Fimmtudagur, 18. maí 2006
Það þarf náttúrlega ekkert að pæla í hvort Silvía kemst áfram í kvöld með lagið sitt eða ekki. Að sjálfsögðu kemst hún áfram.
Ég stend heilshugar á bak við Silvíu og mun fagna í góðra vina hópi á laugardagskvöldið þegar hún annaðhvort
a) vinnur Eurovision fyrir Íslands hönd
eða
b) verður vísað úr keppni fyrir foul language sem mun gera Silvíu fyrsta keppanda í Eurovision frá upphafi sem er vísað úr keppni og gulltryggir henni um leið heimsfrægð.
Mér skilst að margir séu orðnir leiðir á uppátækjum Silvíu. Við ykkur segi ég: svona er að vera alltaf að horfa á fréttir í sjónvarpinu, lesa blöð og hlusta á útvarp! Látið ykkur þetta að kenningu verða.
Miklu betra að búa í helli eins og ég og hugleiða dýrð Silvíu við opin eld.
Klikkar ekki.
ÁFRAM SILVÍA NÓTT!