Sunnudagur, 04. júní 2006
Hvað er ég búin að segja oft að ég fer ekki útúr húsi? Hvað er ég búin að spyrja oft hvaða líkur eru á því að það komi hingað maður sem mér líst vel á - að selja harðfisk?
Gulli var steggjaður í gær. Júlía eyddi deginum með mér og ég sagði henni hvað Gulli myndi gera, því ég vissi það. Bróðir hans er veislustjóri með mér og hann var búinn að segja mér frá plani dagsins. Um kvöldið hringdi síminn hjá Júlíu og Gulli sagði henni að þeir væru að fara út að borða og spurði hvort hún vildi ekki koma eftir matinn.
Júlía dró mig með, sagði að það væri ekkert gaman að vera eina stelpan.
Ég var komin heim um klukkan tvö, svaraði kommentum og skrifaði þangað til ég var orðin svo þreytt að ég fór að sofa.
Ég hef greinilega verið mjög þreytt því ég rotaðist gjörsamlega. Vaknaði um klukkan þrjú í dag við það að einhver var að berja á hurðina mína. Við skulum átta okkur á því að hingað kemur aldrei neinn og mér brá svakalega og var viss um að það væri kviknað í húsinu. Ég var í náttkjólnum mínum einum fata, stökk frammúr og reif upp útihurðina.
Jesús kristur og allir englarnir í himnaríki. María mey og allir dýrðlingarnir. Fyrir framan mig stóð sá illskulegasti maður sem ég hef á ævinni séð OG HANN LEIT ÚT ALVEG EINS OG JUDE LAW!
Ég lamaðist. Hann hreytti í mig einhverju á þá leið að það myndi náttúrlega ekki þýða að bjóða mér rækjur, frekar en öðrum Íslendingum en svo leit hann í augun á mér og þá svona.. hann hélt áfram að hreyfa varirnar en það komu engin hljóð. Svo hætti hann að hreyfa varirnar og við stóðum þarna fyrir framan hvort annað í smá stund. Þegar ég fattaði að ég var með opinn munninn og var byrjuð að slefa örlítið lokaði ég honum hægt og svo bara tók einhver ósjálfráð hegðun yfir. Enda var ég ekkert með sjálfri mér.
Lyktin af manninum var viðbjóður. Svona eins og rotnandi úrgangur en eitthvað sagði mér að það gæti líka verið innihald kassans sem hann hélt á. Án nokkurra orða tók ég kassann úr höndunum á honum, setti á gólfið á ganginum og svo leiddi hann inní íbúðina og lokaði á eftir okkur. Fór með hann inná bað þar sem ég kveikti á sturtunni og svo fór ég í sturtu með honum.
Ég veit ekkert sem er eins.. hressandi.. og Jude Law replica sem horfir girndar augum á mig í gegnum vatn sem lekur niður úr hárinu á honum, niður á kinnar.. á bringuna og..
oh jesús.
Þegar við vorum búin í sturtu náði ég í jogging galla sem ég átti hérna, hann klæddi sig í og svo fór með hann niður í hjólageymslu og fann skóflu. Svo leiddi ég hann útí garð og sagði "Búðu til fyrir mig stóra, stóra holu og svo kem ég og sæki þig". Ég er búin að sitja útí glugga að horfa á hann vinna, og það er.. ahhh.. úff. Ef það er góð lykt af honum þegar hann er búinn að reyna soldið á sig - þá hef ég ákveðið.. að ég ætla að eiga hann.
Hann hefur ekki sagt eitt orð við mig síðan hann missti málið áðan. Mér finnst það í raun kostur. Miðað við í hvað ég mun nota hann á heimilinu..