Mánudagur, 01. maí 2006
Ég sendi börnin út í dag svo ég gæti haft íbúðina útaf fyrir mig. Mér finnst nefnilega betra að þrífa þegar ég er ein heima og svo hef ég lesið að ferskt loft sé hollt og gott og ég á til að trúa allskonar svona vitleysu sem ég les í blöðum. Þegar þau komu inn var haglél úti og ég lokkaði þau inní stofu og bað þau um að fá sér sæti áður en ég hóf ræðu mína.
Anna: "Börn! Ég þarf að biðja ykkur að vinna fyrir mig eitt verkefni - í nokkrum liðum. Kemur betur út fyrir mig þannig, eitt verkefni í mörgum liðum er minna en tvö verkefni, ekki satt? Ég átti leið inní herbergið ykkar áðan og þar sá ég föt á gólfinu. Verkefni ykkar er að taka saman öll föt sem eiga að fara í þvott og setja þau í þvottakörfuna, þegar þið eruð búin að því vil ég biðja ykkur að taka þennan þvott sem er hér (bendir á hrúgur af samanbrotnum þvotti á stofuborðinu) og ganga frá honum inní skápa. Öllu nema mínum fötum. Þegar þið eruð búin að þessu ætla ég að láta ykkur fá pening og þið getið farið og fengið ykkur ís! (strækar svona tata pose)
Frumburðurinn hlær, "það er haglél úti mamma."
Anna: "Ég veit! Ef það er ekki rétti tíminn fyrir ís þá veit ég nú ekki hvað!"
Tillaga mín fékk einróma samþykki.
Stuttu síðar.
Frumburður: "heyrðu mamma.. hvar eru þessi föt sem þú sást á gólfinu inni hjá okkur?"
Anna: "ha? Eru engin föt þarna?"
Frumburður: "ég sé engin"
Anna: "Dem it. Þarf ég sumsé að fara til sálfræðingsins næst og segja: "já.. nú er ég farin.. að sjá föt. Á gólfinu. Sem engin annar sér." Af hverju gat ég nú ekki heyrt raddir eins og allir hinir. Það er engin von fyrir mig. Þessu er lokið."
Frumburður fer að skellihlæja, "nei, ég var að sjá það sem þú varst að tala um!"
Anna: "phew"
Miklu seinna í dag.
Anna: "Yngsta barn! Nú ætlar þú að koma og aðstoða hana systur þína við að hengja upp þvott."
(Yngsta barnið hefur sökum aldurs sloppið ótrúlega vel við heimilisstörfin fram að þessu)
Yngsta barn: "ég nenni því ekkert"
Anna: "þú samþykktir að taka að þér eitt verkefni í dag. Þú vissir að verkefnið var í nokkrum liðum og þetta er liður.. c. Eða d. Kannski f - skiptir ekki máli, komdu hingað inná bað"
Yngsta barnið stynur mæðulega og draugast af stað
Á meðan ég er að kenna honum að slökkva á þvottavél, opna hana, setja balann fyrir framan og taka þvottinn úr, tékka á hvort eitthvað er eftir í vélinni segir hann:
Yngsta barn: "ég vil fá laun fyrir þetta"
(grundvallarmunurinn á kynjunum. Frumburðurinn hefur aldrei heimtað laun fyrir vinnu sína á heimilinu þrátt fyrir töluverða vinnu - mér finnst þetta athyglisvert)
Anna: "þú ert að fá laun fyrir þetta á hverjum degi, húsaskjól, mat og föt"
Yngsta barn: "dem it! (ég tók þetta dem it upp frá honum) cheater!"
Anna: "ég er ekkert cheater, ég er bara eldri en þú og töluvert reyndari í samningaviðræðum"
Yngsta barn: "DOH"