www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Séð inní framtíðina
Föstudagur, 19. maí 2006

Á morgun ætla ég að fara og kaupa mér vöfflujárn. Þetta er eitt af þeim heimilistækjum sem mig hefur alltaf langað í en aldrei tímt að kaupa mér - af því mér fannst ekki bráðnauðsynlegt að eiga það.

Ég lá uppí rúmi áðan, nýbúin að lesa bókina sem ég er búin að vera að lesa á kvöldin undanfarið, þegar ég áttaði mig skyndilega á því að það er í raun alveg bráðnauðsynlegt að eiga vöfflujárn. Ég á alveg skilið að kaupa mér eitt og á morgun ætla ég að gera nákvæmlega það.

Þegar ég er búin að kaupa vöfflujárnið ætla ég að kaupa fersk jarðaber, dökkt súkkulaði og sýróp. Þá ætla ég að fara heim og saxa súkkulaðið og jarðaberin fínt niður og setja í skálar.

Þá baka ég vöfflurnar og svo sit ég við eldhúsborðið með börnunu mínum og held vöffluveislu. Byrja á að hella örlitlu sýrópi á volga vöffluna, strá jarðaberjum og súkkulaði yfir og.. það verður himneskt.

Á ég að hafa rjóma með? Held að það þurfi ekki. Þeir sem hafa ekki prófað vöfflur með þessu ofaná ættu að prufa einn daginn. It's to die for.

Hvernig vöfflujárn á ég nú að kaupa mér?


| anna | 22:24 |
comments

Kauptu rafmagns. Þessi sem eru gerð fyrir kolaeldavélar eru ekki praktísk lengur.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 19.05.2006 | 22:36:45 | [+] |

Já er það virkilega? Ég var meira að hugsa.. gas.. toungue

Nr. 2 | posted by: anna | 19.05.2006 | 22:39:13 | [+] |

Vöfflur með miklu sýrópi og smá af rjóma. Æði.

Ég átta mig ekki alveg á því hvernig þú hefur komist í gegnum lífið án þess að eiga vöfflujárndoubt

Nema auðvitað þú eigir ættingja eða vini sem eiga vöfflujárn.

Ég mæli hiklaust með að þú fáir þér vöfflujárn.

Nr. 3 | posted by: igor | 20.05.2006 | 7:04:11 | [+] |

Tvö vöfflutrikk:

Það getu verið þakklátt að lauma smá kardimommu í deigið, það er afskaplega gott.

Sömuleiðis er ekki aldeilis ógeðslegt að gera frekar harða vöfflu, og setja eina netta ískúlu á hana á meðan hún er heit, skreyta með hlynsírópi og fersku jarðaberi...

Nr. 4 | posted by: DonPedro | 20.05.2006 | 9:45:24 | [+] |

Hvað er þetta með vöfflur... í gær voru börnin mín allt í einu búin að baka vöfflur, það hefur ekki verið gert á þessu heimili í ár eða eitthvað. Var eitthvað í loftinu? Eða sjónvarpinu?

Nr. 5 | posted by: Útifrík | 20.05.2006 | 10:13:53 | [+] |

Ég ætlaði einmitt að mæla með ís í stað rjóma - en Pedro stal því.......

Nú býð ég bara spennt.
Ég meina.....mér hlýtur að vera boðið wink

Nr. 6 | posted by: Lindablinda | 20.05.2006 | 12:13:14 | [+] |

ekki kardimommudropa, ojbara! Ertu með steytta kardimommu, Donpedro?

Ekki það, vöfflujárn eru svo ódýr að það er eiginlega engin afsökun gild fyrir að eiga ekki svoleiðis. Þarf ekki neina sérstaka tegund, þessi sem fást á tvöþúsundkall í Elko eru bara fín.

og þetta með súkkulaðið og sírópið... ég slefa nú þegar. Fyrramálið? nerd

Nr. 7 | posted by: hildigunnur | 20.05.2006 | 23:57:44 | [+] |

Ég keypti mér einu sinni ódýrt vöfflujárn og hefði betur sleppt því. Úr því komu mjög dökkar vöfflur sem voru gjörsamleg hráar að innan. Hreinn viðbjóður. Ég henti því daginn eftir að ég keypti það eftir að ég hafði komist að því að það skipti engu máli hvað það var búið að hita sig mikið eða lítið - svona voru vöfflurnar úr því bara. Tæki sem ég keypti í gær var dýrt - en vöfflurnar sem koma úr því eru gjörsamlega himneskar og ég sé ekki eftir þeim peningum.

Ég nenni ekki að vinna með rusl tæki og ég þarf þess ekki lengur.

Linda. Þú verður boðuð í vöffluveislu áður en langt um líður og í nákvæmlega svona vöfflur. Ég krafðist þess að börnin mín smökkuðu þetta svona og þeim fannst þetta hrikalega gott. Bar fram heitt súkkulaði og rjóma með.

Úff hvað þetta var sjúklega gott! Endilega prufið vöfflur með svona hlynsýrópi, söxuðum jarðarberjum, súkkulaði (síríus konsúm) og rjóma.

Það verður ekkert mikið betra.

Nr. 8 | posted by: anna | 21.05.2006 | 13:36:11 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web