Miðvikudagur, 03. maí 2006
Ég fór til Dr. Acne í dag. Hann gerði mig svo glaða. Hann náði í skrítnu gleraugun sín og rýndi í húðina á mér í gegnum þau og svo sagði hann að þetta gengi ótrúlega vel, ég væri að hreinsa mig mjög hratt og ef þetta héldi svona áfram gæti ég endað á að vera einungis í þrjá mánuði á lyfinu og þegar meðferð lýkur er ég að öllum líkindum laus við bólur for life.
F - O - R
L - I - F - E
Það er of gott til að vera satt en ég ætla samt að trúa því.
Má það alveg.
Hann sagði mér að brúnu ljótu blettirnir í andlitinu á mér myndu bráðum byrja að dofna og að ég ætti eftir að fá nokkrar svona "drottningabólur" (eins og ég kýs að kalla þær) á kinnarnar og á hökuna og þá væri hreinsunin búin. Honum fannst Kleópatra, drottnari hökunnar, tilkomumikil og hældi mér í mikið fyrir stuðningsspítuna (sem ég bjó til úr hrífu) sem ég hafði með til að halda henni uppi. Ég kem til með að fá einhver ör, hann minntist ekki á það en það er augljóst, nóg að líta í spegil í dagsbirtu til að átta sig á því. Hann sagði mér samt að lyfið minnkar örin og til frambúðar. Sjáum hversu vel til tekst. Ég verð í raun bara þakklát að losna við þetta ógeð úr andlitinu þó ég sitji upp með einhver ör. Shit happens.
Á morgun eða hinn fer ég í blóðprufu og þá kemur í ljós hvort lifrin í mér sé að höndla þetta. Ef hún er ekki að kópa, verð ég að hætta á lyfjunum strax. Ég vona að ég geti verið á þeim áfram því í raun finn ég mjög lítið fyrir því að vera á þessu svo ég er með fingers crossed.
Ég var búin að drekka heilu lítrana af vatni í morgun áður en ég fór til hans og hann var steinhissa að sjá mig inná skrifstofunni, tíu mínútum eftir að hann var búinn að vísa mér inná baðherbergi. Hann var búin að halla sér í stólnum, setja fæturna uppá borð og var að spjalla makindalega í símann. Hefur líklega átt von á mér með þetta snemma í næstu viku - miðað við hvernig gekk að pissa síðast.
Ég sagði honum að ég hefði verið að undirbúa mig í allan morgun.
Hann fór inní hliðarherbergið sitt með þvagprufuglasið og þegar hann var að sýsla með óléttuprófið sagði ég "ef það kemur eitthvað jákvætt út úr þessu hjá þér, þá neyðumst við til að hafa samband við Vatíkanið". Hann fór að skellihlæja og sagði mér að ESB hefði sett þessi lög varðandi óléttuprófið.
Þegar niðurstaðan í prófinu var ljós kom hann fram og sagði "engin kraftaverk hér í dag." Ég fór að hlæja en svo sat ég lengi og brosti svona.. sad brosi.