www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
The Wicked Witch of the East - is no more
Sunnudagur, 07. maí 2006

Í gær ákvað ég að fara í Kringluna, átti þangað erindi. Hringdi í Júlíu systur og við ákváðum að byrja í Smáralind og fara þaðan í Kringluna.

Í Smáralind datt ég inn í búðina Coast og sá alveg ofboðslega fallegan kjól. Mig vantar einmitt fallegan kjól til að vera í þegar Júlía giftir sig í næsta mánuði svo ég ákvað að máta. Helvítis kjóllinn var eins og hannaður utaná mig nema það var einn stór galli. Ég á ekkert við hann, þar á meðal skó. Júlía systir sagði mér að við svona kjól væri bara hægt að vera í rauðum skóm.

Þetta er í raun ein af staðreyndum lífsins.

Ég var hinsvegar svo heppin að afgreiðslustúlkan sagði að það væru til geðveikir rauðir skór í ákveðinni búð í Kringlunni þannig að ég bað hana að taka kjólinn frá fyrir mig því þetta var síðasti kjóllinn í mínu númeri. Við fórum í Kringluna og þar komst ég að því að afgreiðslukonan í Coast var engu að ljúga. Ég gekk inní skóbúðina og þessir skór voru það fyrsta sem ég sá. Ég sá einfaldlega ekkert annað í búðinni. Það var eitt par eftir í nr 38.

Í svona skóm.. geturðu ekki tapað. Þetta eru líklega einir fallegustu, mest kynæsandi skór sem ég hef á ævinni séð. Að máta þá var formsatriði því ég ákvað að kaupa þá um leið og ég sá þá.

Fór aftur í Smáralind og keypti kjólinn. Ég er reyndar ekki í honum á myndinni, þetta er náttkjóllinn minn.

Þessir skór eru samt þannig að ég er flott í þeim .. þó ég sé ekki í neinu öðru.

Ég efast ekki um að ég muni, einn daginn, finna mann sem mun staðfesta þessa fullyrðingu.

Nú ef hann getur það ekki, þá hendi ég honum út. Karlmaður sem kann ekki að meta svona skó, og mig í engu öðru, hann á ekki skilið að eiga konu eins og mig.

Það er líka ein af staðreyndum lífsins.


| anna | 13:00 |
comments

fokk mí skór í flottasta klassa!

Forvitnin að drepa mig.... hvernig er kjólinn á litinn? svona fyrst rauðir skór passa bara við hann? Og er stál neðst á hælnum á skónum?


happy

Nr. 1 | posted by: Elín | 7.05.2006 | 15:02:31 | [+] |

Ekkert stál á hælnum en kjóllinn er ljós með blómamynstri, rauðu bandi um miðjuna og tjulli sem gægist niður fyrir pilsið neðst. Ég skal birta mynd af honum bráðlega. Hann er svo fallegur og þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem ég kaupi mér svona ópraktískan kjól. Var þjökuð af samviskubit dauðans eftir kaupin, fór til vinkonu minnar í chrisis heimsókn - mátaði - og hún sagði mér að ég hefði nákvæmlega ekkert til að hafa samviskubit yfir. Maður mætti alveg kaupa sér kjól fyrir brúðkaup og sérstaklega ef maður er veislustjóri. Ég er ekki með samviskubit lengur.

Kjóllinn var reyndar ekkert svakalega dýr. Skórnir hinsvegar.. embarassed

Merkilegt.. því ég var EKKI með samviskubit yfir að kaupa þá! Ekki vott! Enda svosem veit ég að þeir koma til með að vera notaðir aftur og aftur og aftur og aftur og aftur og...

smile

Nr. 2 | posted by: anna | 7.05.2006 | 15:25:38 | [+] |

Þessi frásögn þarfnast myndskýringar. Ok, við fengum ekki bólurnar eða húfuna. En þetta verðum við að fá að sjá. hmmm

Nr. 3 | posted by: Gestur | 7.05.2006 | 15:26:56 | [+] |

Þessum skóm verður stolið.
Verst að maður skartar ekki svona fínum leggjum til að skella þeim á. really sad

Nr. 4 | posted by: Lindablinda | 7.05.2006 | 15:39:25 | [+] |

Vá!
GEÐVEIKIR!

Rauður er uppáhaldsliturinn minn og þessir eru æði.
Hlakka til að sjá veislustjóramynd af þér í allri múnderingunni wave

Ekki vera með samviskubit, þetta er verk sem verður að vinna og myndirnar úr brúðkaupinu verða í albúmum um ókomna tíð, það þýðir ekkert að líta út eins og lufsa..
hi hi hi

Nr. 5 | posted by: Elín | 7.05.2006 | 15:42:14 | [+] |

Vúúúúúú. Nú vantar bara mynd af þér í kjólnum og skónum!
Njóttu vel og lengi. Þú átt það inni. cool

Nr. 6 | posted by: Gestur | 7.05.2006 | 15:44:18 | [+] |

Oh nákvæmlega Elín!

Ég verð líka að viðurkenna að ég er ekkert smá fegin að vera búin að græja fötin fyrir brúðkaupið. Ég hef líklega aldrei átt svona fín spariföt - sem eru ekki svört. laughing

Nr. 7 | posted by: anna | 7.05.2006 | 15:47:13 | [+] |

ef maður kaupir sér rauða skó er eins gott að þeir séu almennilega rauðir

og þessir eru eldrauðir - áttu varalit í stíl? helv. verðurðu flott smile

Nr. 8 | posted by: baun | 7.05.2006 | 15:48:33 | [+] |

Já ég mun birta mynd af mér í kjólnum og alles, but of course! Takk Gestur. smile

Ég á sko varalit í stíl, ójÁ. Fire engine red. Svona dimm-eld-rauður varalitur er eitthvað sem mér hefur alltaf fundist ég þurfa að eiga. Verst að ég verð líklega með of mikinn varaþurrk til að geta notað hann, en kannski ekki.

Ég nota hann þá baaara seinna. wink

Nr. 9 | posted by: anna | 7.05.2006 | 15:53:45 | [+] |

Já Linda iss! Það eru allir leggir fallegir á svona hælum. Það held ég.

Nr. 10 | posted by: anna | 7.05.2006 | 15:59:25 | [+] |

Neibbs. Skal tölta yfir á eftir og sanna þá kenningu mína að mínir leggir passi þeim ekki.

Nr. 11 | posted by: DonPedro | 7.05.2006 | 16:43:41 | [+] |

Pedro: sendu myndir angel

Ég held að þetta leggjaskot hér að ofan sé nákvæmlega svona sem triggerar saxófón- eða gítarsóló í bíómyndum.

Nr. 12 | posted by: Kalli | 7.05.2006 | 18:25:45 | [+] |

Ég er orðlaus

Nr. 13 | posted by: útifrík | 7.05.2006 | 19:01:17 | [+] |

Þeir líta út fyrir að vera hættulegir! clown

Nr. 14 | posted by: Harpa | 7.05.2006 | 20:18:08 | [+] |

Blblblblbl..... mommy... what

Nr. 15 | posted by: Þór | 7.05.2006 | 20:31:08 | [+] |

Klikkaðir skór! Hlakka ekki smá til að sjá kjólinn líka smile

Nr. 16 | posted by: Sigga | 7.05.2006 | 22:25:42 | [+] |

geeeeeeeðveikt, kona! colgate

Nr. 17 | posted by: hildigunnur | 7.05.2006 | 23:40:53 | [+] |

With leggs like these... who cares about the shoes!!! cool

Nr. 18 | posted by: Scoobs | 8.05.2006 | 0:09:37 | [+] |

with shoes like these, who cares about the legs? colgate

Nr. 19 | posted by: Gunnar | 8.05.2006 | 0:19:39 | [+] |
Þessir skór eru samt þannig að ég er flott í þeim .. þó ég sé ekki í neinu öðru.
í þessum skóm og engu öðru embarassed drunk
Nr. 20 | posted by: Hugz | 8.05.2006 | 11:29:30 | [+] |

Hvað? Ertu eitthvað ósammála því eða? toungue

Nr. 21 | posted by: anna | 8.05.2006 | 11:31:53 | [+] |

Nei ég er frekar lítið ósammála því wink

Nr. 22 | posted by: Hugz | 8.05.2006 | 12:10:46 | [+] |

Gunnar skilur hvað ég er að segja. Í svona skóm skipta leggirnir engu máli. DonPedro myndi meira að segja vera flottur í þeim. Ég efast samt stórlega um að við séum í sama númeri. hehe

Nr. 23 | posted by: anna | 8.05.2006 | 12:24:03 | [+] |

Já og þá vitum við það. Hugz yrði ekki hent út..

Nr. 24 | posted by: anna | 8.05.2006 | 12:24:40 | [+] |

Um leið og ég las að afgreiðslukonan í Coast sagði þér frá geðveikum rauðum skóm í Kringlunni vissi ég hvaða skó hún átti við. Ég spottaði þá um daginn úr mikilli fjarlægð og dróst að þeim án þess að ráða við mig. Leiðindaskynsemi kom í veg fyrir að ég keypti þá.

Þú verður að passa þig, ef ég rekst á þig í þessum skóm neyðist ég til að drepa þig. Ég nota nefnilega líka 38.

Nr. 25 | posted by: María | 8.05.2006 | 13:02:25 | [+] |

Ég skil ef þú ert pirruð útí sjálfa þig fyrir að hafa ekki keypt skóna. Ég þekki sjálfa mig orðið svo vel, veit ef ég kaupi ekki suma hluti þá mun ég naga mig í handabökin mánuðum saman og veit líka að ég finn mjög sjaldan eitthvað sem ég hreinlega verð að eignast. Hef tekið upp þá stefnu að í þau skipti sem ég hreinlega verð ástfangin af hlutum þá kaupi ég þá - ef ég hef efni á því.

Vildi svo skemmtilega til að ég hafði efni á þessu. Sem er mun sjaldgæfara en hitt. smile

Nr. 26 | posted by: anna | 8.05.2006 | 13:30:15 | [+] |

Ætli það sé hægt að yfirfæra þessa innkaupareglu á gítarmagnara ?

Nr. 27 | posted by: Hugz | 8.05.2006 | 14:34:02 | [+] |

Ekki nokkur einasta spurning. Spilar þú á gítar? Rafmagnsgítar?

Nr. 28 | posted by: anna | 8.05.2006 | 14:38:46 | [+] |

Jamm, ég held þó að það sé sem betur fer enginn tilbúinn til að drepa mig fyrir gítarmagnara ... eða hvað ? Annars gerir það náttúrulega ekkert annað en að auka innkaupaspennuna happy

Nr. 29 | posted by: Hugz | 8.05.2006 | 14:45:06 | [+] |

Ég þarf bodyguard, það er augljóst.

"And IIIIIIIIIII.. will always love youuuuUUUUuuuaaaai will always love you"

sax solo

Nr. 30 | posted by: anna | 8.05.2006 | 14:51:16 | [+] |

Ég sé fyrir mér Hjalta Úrsus í kvenskóbúð í Kringlunni. Með Oakley sólgleraugu, bluetooth heyrnartól haldandi á rauðum háhælaskóm dauðans ...

Nr. 31 | posted by: Hugz | 8.05.2006 | 15:20:24 | [+] |

Ég var meira að sjá fyrir mér Kevin Spacey og mér er alveg sama hvernig hann er klæddur og hvað hann notar til að tala í símann.

Á meðan hann er þarna.

Nr. 32 | posted by: anna | 8.05.2006 | 15:48:45 | [+] |

Ég held samt sem áður að Hjalti hafi meiri fælingarmátt þegar kemur að hugstola kvenkyns skókaupendum.

Nr. 33 | posted by: Hugz | 8.05.2006 | 16:08:06 | [+] |

ehm.. menn sem eru eins og Hjalti í laginu fæla allt kvenfólk frá - alltaf.

Mig langar ekki í þannig lífvörð. Mig langar í lífvörð sem.. já. Er bara þarna. Og mér finnst gaman að horfa á þegar mér leiðist. Er það ljótt?

Nr. 34 | posted by: anna | 8.05.2006 | 16:13:41 | [+] |

Nei mér finnst það afskaplega fallegt. Svona síðrómantískur fílingur. Ég myndi t.d. treysta Claudiu Schiffer fyrir lífi mínu ... hiklaust cool

Nr. 35 | posted by: Hugz | 8.05.2006 | 16:20:43 | [+] |

Spáðu hvað við yrðum spæld ef Kevin og Claudia myndu draga sig saman.

Annars er Kevin hommi skilst mér. Svo mikil synd.

Nr. 36 | posted by: anna | 8.05.2006 | 16:27:33 | [+] |

Hvað er málið með þig og karlmenn sem heita Kevin?

Nr. 37 | posted by: Kalli | 8.05.2006 | 16:32:45 | [+] |

ha? ha? Hvað ertu að tala um? Eru fleiri en einn?

Nr. 38 | posted by: anna | 8.05.2006 | 16:37:53 | [+] |

Vá hvað þú ert með flotta leggi stelpa, þeir eru hreinlega hannaðir fyrir svona geðveika skó. Ég held reyndar að þú sért með fallegt andlit líka, en miðað við ástand síðustu vikna segi ég nú bara: skítt með allar bólur og hraun í andlitinu.

Þegar þú birtist í dyrunum horfa á allir karlmenn á leggina... kjólinn og svo aftur á leggina wave

Nr. 39 | posted by: Hugskot | 8.05.2006 | 17:21:13 | [+] |

Tjah... við náum nú stundum að horfa ofar... embarassed

Nr. 40 | posted by: Kalli | 8.05.2006 | 17:58:03 | [+] |

Takk Hugskot!

Ég held reyndar að það sé akkúrat öfugt. Ég held að svona skór hafi í gegnum tíðina hannað á mig þessa leggi því ég hef átt nokkur svona pör, en aldrei rauða.

Hælar eins og eru búnir að vera svo mikið í tísku núna, 2-3 cm háir.. ég er eins og róni á þannig hælum, skjögra um, misstíg mig og riða til falls við minnstu golu. Það er ekki fyrr en hælarnir eru komnir upp í 8-12 cm sem ég fer að ná balans.

Er engin sammála mér með þessa lágu hæla? Finnst ykkur ekkert óþægilegt að ganga á lágum pinnahælum?

Nr. 41 | posted by: anna | 8.05.2006 | 21:23:40 | [+] |

Það gengur engin um í pinnahælum Anna. Við göngum allar um í framsóknartúttum. Já. já clown

Nr. 42 | posted by: Harpa | 8.05.2006 | 22:10:30 | [+] |

Þeeeeegiðu

Nr. 43 | posted by: anna | 8.05.2006 | 22:19:18 | [+] |

Anna! þetta hljómar eins og lifrabuff!
EX BÉ colgate

Nr. 44 | posted by: Harpa | 8.05.2006 | 22:32:25 | [+] |

ég ítreka

Þeeeegiðu..

laughing

Nr. 45 | posted by: anna | 8.05.2006 | 22:34:41 | [+] |

Exx bé exx bé exx bé.

Björn Ingi ef ekkert annað stoppar þig kona, Björn Ingi

Nr. 46 | posted by: Harpa | 8.05.2006 | 22:41:01 | [+] |

Ég veit ekki einu sinni hvað þú ert að tala um. Framsóknartúttur, Björn Ingi.. er þetta strippbúlla?

Nr. 47 | posted by: anna | 8.05.2006 | 22:52:36 | [+] |

Arrrrrg allt veistu kona gnasher

Nr. 48 | posted by: Harpa | 8.05.2006 | 22:55:29 | [+] |

Einu sinni gekk ég alltaf á rosalega háhæluðum stígvélum, svona killerboots. Þetta var þegar ég bjó í miðbænum og var því líka mikið gengið.
Þegar ég álpaðist til að fara að vinna í búð (!!) neyddist ég til að kaupa mér lágbotna stígvél. Síðan hef ég ekki stigið á hæla, því ég vandist á þægindin. Er ekki frá því að þó að tær mínar, ökklar og iljar séu sprækari með mig, þá litu leggirnir sjálfir betur út þegar ég var á hælunum. Kannski er það rétt. Hælarnir skapa leggina...

Ég meina, skapa ekki fötin mannin wink

Nr. 49 | posted by: Lindablinda | 9.05.2006 | 6:32:03 | [+] |

Talandi um gítarmagnara, þá fékk ég einn slíkan í afmælisgjöf. Micro-Marshall, sjá http://marshallamps.com/product_range.asp?productRangeId=19

En þessir magnarar eru fáanlegir fyrir peninga, og ekki mikið af þeim. Mér sýnist hins vegar sem þessir skór séu af takmörkuðu upplagi og því til að drepa fyrir.

Samt hef ég frekar tvíbenta afstöðu til hárra hæla. Þótt þeir geri kvenfólk mjög smart á svona stórborgarlegan hátt þá gera þeir þeim frekar erfitt fyrir t.d. að stökkva yfir krókódílasíki og þannig. Einnig hef ég séð fætur föðursystur minnar, sem hún hefur beinlínis eyðilagt af því að ganga á háum hælum allt sitt líf.

Nr. 50 | posted by: Elías | 9.05.2006 | 12:22:55 | [+] |

Og já, ég gleymdi að nefna það, en Anna er mjög snoppufríð kona. Hin fræga mynd af henni sem prýðir þetta blogg nær því alls ekki.

Nr. 51 | posted by: Elías | 9.05.2006 | 12:25:17 | [+] |

djìsess! Mar RÈTT lìtur af thèr og thù ert komin à ìmyndadan Jagùar og ì fokkmìskòfatnad...

Anna Laufey, thad gledur mig ad tilkynna thèr ad...


...thù ert komin med gràa fidringinn!

Thìna skàl beibì, thìna skàl!

Nr. 52 | posted by: lifur | 9.05.2006 | 20:53:13 | [+] |

þeeeeegiðu

Nr. 53 | posted by: anna | 9.05.2006 | 20:54:36 | [+] |

theeeeeeeeeegidu sjàlfadna!

Nr. 54 | posted by: lifur | 9.05.2006 | 20:56:18 | [+] |

Ertu að segja mér að þér finnist þetta EKKI flottir skór? Ha?

Ha?

Ha?

Nr. 55 | posted by: anna | 9.05.2006 | 20:57:40 | [+] |

( )

(thetta ad ofan er augljòslega long og thrungin thogn thess sem ekki vill svara spurningu à lydnetinu).

Nr. 56 | posted by: lifur | 9.05.2006 | 21:00:51 | [+] |

Nú? Viltu senda mér póst þá? Ég þarf að fá svar við þessari spurningu. Þú ert, after all, fjarbýlingurinn minn.

Nr. 57 | posted by: anna | 9.05.2006 | 21:04:38 | [+] |

nei... èg vil thù giskir...

vissirdu ad samkvaemt gomlum logum sem enn eru ì gildi hafa kindur forgang à bìla à Laugaveginum?

Nr. 58 | posted by: lifur | 9.05.2006 | 21:06:18 | [+] |

Þegar ég giska er það alltaf mér í hag.

Hvernig gengur með rækjurolurnar þarna í fjarskanistan? Ha?

Ég er að fara yfirum á geði, er í krónísku vondu skapi. Gleddu mig nú kæra lifur.

Nr. 59 | posted by: anna | 9.05.2006 | 21:11:32 | [+] |

thù giskadir rètt og munt fà senda heim kippu af Mix Light à allra naestu dogum.

Mèr finnst svo gaman thegar thù ert soldid org... en èg get svo sem glatt thig adeins... t.d. med thvi ad segja thèr ad èg var ad fà brèf frà Verkfraedideild HÌ og Margeir er kominn inn ì meistaranàmid ì Samfèlagsverkfraedi... spurning hvort vid getum ekki haft hann àfram ì hjòlageymslunni en hirt nàmslànin hans?

Nr. 60 | posted by: lifur | 9.05.2006 | 21:17:13 | [+] |

Nú fór ég að gráta Lifur. Þú ert svo sætur!

Bara tilhugsunin um að vera laus við Margeir á daginn er svo liberating og svo veit ég að verkfræði er eitthvað sem liggur fyrir honum. Ég stakk reyndar uppá þessu þegar hann var búin að leika sér að því að trekkja upp spiladósina hans Dodda og horfa á bandið rúlla inní draslið í fjóra klukkutíma.

Ég var að geðbilast á þessu lagi í spiladósinni svo ég lét hann draga snúruna úr ryksugunni út og horfa á hana sogast inn aftur. Ég held reyndar að hann sé búin að stela ryksugunni en það skiptir ekki, ég nota hana aldrei hvort sem er.

Oh ég verð svo stolt þegar hann útskrifast Lifur! Og þá getum við farið á fyllerí!

Nr. 61 | posted by: anna | 9.05.2006 | 21:22:15 | [+] |

jà hann sendi mèr mynd af sèr og ryksugunni... quite disturbing really.

Kannski getum vid sòtt um leyfi fyrir thvì ad hann ùtskrifist ì svona mussu med Georg Gìrlausa hatt!!!

Djofulsins stud verdur thetta. Vid forum thokkalega ì "hvor drepst fyrst keppni" ì ùtskriftinni hans!

Nr. 62 | posted by: lifur | 9.05.2006 | 21:25:10 | [+] |

Góði besti.. þú veist að ég vinn þig alltaf í þeirri keppni.

AAAAAALTAF!

Förum frekra í "hvort ælir meira" og bannað að borða sjávarrétti á undan!

Nr. 63 | posted by: anna | 9.05.2006 | 21:29:08 | [+] |

jà aelum à skà!
Maelum aelu ì skòm. Thad er ad segja sà sem fyllir fleiri gestaskò (verda ekki gestir ì thessari veislu annars?) af aelu vinnur!

Èg hef einu sinni aelt hrìsgrjònum thad var allveg einstok tilfinning... getum vid haft grjònagraut ì veislunni?

Nr. 64 | posted by: lifur | 9.05.2006 | 21:32:44 | [+] |

Höfum VELLING! Það er miklu skemmtilegra - eins og að æla marglyttum. Velling með smarties! Það er svo hátíðlegt!

Oh.. ég ætla að vera í rauðu skónum og rauðu plast buxunum og svarta leðurtoppnum með göddunum, finnst þér það kannski of mikið? Getur þú þá ekki verið í latex ponsjóinu? Áttu svoleiðis í rauðu?

Nr. 65 | posted by: anna | 9.05.2006 | 21:36:10 | [+] |

audvitad à èg rautt latexponsjò! Ì hverju heldur thù ad èg hafi verid ì brùdkaupum og jardaforum hingad til?

Vellingur, ertu ad djòka med hvad thetta er gòd hugmynd!!! Hofum helling af vellingi heillin!

Djofull, èg myndi myrda fyrir hnefafylli af vellingi nùna, aetli thetta sè eitthvert disorder?

Nr. 66 | posted by: lifur | 9.05.2006 | 21:41:42 | [+] |

Oh.. þú ert svo SEXY í rauðu!

Ég skal sko búa til velling! Þú veist að ég geri allt fyrir lifrina mína! Skal meira að segja brenna hann soldið við til að flýta fyrir uppköstum!

Disorder? Hvað ertu eiginlega að tala um?

Nr. 67 | posted by: anna | 9.05.2006 | 21:45:01 | [+] |

svo getum vid haft smokk ì vellingnum (smbr mandla) og gefid theirri oldrudu fraenku okkar sem faer smokkinn konfektkassa!

Thetta verdur partì aldarinnar!

Nr. 68 | posted by: lifur | 9.05.2006 | 21:49:34 | [+] |

panta thù salinn og èg panta strippdvergana...

Mà èg stjòrna "eina mìnùtu ì helvìti" leiknum eda finnst thèr rèttara ad einhver af frìmùraravinum hans Margeirs sjài um thad?

Nr. 69 | posted by: lifur | 9.05.2006 | 21:59:40 | [+] |

LIFUR! VIÐ ERUM BÚIN AÐ TALA UM ÞESSA HELVÍTIS DANSANDI STRIPPDVERGA ÞÍNA! Þeir eru ekki að gera það fyrir mig og þú VEIST ÞAÐ!

Getum við bara ekki tekið Margeir úr fötunum?

Hann og vinir hans geta ekkert stjórnað þessum leik. Þú ert bestur í því. Ég hlakka til að sjá hvaða óhugnað þú finnur uppá. Þú ert svo creatívur. Var frábært þegar þú lést höggva fingurinn af Margeiri. Mannstu eftir svipnum á honum? Vá hvað það var fyndið. Það var samt aðeins lengur en mínúta þangað til við gátum heftað hann aftur á. Skal ekki klikka á auka heftum næst. Reyndar er ég að spá í að fá mér loftpressuheftibyssu eins og þessa sem ég sýndi þér á netinu.

Nr. 70 | posted by: anna | 9.05.2006 | 22:05:36 | [+] |

mmmm èg elska hvernig thù segir "loftpressuheftibyssa"...

Nr. 71 | posted by: lifur | 9.05.2006 | 22:06:44 | [+] |

þessi loftpressuheftibyssa fer þér örugglega alveg rosalega vel líka..

Nr. 72 | posted by: anna | 9.05.2006 | 22:10:56 | [+] |

Síðbúið svar: Costner og Spacey embarassed

Nr. 73 | posted by: Kalli | 9.05.2006 | 23:25:43 | [+] |

Og af hvaða ástæðum dettur þér í hug að Costner sé eitthvað sem ég hafi áhuga á???

Nr. 74 | posted by: anna | 10.05.2006 | 8:59:43 | [+] |

Æi... Bodyguard vísunin.

Nr. 75 | posted by: Kalli | 10.05.2006 | 12:57:01 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web