www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ótímabært andlát.
Mánudagur, 15. maí 2006

Rétt rúmlega sextugt er ungur aldur á okkar tímum. Það finnst mér allavega.

Öll fjölskyldan er harmi slegin. Um helgina fór ég að hitta eiginkonu og börn hins látna. Ég kveið því svolítið því alltaf þegar ég hugsa um hvað þau eru að fara í gegnum fer ég hreinlega að gráta. Ímynda mér að þau þurfi á einhverju allt öðru að halda núna en að hugga mig. Mér fannst samt svo gott að hitta þau og taka utanum þau og segja þeim hvað mér þykir þetta sárt og votta þeim samúð mína. En sársaukinn hefur búið um sig í hjörtum okkar allra þó ég geti varla ímyndað mér hvernig þeim líður.

Þegar ég kom heim til mömmu á leiðinni til þeirra beið mín risa stór blómvöndur sem Beggi hennar mömmu hafði keypt fyrir mig og þegar hann sagði að honum þætti ekki hægt að kaupa blóm fyrir mömmu á mæðradaginn en ekki mig.. þá tók ég utanum Begga og gat ekki haldið aftur af tárunum, því þetta kom mér í svo opna skjöldu og mér þótti svo vænt um að hann hafi gert þetta og ég man ekki til þess að hafa fengið blóm á mæðradaginn fyrr. Frá neinum. Ég fór inná bað því ég þurfti hreinlega að ná mér.

Ég held að það hafi átt þátt í því að ég fór að gráta þegar ég fékk blómin frá Begga að maðurinn sem kvaddi þennan heim eins óvænt og raun bar vitni var einmitt svona maður. Maður sem hafði lag á að sýna þeim sem skiptu hann máli, í verki, að honum var ekki sama og að þau voru honum hugfólgin. Það er svo mikils virði í þessum heimi, að finna kærleika. Ég held að þessi fjölskylda hafi verið einn heilbrigðasti hluti míns fjölskyldutrés og þó ég hafi ekki þekkt manninn náið þá leit ég alltaf upp til þeirra hjóna og hef sagt fólki að þau séu fyrirmynd mín að góðu hjónabandi. Það er líka alveg satt og ég held að t.d. Júlía og Gulli hafi fundið það sama og þau fundu á sínum tíma.

Þau voru búin að vera gift í rúm þrjátíu ár. Urðu ástfangin og giftu sig stuttu seinna. Hún var ófrísk þegar þau giftu sig. Það kom aldrei neitt annað til greina hjá þeim og það breyttist aldrei. Þau voru viss um að þau væru rétt fyrir hvort annað. Eins og í öllum hjónaböndum hafa komið upp erfiðleikar en aldrei trúnaðarbrestur eða svik og þau stóðu við hvors hlið eins og styttur í gegnum allt mótlæti. Tilhugsunin, að eyða bróðurpart ævinnar með einhverjum og að hann sé tekin frá þér, hún nístir mig og ég get ekki ímyndað mér hvað það er sárt.

Það er svo skrítið með fjölskyldur, jafnvel jafn óstarfhæfar og mín er, að þegar einhver verður fyrir svona miklum missi þá þjappar fólk sér saman og slær skjaldborg utanum eftirlifendur.

Ég vona að það veiti eitthvað skjól, þó við séum eins og við erum.

Ég samhryggist þeim svo innilega.


| anna | 18:55 |
comments

Votta ykkur öllum samúð elsku Anna mín.

Nr. 1 | posted by: Harpa | 15.05.2006 | 23:11:13 | [+] |

Ég votta þér og fjölskyldu þinni samúð kæra Anna.

Nr. 2 | posted by: Sigga | 15.05.2006 | 23:49:06 | [+] |

samúðarkveðjur

Nr. 3 | posted by: baun | 16.05.2006 | 11:00:28 | [+] |

Oh Anna, eg samhryggist.

Nr. 4 | posted by: Atviksorda-Anna | 16.05.2006 | 12:50:13 | [+] |

Innilegar samúðarkveðjur.

Nr. 5 | posted by: Elín | 16.05.2006 | 13:42:24 | [+] |

Kys og kram.

Nr. 6 | posted by: Lindablinda | 16.05.2006 | 18:29:42 | [+] |

samhryggist innilega.

Nr. 7 | posted by: hildigunnur | 16.05.2006 | 19:15:26 | [+] |

Samhryggist innilega.

Nr. 8 | posted by: beggi dot com | 16.05.2006 | 22:57:50 | [+] |

Innilegar samúðarkveðjur.

Nr. 9 | posted by: igor | 16.05.2006 | 23:04:25 | [+] |

Innilegar samúðarkveðjur.

Nr. 10 | posted by: Þór | 17.05.2006 | 13:41:32 | [+] |

Kærar þakkir allir.

Nr. 11 | posted by: anna | 17.05.2006 | 14:09:26 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web