www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kötturinn úr pokanum
Miðvikudagur, 10. maí 2006

Júlía er búin að spyrja mig og spyrja mig hvað ég ætla að gera í gæsuninni. Hún er að gera mig geðveika og ég er hætt að reyna að berja hana frá mér með þessar spurningar sínar svo ég er búin að segja henni planið.

Get alveg eins sagt ykkur það líka.

Ég ætla að láta Ómar Ragnarsson sækja hana klukkan sex um morguninn, binda hana á bakið á sér og keyra með hana á mótorhjóli útað einhverjum klett - veit ekki hvað hann heitir en þetta er þverhnýpi. Ómar veit allt um málið og hann ætlar að vera í g-streng - eingöngu. Á leiðinni ætlar hann að syngja gamla slagara þangað til Júlíu langar til að deyja, sem er gott því þá streitist hún ekkert á móti þegar við hendum henni niður af klettinum.

Við ætluðum að hafa hana í svona fallhlíf en ég hætti við þegar ég komst að því hvað það kostar og auk þess skilst mér að það sé stórhættulegt að fara í fallhlífastökk.

Þá mun þyrla með björgunarsveitarmönnum sem eru í g-streng einum klæða mæta á svæðið og fljúga með okkur í útsýnisflug yfir Reykjavík og þaðan uppá slysó þar sem hún fær köku sem er eins og typpi í laginu og stjörnuljós og hjúkkurnar verða með skemmtilegar húfur og ýlur og unglæknarnir verða allir í g-streng.

Þá ætla einhverjir læknar að tékka á brotum því Ómar reiknar með fót og/eða handleggsbroti í fallinu niður af klettinum. Dagurinn fer í röntgen og skemmtilegheit og á eftir ætlum við að fara á Aktu Taktu og fá okkur samloku. Um kvöldið munum við skreppa niður á höfn og kjöldraga hana. Þar sem það bleytir líklega eitthvað upp í gifsinu endum við kvöldið aftur uppá slysó um svipað leyti og allt fyllist af drykkju-rugl-liði.

Viss um að einhver af þeim nennir að strippa fyrir okkur.

Hún er hætt að spyrja mig núna.


| anna | 17:35 |
comments

mér finnst nú óþarfa fantaskapur að láta Ómar syngja fyrir konuna hmmm

Nr. 1 | posted by: baun | 10.05.2006 | 17:36:49 | [+] |

Hvað get ég sagt. Ég er padda.

MÚHOHOHOHOHOHOHOHO

Nr. 2 | posted by: anna | 10.05.2006 | 17:38:37 | [+] |

Bíddu er Kalli í Björgunarsveitinni, eða er hann unglæknir - ER KALLI ÓMAR RAGNARSSON?! what

Þetta er annars gott plan.
Bara svona létt og skemmtilegt.

Nr. 3 | posted by: Lindablinda | 10.05.2006 | 17:43:09 | [+] |

Heyrðu... g-strengir og þú ert ekki einu sinni búin að tala við mig. ANNA! Hvað á þetta að þýða?

Nr. 4 | posted by: Kalli | 10.05.2006 | 17:59:25 | [+] |

úúúú.. fljótur að læra Kalli!

Næst þarftu að muna að hafa þetta í sér línu.

Nei þetta er alvöru Ómar. Við fáum hinsvegar alla g-strengi lánaða hjá Kalla. Ætlum að útbýtta g-strengjum uppá slysó ef einhver vill fá.

Nr. 5 | posted by: anna | 10.05.2006 | 18:01:27 | [+] |

Mér finnst tilhugsunin um björgunarsveitarmenn og unglækna í g-streng ákaflega fögur! * cool

Nr. 6 | posted by: Ása | 10.05.2006 | 19:48:21 | [+] |

Mér finnst hún soldið hommaleg, Ása. Tilhugsunin.

Nr. 7 | posted by: Atviksorða-Anna | 11.05.2006 | 0:58:42 | [+] |

Ég þarf að hreinsa heilann á mér með klór...

Hræðilegt þegar er verið að segja svona hug-myndir inn í hausinn á manni drunk

ANNA!

Hvað á þetta að þýða wink

Nr. 8 | posted by: Þór | 11.05.2006 | 3:00:53 | [+] |

Finna að ég er farin að heltast.

Held að nú sé rétti dagurinn í að flytja á slysó.
Kannski ég bíði til morguns eða laugardags og fái björgunarsveitina til að styðja mig þangað.

Nr. 9 | posted by: Elín | 11.05.2006 | 12:35:41 | [+] |

Ha Elín? Af hverju heltast?

Þurfti smá tiltal, þessir unglæknar voru með einhvern helvítis skæting, sögðust ekkert kæra sig um að vera í g-streng í vinnunni en ég benti þeim á að ef þeir myndu ekki gera það ætlaði ég að vera með gjörning á biðstöfunni sem innifæli keðjusög, grímu og saklaus fórnarlömb.

Þessir í björgunarsveitinni voru hinsvegar til í þetta alveg um leið og ég lofað þeim beinbroti.

Nr. 10 | posted by: anna | 11.05.2006 | 13:48:17 | [+] |

Erum við ekki pottþétt að tala um Flugbjörgunarsveitina? Verð að vera með þetta á hreinu þegar ég sæki um í haust - vil ekki lenda með einhverjum forpokuðum sem fíla ekki g-strengi wink

Nr. 11 | posted by: Simmi | 11.05.2006 | 15:38:07 | [+] |

Ég veit það ekki. Það eru allaf einhverjir menn að lenda á þyrlupallinum uppá þaki á blokkinni minni og ég bara dreif mig upp að tala við þá. Mjög hressir, soldið drukknir en þeir segja að það sé í lagi að fljúga fullur og ég trúi þeim alveg. Þetta er nú ekki stærsti þyrlulendingarpallur í heimi þarna uppá þaki og aldrei hafa þeir flogið útfyrir.

Dettur mér í hug. Kannski eru þetta ekkert björgunarsveitarmenn! Kannski eru þetta bara vinir hans John Travolta á 2. hæð! melodramatic

Nr. 12 | posted by: anna | 11.05.2006 | 15:48:19 | [+] |

Heyrðu! Þetta var Harvey Keitel! Hann er fluttur aftur í blokkina!

Jack hefur sagt honum frá því að það væri búið að skipta um teppi og gler og gert Harvey kallinn var svona ferlega imponeraðann. Jack er fáviti, ég var búin að biðja hann svo fallega að segja Harvey ekki frá þessu. Ekkert smá vond lykt af manninum og hún festist í teppunum á ganginum!

Tók því að skipta..

Nr. 13 | posted by: anna | 11.05.2006 | 15:59:00 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web