www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv guestbook
Hvað - hef - ég - gert!
Fimmtudagur, 18. maí 2006

Ég vil byrja á því að biðja íslensku þjóðina afsökunnar. Hvernig átti ég að vita að þetta curse næði yfir kvenfólk líka?

Það er löngu vitað og sannað, af vísindamönnum, að allt sem hefur púls og ég tek ástfóstri við verður fljótt hálf mongo og misheppnað og nú hefur enn einu sinni komið í ljós að ég get hreinlega þurrkað upp persónutöfra fólks með því að dá það nógu mikið.

Þetta fyrirbæri virðir engin landamæri.

Ég lýsi fullri ábyrgð á hendur mér bæði raddleysi Silvíu og sviðsskrekk. Ég hefði mátt vita að ekkert, EKKI NEITT sem ég ber hlýhug til fær að blómstra.

Það er mín einlæga von að Silvía geti fundið í hjarta sér að fyrirgefa mér einn daginn og farið að koma aftur í mat á sunnudögum.


| anna | 21:25 |
comments

LOL colgate

Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 18.05.2006 | 21:35:29 | [+] |

Silvía var klárlega sigurvegari kvöldsins - fékk salinn til að púa, besta móment okkar í Júróvisjón frá upphafi ekki spurning - okkar eina svar við þessu er auðvitað að senda Silvíu aftur að ári colgate

Nr. 2 | posted by: Simmi | 18.05.2006 | 21:35:46 | [+] |

haha já! Senda hana aftur að ári! þetta er það besta sem ég hef lengi heyrt smile

Nr. 3 | posted by: Útifrík | 18.05.2006 | 21:53:47 | [+] |

Þetta er nú ekkert.

Ég hef ávallt tekið miklu ástfóstri við okkar fólk og hef alltaf verið fullkomlega sannfærður um sigur okkar í hvert einasta sinn frá árinu 1986.

Ég hef nú þegar ákveðið að enginn undantekning verði á því á næsta ári.

Búningur Silvíu var flottur og ekki má gleyma því að púið var sennilega heimsins fyrsta pú í Euróvision. Þannig að við erum heimsmeistarar. Að sjálfsögðu.

Í öðru sæti í púi eru Litháar en þeir voru púaðir þegar í ljós kom að þeir höfðu komist áfram. Þannig að ljóst er að nýtt trend hefur skapast í Euróvision. Pú er leyfilegt.

Ísland, best í heimi.

Nr. 4 | posted by: igor | 18.05.2006 | 22:30:49 | [+] |

Ég kaus skrifstofulagið. Þegar þrekni bankastjórinn gekk eins og herforingi fram á sviðið og tók svona svakalegan furðudans við fiðluna var það bara...

SOLD!

MÚHOHOHOHOHOHOHOHO

snillingar. Algjörir snillingar.

Nr. 5 | posted by: anna | 18.05.2006 | 22:37:14 | [+] |

Já ég verð að bæta við..

Þegar Finnarnir voru komnir uppá svið í skrímslabúningunum sat Doddi á gólfinu, glennti upp augun og sagði:

COOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOL

Hann kaus skrímslalagið.

Ég man ekki hvernig konan frá Belgíu leit út..

Nr. 6 | posted by: anna | 18.05.2006 | 22:41:29 | [+] |

Málið er að senda Silvíu aftur og aftur og aftur og aftur...

Kosturinn við það er að það er alltaf hægt að skipta út leikara en gervið alltaf það sama.

Þetta er því framtíðarlausn.

Nr. 7 | posted by: igor | 18.05.2006 | 22:45:02 | [+] |

Nákvæmlega og þá þurfum við ekki að spá í þessu meir. Að vísu sagði ég við fólkið sem var hérna þegar keppnin var að byrja - var búin að gleyma þessu atriði þangað til ég byrjaði að horfa - þessi austantjaldslönd hafa spes smekk, alveg óháð Silvíu, og kjósa hvort annað upp í aðalkeppnina og detta út jafn harðan niður í undankeppnina - og halda áfram að kjósa hvort annað upp þannig að góð lög eiga minni séns.

Verð að viðurkenna að ég varð fyrir alveg rosalegum vonbrigðum með Silvíu en hún var greinilega að deyja úr stressi, andstutt, raddlaus og óörugg. Vantaði alveg þetta kokkí attitude sem selur hana enda kannski ekkert grín að halda það út frammi fyrir púandi áhorfendum. Mér fannst samt dans þeirra Homma og Namma alveg rosalega flottur og einstaklega karlmannlegur.

Hrein unun að horfa á.

Nr. 8 | posted by: anna | 18.05.2006 | 22:49:51 | [+] |

Ok, þá er komin skýringin afhverju þú mannst ekki eftir konunni frá Belgíu. Gleymir þér með Homma og Namma. Huh.

Já, þetta var ekki alveg að gera sig hjá henni, slappur söngur og greinilega stress. Hafði eflaust ekki úthald í þetta til enda. Hún spilaði auðvitað ansi djarft og það eru nú ekki margir sem þola það að standa á sviði undir svona púi og um leið í beinni með tugi milljóna að horfa.

En, alltaf gaman að fólki sem spilar djarft.

Nr. 9 | posted by: igor | 18.05.2006 | 22:58:02 | [+] |

Já, maður átti sérlega erfitt þetta árið með að gera upp á milli hvíta rússlands, úkraníu og makedóníu - reyndar fannst mér atriðið frá Andorra líka dáldið spes.

En þetta er alveg að verða eastern european vision.... wink

Nr. 10 | posted by: Simmi | 18.05.2006 | 22:58:22 | [+] |

Igor. Give me a break. Ég var síðast við karlmann kennd í fyrra! Þó maður horfi á einstaka homma og nammi hér og þar, ha? Dísus.. öll skrælnuð alveg..

Simmi: Jebb. Þarna í botninum er skrítin barátta en ég verð að viðurkenna að þegar ég horfði á Finnana varð mér hugsað til Ástralíu - og ég dó úr hlátri.

Þú verður að útskýra af hverju.

Nr. 11 | posted by: anna | 18.05.2006 | 23:03:26 | [+] |

Já en ég er sammála þér Igor. Ég fíla fólk sem spilar djarft.

Fólk sem hefur guts.

Nr. 12 | posted by: anna | 18.05.2006 | 23:04:51 | [+] |

ROFL.

Nr. 13 | posted by: igor | 18.05.2006 | 23:05:59 | [+] |

Annars var ég að pæla í ástæðu þess að Litháen kemst áfram. Möguleikarnir gætu verið þessir:

1. Lagið var svo frábært
2. Atriðið var djók og Evrópa fattaði brandarann
3. Fjöldi Litháa sem hafa flust til annarra Evrópulanda er svo mikill að þegar þeir taka allir upp símann og kjósa Litháen þá er ljóst að þeir komast áfram.

Nr. 14 | posted by: igor | 18.05.2006 | 23:10:37 | [+] |

Þeir komust áfram því bankastjórinn breikaði við fiðluna. Ég var með aumingjahroll alveg upp að því andartaki.

Reyndar var gæjinn með gjallarhornið líka flottur.

Ég held að Evrópa hafi fattað þennan brandara. Ég ætla reyndar að kjósa þá í aðalkeppninni. Mér fyndist alveg dásamlega fyndið ef þetta lag myndi actually vinna.

Nr. 15 | posted by: anna | 18.05.2006 | 23:13:26 | [+] |

Ég held að það sé að myndast stemning með Litháen. Held ég kjósi þá bara líka. Bankastjórinn var góður.

Og auðvitað konuna frá Belgíu. Þó það kosti mig aukalega hundrað kall.

Nr. 16 | posted by: igor | 18.05.2006 | 23:16:35 | [+] |

Já, ég geri ráð fyrir að þú sért þar að vísa í áhuga ástrala á júróvisjón sem þeim þykir með skemmtilegasta sjónvarpsefni sem boðið er upp á. Miklir húmoristar sem búa í Ástralíu og þeim þykir bara hugmyndin að það sé sönglaga keppni haldin milli landa nógu fyndin - Það verður því virkiega skemmtilegt að útskýra framlag Finna laughing laughing laughing

Nr. 17 | posted by: Simmi | 18.05.2006 | 23:17:24 | [+] |

Skrifstofulagið frá Litháen er bara snilld. Ég er að hugsa um að biðja bankastjórann um að vera endurskoðandann minn.

Nr. 18 | posted by: anna | 18.05.2006 | 23:19:09 | [+] |

Já, ég held að íslenska þjóðin verði að skipa sér á bak við Litháen þetta árið.

Nr. 19 | posted by: Simmi | 18.05.2006 | 23:19:18 | [+] |

Veistu það Simmi.. í alvöru. Þegar ég horfði á þessi furðu frík og hugsaði um þessa Ástrala sem horfa á sér til skemmtunar..

Þú veist.. þetta er bara óborganlegt.

Nr. 20 | posted by: anna | 18.05.2006 | 23:20:13 | [+] |

Djöfull fíla ég mig...................útúr melodramatic

Nr. 21 | posted by: Lindablinda | 19.05.2006 | 6:17:34 | [+] |

Lindablinda, þú mátt alveg vera með líka.

Annars var ég að spá í þessa hugmynd með að senda Silvíu aftur og aftur. Opnar marga möguleika.

Auðvitað gengur þessi keppni út á það að framleiða sjónvarpsefni, afþreyingu. Páll Magnússon segir réttilega að forkeppnin heima skipti öllu máli. Sjónvarpsefni fyrir Rúv.

Nú er hægt að hafa tvær forkeppnir. Fyrst keppir fólk um hlutverk Silvíu og síðan senda lagahöfundar inn lög sem Silvían sem vann syngur í forkeppninni.

Tveir þættir fyrir Rúv.

Annars verður gaman að sjá hvort Silvia Night verður þekkt vörumerki í Evrópu eftir þetta allt.

Nr. 22 | posted by: igor | 19.05.2006 | 8:09:44 | [+] |

Silvía átti því miður ekki séns!
6 ára frænka mín giskaði rétt á 8 lög af 10 sem færu í úrslitin. Sem segir í rauninni allt um markhópinn.
Að minnsta kosti hluta af honum.

Nr. 23 | posted by: Langi Sleði | 19.05.2006 | 8:49:45 | [+] |

Silvía var bara æðisleg og ég styð það að senda hana aftur á næsta ári.... og aftur...og aftur....

Anna þú manst kannski bara að halda ekki aftur með henni svo þú klúðrir þessu ekki fyrir okkur aftur. toungue

Nr. 24 | posted by: Elín | 19.05.2006 | 9:31:11 | [+] |

Ohhh, hvað ég var fegin að hún komst ekki áfram.
Er búin að grípa mig í svona gömlukonuhneykslun með vandlætingarsvip og HRMPH hljóðum.. Hefði ekki afborið fleiri daga af því.
Ætli við getum ekki stofnað svona eyríkja keppni með Áströlum, það yrði amk. doldið fyndið
Sé fyrir mér Pricilla,queen of the desert atriði! Látum þetta eusturevrópuþjóðlagapakk bara eiga sig. Ég er annars sammála Igor, ég hef alltaf verið jafn ótrúlega hissa á því að við færum ekki með sigur að hólmi í þessari keppni, Þar til nú..
-leynó-

Nr. 25 | posted by: leynivinur | 19.05.2006 | 10:47:28 | [+] |

Sylvía er snilld og hvað um það þó hún hafi ekki alveg getað klárað dæmið, hún var samt flott. Og sæt þegar hún grét við Simma yfir því að þetta væri bara lúserakeppni hvort eð er og við Íslendingar ættum ekkert að vera að taka þátt í þessu SNILLD bara! Og bara á leið til LA þar sem hún mun meika það, ekkert að marka svona lúserakeppni...

Nr. 26 | posted by: Meinvill | 19.05.2006 | 14:12:24 | [+] |

Komið inn á YouTube með comments frá útlöndum - takið sérstaklega eftir Þýska þulinum í endann - alveg í stuði colgate

Nr. 27 | posted by: Simmi | 19.05.2006 | 15:42:36 | [+] |

slóðin http://www.youtube.com/watch?v=JwGkmNWR8-4

Nr. 28 | posted by: Simmi | 19.05.2006 | 15:43:03 | [+] |

Þetta video með Silvíu nótt er það mest skoðaða á youtube.

http://www.youtube.com/watch?v=snG2V-PtpB8&feature=Views&page=1&t=t&f=b

Og hér er blogg þar sem vídeó með Silvíu Nótt kemur fyrir tvisvar og heitar umræður í kjölfarið.

http://dlisted.blogspot.com/

Ótrúlega fyndið. Allt að verða vitlaust.

Nr. 29 | posted by: igor | 21.05.2006 | 23:35:32 | [+] |

Takk fyrir þetta Igor, þú ert nú meiri snillingurinn!

Nr. 30 | posted by: anna | 22.05.2006 | 11:21:21 | [+] |

shy

Nr. 31 | posted by: igor | 22.05.2006 | 22:10:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web