Föstudagur, 05. maí 2006
Í gær þurfti ég að panta pappír í vinnunni svo ég hringdi í fyrirtækjaþjónustu ónefnds fyrirtækis.
Nema þegar kona svaraði símanum bað ég ekkert um pappír..
Anna: Já góðan daginn. Ég ætla að panta hjá þér karlmann. Ég vil að hann sé hávaxin, greindur og skemmtilegur. Já - og hann má ekki þjást af skuldbindingarfælni.
(Stundum kemur eitthvað svona útum munninn á mér og ég get ekkert að því gert.)
Kona í afgreiðslu: hahahaha.. eh.. ég er ekki með svoleiðis
Anna: Viss um að þú eigir ekkert svona inná lager?
Kona: því miður, þetta selst upp um leið
Anna: Andsk... jæja... þá er best ég panti bara pappír í staðinn..
Í dag kom pappírinn frá þeim og hvað haldiði að þessi frábæra kona hjá hafi sent mér!
Það næst besta á eftir nákvæmlega því sem ég bað um! Hraunbitakassa!
Oh ég elska að fá eitthvað svona óvænt.
Takk fyrir mig!