www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sátt að sofa
Fimmtudagur, 04. maí 2006

Búin að vera að vinna (dag/kvöld/nótt) í gær og í dag. Var að leita að image rollover script-i. Prufaði DOM, það virkaði ekki, prufaði CSS + java combo, það virkaði ekki - allavega nennti ég ekki að finna helvítis xplorer hacks til að það virkaði í xplóder. Að Bill Gates sé ennþá á lífi er gjörsamlega beyond me. Endaði á eldgamla java scriptinu sem ég notaði á síðu sem ég gerði fyrir milljón árum síðan (2) því það allavega.. virkar.

Viðskiptavinurinn sem ég er að vinna fyrir núna bað mig um:

a) svarta síðu
b) útí noir
c) töff

Ég held að ég sé búin að setja saman síðu sem er ca þannig.

Nú, þegar ég er búin að fá rollover dæmið til að virka, er ég búin að breyta litunum á rollover myndunum ca 7 sinnum. Ég er sátt við það sem komið er. Þetta útlit er hrátt og það er.. afgerandi en ég er mjög ánægð og það sem meira máli skiptir: viðskiptavinurinn er mjög ánægður og þeir sem hann hefur sýnt demó-ið. Áætlaður skilatími átti að vera 13. júní. Færist líklega fram á mánudag því ég er komin með annað verkefni sem ég þarf að klára plús að ég er að gæsa systur mína og hosta brúðkaup í júní og má ekkert vera að því að vinna - nema bara þetta helsta.

Mun drekka mikið kók um helgina og sofa lítið.

Ef einhver veit um DOM eða java eða css eða bara eitthvað sem er ekki eldgamalt og virkar má hann alveg láta mig vita. Ég kem ekki til með að breyta á þessari síðu sem ég er að gera úr þessu (nema mér sé bent á eitthvað GEÐVEIKISLEGA GRÚVÍ) en það væri gaman að finna eitthvað sem er ekki jafn mikið hassle að nota.

Nú er ég hinsvegar að fara að sofa og note to self:
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.


| anna | 0:30 |
comments

Uss, spurðu bara þessa nýju CSS vini þína. colgate

Nr. 1 | posted by: DonPedro | 4.05.2006 | 0:51:58 | [+] |

Ég þori það ekkert. Er ennþá að biðja til Guðs (og það þarf mikið til að ég geri það) um að þeir hafi ekki tekið eftir slóðinni aftan á galdradúkkurammanum og séu ekki búnir að skoða síðuna mína.

Þeir hlæja að fólki sem nota töflur.. laughing

Nr. 2 | posted by: anna | 4.05.2006 | 0:53:32 | [+] |

Vantar þig DOM...?

Ó... þetta er eitthvað vefdót embarassed

Nr. 3 | posted by: Kalli | 4.05.2006 | 1:11:39 | [+] |

Ég les: "Var að leita að image rollover script-i. Prufaði DOM, það virkaði ekki, prufaði CSS + java combo, það virkaði ekki - allavega nennti ég ekki að finna helvítis xplorer hacks til að það virkaði í xplóder."

Ég skil: "Var að leita að bla bla bla. Prufaði bla bla bla... og svo framvegis." Tölvudót! colgate

Nr. 4 | posted by: farfuglinn | 4.05.2006 | 2:19:42 | [+] |

hó.

þessi linkur er með bæði javascript og css dæmi.

http://www.webdeveloper.com/forum/showthread.php?threadid=31248

veit ekki hvort það er betra en það sem þú ert með....

Nr. 5 | posted by: magnus | 4.05.2006 | 6:27:10 | [+] |

Ég myndi ekki hika við að hafa sambann við þau Anna, spurðu bara Huga.......

Ég er algjörlega, ALGJÖRLEGA, viss um að þau taka ALLS EKKI illa í það - finnst það örugglega bara sætt og gaman. Svona stelpa! Enga vitleysu, sendu þeim póstwink

Nr. 6 | posted by: Lindablinda | 4.05.2006 | 7:55:03 | [+] |

Ekki veit ég samt hvað "sambann" er, en það er örugglega eitthvað fínt embarassed

Nr. 7 | posted by: Lindablinda | 4.05.2006 | 7:56:53 | [+] |

Um að gera að nýta sér þau sambönn sem maður hefur smile

Nr. 8 | posted by: utifrik | 4.05.2006 | 8:00:40 | [+] |

Sagði einhver CSS? Jújú, góðan daginn hér.
Mér finnst þessi aðferð snilld:

http://www.alistapart.com/articles/sprites

Hún geymir virku og óvirku stöðu hnappsins í sömu myndinni og hliðrar henni svo til eftir þörfum. Þannig sleppur maður við að matreiða kóðasósu til að sækja óvirkar myndir þegar síðan er hlaðin (sem þarf ef maður notar hefðbundnu aðferðina).

Nr. 9 | posted by: Hugi | 4.05.2006 | 9:25:28 | [+] |

Ætlaði bara að minna þig á á borða ekki áður en þú ferð í blóðprufuna...

Nr. 10 | posted by: DonPedro | 4.05.2006 | 9:33:17 | [+] |

Hér er aðeins einfaldari tækni, en þó í grundvallaratriðum sami hlutur og sá fyrri.

http://wellstyled.com/css-nopreload-rollovers.html

Nr. 11 | posted by: Hugi | 4.05.2006 | 9:40:12 | [+] |

Nánar um þetta CSS á laugardaginn Hugi! tíhíhí

Æ hvað það var sætt af þér að minna mig á þetta Pedro. Ég gleymdi þessu nefnilega ítrekað í morgun og stóð mig að því að vera komin með eitthvað matarkyns í hendurnar og rétt áður en ég tók fyrsta bitann hef ég líklega fengið hugskeyti frá þér.

Takk Maggi, kíki betur á þetta í kvöld. Annars er ég í sambanni sem útskýrir af hverju þessi óléttuprufa er og verður neikvæð. toungue

Nr. 12 | posted by: anna | 4.05.2006 | 10:57:38 | [+] |

sambinn er skemmtilegur, mun betri en valsinn...

Nr. 13 | posted by: hildigunnur | 4.05.2006 | 12:08:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web