég ræð hvað ég birti og hvenær ég geri það.

Þeir sem ég hef kynnst í gegnum bloggið mitt er oftast fólk sem ég á skap með og finnst auðvelt að umgangast - a.m.k. þeir sem ég hef hitt. Það er kosturinn við að blogga - það getur engin feikað heila heimasíðu. Þó ég bulli mikið þá er alveg hægt að greina hvernig karakter ég er - þó ég sé ekki nákvæmlega eins og ég skrifa down to the last detail.

Fyndið því á sumum sviðum er ég nákvæmlega ekkert eins og fólk reiknar með því að ég sé. Það er svona. Silvía Nótt er líka ekkert eins og Ágústa Eva. Hún er að leika sér - ég er að leika mér líka.

Ég hef sans fyrir fólki og hvernig það bregst við ýmsu áreiti. Þannig virðist ég geta skrifað trúverðugan texta þó hann sé að drukkna í ótrúverðugum texta. Og mér finnst alveg ofboðslega gaman að leika mér á þann hátt. Nú er mér sagt að þetta skaði mig, skaði "ímynd" mína og að ég eigi að hætta.

Já. Magnað.

Eftir sit ég með eftirfarandi spurningar:

a) Hver er ímynd anna.is?
b) Hver er ímynd Önnu?
c) Er bloggið að "skaða" mig?
d) Á ég að hætta að blogga?


| 21:22 |
comments

Erfiðar spurningar en ....
a) Hver er ímynd anna.is?
Mjög, mjög góð. Held að allir þínir föstu lesendur sanni það.
b) Hver er ímynd Önnu?
Ímynd Önnu sjálfrar er líka góð. Þeir sem ekki greina mun á fiction og "raunverulegum" færslum haldast ekkert mjög lengi við, held ég..eða hvað?
c) Er bloggið að "skaða" mig?
Ekki ef þú hefur enn gaman að því að blogga. Ef þú ert hins vegar farin að blogga bara fyrir okkur lesendurna þá er það spurning
d) Á ég að hætta að blogga?
Af hreinni sjálfselsku segi ég NEI
what really sad

Nr. 1 | posted by: Meinvill | 11.06.2006 | 22:21:34 | [+] |

Persónulega finnst mér að fólki eigi blogga um það sem því sýnist, eða ekki, og búa eins mikið til og því þóknast, eða ekki. Og að enginn eigi að skipta sér af því. Auðvitað sér maður glitta í hina raunverulegu Önnu milli línanna og mér finnst hún einmitt eins og þú segir sjálf:

Ef ég met mig útfrá anna.is og því sem mér finnst greinilega vera fiction og því sem mér finnst greinilega vera "satt", myndi ég segja að ég væri fullorðin kona með húmor sem á tvö börn, vinnur mikið og langar að eiga gott líf. Hún hefur stundum áhyggjur af því að hún finni engan til að eyða lífi sínu með, en það líður oftast fljótt hjá og hún heldur áfram með það sem hún er að gera. Já og hún er á lyfjum til að losna við bólur sem hún fékk á gamals aldri.
Einmitt.

Ímynd Önnu, ég veit það ekki, eða önnu.is, hún hlýtur að vera til í huga þeirra sem lesa og þar sem þú ert ekki opinber persóna sem reiðir sig á trúnaðartraust almennings finnst mér hreinlega ekki skipta máli hvað fólk heldur. Eftir því sem ég kemst næst ertu í daglaunavinnu og býrð þar að auki til heimasíður og þar eru það verkin sem tala. Svo ég sé ekki að ímyndin sé eitthvað issue.
Hinar spurningarnar:
c) Nei
d) NEI!
Og takk fyrir mig. Nú vantar svona knúskall, set þennan í staðinn wave

PS.
Annars minnir mig þetta dálítið á viðbrögðin sem Linda er að fá, ég meina, á fólk að fara stunda sjálfsritskoðun á sínu eigin bloggi? Fyrr má nú rota en dauðrota.

Nr. 2 | posted by: Gestur | 11.06.2006 | 22:33:44 | [+] |

Já.. og ef Ken hefði verið for real.. hefði ég líklega haft annað on my mind en að blogga.

smile

Nr. 3 | posted by: anna | 11.06.2006 | 23:21:25 | [+] |

Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem þú þarft að skrifa sérstaka færslu til að minna fólk á það að það sé nú ekki allt 100% sannleikur sem þú skrifar. Þ.e. þú þarft að hafa fyrir því að sannfæra fólk um að þú sért hraðlýgin. Þú hlýtur því að vera sérlega trúverðug manneskja. wink

Skv. töflunni sem fylgdi þessari færslu þá er sannleikurinn 6,5 færslur af 33 færslum í júní eða 19,7%. Það skal tekið fram að þá tel ég mína svartlituðu færslu með og ég viðurkenni það að ég er rosalega stoltur af því að eiga færslu á listanum. Sem þýðir að ég á 15,4% af sannleikanum í júní. toungue

Varðandi spurningar c) og d) þá ert þú eina manneskjan sem getur svarað þeim. Áður en þú svarar d) verður að svara c).

Til þess að svara c) þarftu að vita hvert markmið bloggsins var og er. Þú ein veist hvert markmiðið er. Þú verður þá að spyrja þig t.d. þeirrar spurningar hvort markmiðinu hefur verið náð og ef svo er þá er spurning hvort þú eigir að hætta að blogga eða setja þér ný markmið.

Einnig væri gott fyrir þig að velta fyrir þér, með markmiðið í huga, í hverju hugsanlegur skaði gæti falist og metur hann á móti hugsanlegum ávinning (markmiðinu).

Varðandi a) og b) þá eru þetta erfiðar spurningar. Ímynd er hugmynd um veruleika. Ég efast ekki um að ímynd anna.is skarast við ímynd Önnu en ég myndi skjóta á þetta hér fyrir neðan í fljótu bragði en takist þó ekki of alvarlega*

a) anna.is er fyndin, skemmtileg, flott, klikkuð, áhrifamikil

b) Anna er fyndin, skemmtileg, "censored", einstök, áhrifamikil

Síðan er spurning hvort þessi ímynd sé skaðleg eða ekki?

* m.v. þau viðbrögð sem þú hefur fengið þá er rétt að setja smátt letur hér fyrir neðan um það að ég hef aldrei hitt Önnu sjálfa og dæmi því ímynd Önnu og anna.is algerlega út frá þeim skrifum sem ég hef lesið sem eru eins og að ofan hefur komið fram lygi í 80,3% tilvika. toungue

Nr. 4 | posted by: igor | 11.06.2006 | 23:38:54 | [+] |

fólk er fíbbl

ekki hætta að blogga

plííííízzz!?!?!?! what

Nr. 5 | posted by: hildigunnur | 12.06.2006 | 0:55:58 | [+] |

Ah Igor.. en þú hefur líka lesið annað sem fellur ekki undir 80,3% regluna. smile

Þetta með hvað ég er trúverðug manneskja. Ég held að þarna gætir þú hafa hitt á einn stað þar sem bloggið gæti verið að skaða mig. Fólk fær kannski þá mynd af mér að ég geri ekkert annað en að ganga um ljúgandi alla daga.

Ég hef samt ekki miklar áhyggjur, því ég geri það ekki. Eins og Ford Fairlane myndi segja "what do you think this is? Real life? Ég geri greinarmun á anna.is og real life. Ég grínast - vissulega - segi dramatískar sögur en ég held að ég geri það á hátt þar sem fer ekkert á milli mála að ég sé að bæta við og gera söguna.. já oft furðulegri. Það fer ekkert framhjá fólki og ég tek meira að segja fram að ég sé að grínast, ef ég held að það gæti ekki hafa skilað sér.

Kannski er þetta útrás fyrir það hvernig ég sé lífið - og hvernig lífið gæti verið ef ég fengi að stjórna öllum parametrunum. Eða bara hluta - eins og í samvinnu okkar Huga.

Þetta er, já, ekki í fyrsta skipti sem ég tek fram að ég skrifa bull.

Ein manneskja sem sagði mér að hætta sagði að ég væri hætt að vera til nema á blogginu. Sem var reyndar yfirlýst markmið mitt á meðan ég er á þessum lyfjum.

Kannski enda ég bara sem digital manneskja - eins og Ken. Tjasla honum saman úr runum af 1 og 0 og við lifum hamingjusöm til æviloka.

Kannski geri ég eitthvað annað.

Nr. 6 | posted by: anna | 12.06.2006 | 1:00:22 | [+] |

Ég hef orðið vitni að því að blogg skaði fólk, en það var af því fólk var að segja of mikið um sjálft sig og aðra. Það gildir ekki hér. Ég vona að þú haldir áfram að skrifa á netið, þú gerir það mjög vel.

Þér til skemmtunar ætla ég að játa það opinberlega að ég trúði því að Ken væri til. Gabbaður! melodramatic

Ég trúði að vísu ekki orði af því sem þú sagðir um hann og þessa atburðarás, ég hélt þú hefðir bara kynnst spennandi manni og værir að blogga skáldskap til að koma þeim tilfinningum út. Þú og þínir myndu svo sjá auðveldlega hvað væri satt og hvað væri logið, allir aðrir myndu vera engu nær.

Ojæja... ég er þá ekki eins klár og ég hélt. embarassed

En svo ég geri nú úlfalda úr mýflugu, þá myndi ég segja að þetta væri gjörningur sem er mjög, mjög relevant á Netinu í dag. Fólk er of gjarnt á að trúa því sem það les og hrapa að ályktunum. Ég held að á sama tíma sé fólk líka of gjarnt á að skrifa satt og rétt á opnum vef, sem er í raun mjög óviðeigandi og getur einmitt ótrúlega auðveldlega skaðað höfundinn. Það er í ekki oft sem mér finnast bloggfærslur vera listaverk, en þessi syrpa þín var það alveg klárlega.

Nr. 7 | posted by: Herra BRE | 12.06.2006 | 1:10:48 | [+] |

Þetta er ein af þessum færslum sem neitar að birta komment. Lýsir sér þannig að vafrinn reynir og reynir að senda en ekkert gerist. Þau koma samt inn - þó seint sé.

Nákvæmlega Ása. Þetta á sér oftast uppruna þó sumt sé sjálfsprottið eins og frumbyggjatónlist. hahaha

Að hafa hluti trúverðuga felst í smáatriðunum. Ég lærði það af því að horfa á Reservoir dogs. Þú þarft að vera á staðnum, sjá umhverfið, finna lyktina og geta snert viðfangsefnið. Þá hefurðu allt sem þarf.

The places I've been.. úff

Takk you guys.

Nr. 8 | posted by: anna | 12.06.2006 | 1:11:22 | [+] |

Hætta ?

Ertu friggin' fráðér ?? ( pardon my french ).

Hvert ætti ég að leita fyrir mína daglegu sáluhjálp ? Femin.is ? Eða 907-5555 hjá henni Guddu Gr**u ?

Ég gæti náttúrulega boðið honum Frú Vigdísi í heimsókn, ef ég væri þannig lagður. Sem ég er ekki.

Nei, það kemur ekki til greina að hætta. Ekki séns. Ef þú hættir, þá stofna ég samtök. Og held mikla mótmælafundi fyrir framan Alþingi. Þar sem krafist verður að anna.is verkefnið verði fjármagnað af stjórnvöldum svo bloggið haldi áfram og megi lifa og dafna eins og öllum náttúruperlum er áskapað að gera.

Hætta ? Égbarameinaða... að láta sér detta svona í hug... Látamannfáhjartaáfallha ?

wink

Nr. 9 | posted by: Þór | 12.06.2006 | 1:14:40 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?








smilie happy wink colgate laughing toungue shy

angel embarassed doubt silent sad guilty sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

melodramatic weepy nerd clown chococat







 






recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - utils
links - web