Þriðjudagur, 23. maí 2006
Hún Elín í Hár Fókus Grímsbæ er snillingur. Ég fór til hennar, gráhærð, lúin, brotin og beygð. Sagði henni að engin elskaði mig og ég væri orðin gömul og ljót.
Nei ég er að ljúga, færi ekki að segja svona rugl.
Ég sagði "Hæ" og hún sagði "Hæ. Hvað á ég að gera við þig núna?" og ég sagði "Gerðu mig gorgeous."
Og hún gerði nákvæmlega það. Ég er búin að læra að þegar ég fer til Elínar þá er nóg að segja þetta. Fyrst kom ég stundum með myndir og eitthvað svona.. rugl óskir um hvernig ég vildi líta út - enda er ekki hægt að klippa á fólk nýtt höfuðlag - segir hún. En hún sagði mér alltaf að tillagan mín hentaði ekki höfuðlaginu mínu og gerði eitthvað allt annað - og ég var ánægð. Ég þekki Elínu reyndar persónulega en ég veit að hún klippir fólk ekki eftir myndum ef klippingin passar ekki andlitinu.
Í dag fer ég bara til hennar og segi þetta. "Gerðu mig gorgeous" og hún gerir það. Ég er alveg hætt að skoða myndir og hafa skoðanir á því hvernig ég á að vera. Prufaði það samt aðeins áðan, sýndi henni mynd af svona.. tjah.. nokkuð stuttu hári og Elín hristi hausinn, skellti slánni utanyfir mig og sagði "iss ég hlusta nú ekki á ruglið í þér, við höldum í síddina". Svona á þetta að vera! Ef ekki væri fyrir Elínu væri ég líklega löngu orðin sköllótt sem afleiðingu af einhverju helvítis fyrirtíðarspennu fokki.
Það líður nefnilega oftast bara korter eftir að ég hef látið klippa mig stutt.. þangað til ég sé eftir því.
Þetta veit Elín.
Ég er reyndar búin að streitast á móti því að láta lita á mér hárið núna í langan tíma en síðast þegar ég fór til hennar, og hún sá gráu nornahárin sem standa útí loftið eins og á brjáluðum vísindamanni, sagði hún - mjög ákveðin, að næst myndi hún lita mig. Ég bara trúði því alveg og reyndi ekkert að malda í móinn. Þegar ég kom áðan sagðist ég villja lit sem væri eins og háraliturinn á mér er fyrir og ekkert strípudót. Elín hlustaði ekkert á mig, frekar en fyrri daginn, sagði að ég væri með svo dökkt hár að ég yrði eins og svarthöfði og hún léti mig ekkert ganga út með einhvern hjálm, setti í mig eitthvað álpappírs-dót og ég ákvað að verða ljóshærð rétt á meðan og þar með clueless um að þetta væru, in fact, strípur.
..og ég er með svo flott hár - SHIT HVAÐ ÞAÐ ER FLOTT! Hún hefur alveg einstakt lag á að lita mann þannig að hárið virkar ekki litað og óeðlilegt. Auk þess litaði hún mig bara í mínum lit í grunninn.
Ef þið eruð orðnar leiðar á hárinu á ykkur og þurfið inngrip frá alvöru fagmanni, tékkiði á Elínu. Það eru reyndar tvær Elínar að vinna á Hár fókus en þessi Elín - MÍN Elín - vinnur ekki á mánudögum.
Ég er farin að dást að mér fyrir framan spegil.
Oh.. ég er eins og sjampó auglýsing!