www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Daimler Double Six
Sunnudagur, 07. maí 2006

IMG_0792.jpg

Framleiddur af Jagúar.

Þetta er eini kötturinn sem ég á séns á að eignast um ævina þar sem ég hef ofnæmi fyrir þeim loðnu. Það vantar reyndar köttinn á húddið og nafnið er Daimler.. en bíllinn er Jagúar through and through.

Og mig langar í einn.

jags_21.jpg


| anna | 12:45 |
comments

Nú lifnar yfir Kalla hinna þúsund þvengja.
Er þetta hugsanlega kannski nýi fjölskyldubíllinn?

Nr. 1 | posted by: Gestur | 7.05.2006 | 13:13:27 | [+] |

Hvah! telst ekki rófukötturinn með?
Hvað kostar annars svona köttur... þessi á myndinni?

Nr. 2 | posted by: útifrík | 7.05.2006 | 13:14:55 | [+] |

Það er reyndar Kalla að þakka að ég fékk að fara í bíltúr á þessum bíl. Hann var til sýnis hjá Bílabúð Benna á bílasýningu í gær og þar sem Kalli veit að ég bara elska Jagúar þá hringdi hann í mig og bauð mér í bíltúr! Ekkert smá sætur!

Svona bíll kostar rúmar tvær milljónir. Ég mun aldrei skilja af hverju ríkt fólk keyrir um á þessum sterílu bílum sínum þegar það getur fengið svona glæs á slikk.

Kannski skiptir þetta fólk bara meira máli að vera eins og ALLIR hinir.

Hvað veit maður. Get allavega sagt ykkur eitt.. þegar ég verð rík.. þá verður engin Hummer í skúrnum. Ekki Porsche, engin úr Volkswagen fjölskyldunni, ekki Chrysler, ekki Audi, ekki Benz og ekki BMW.

Bentley og Jagúar eru mínir bílar og þeir hafa meiri klassa í varadekkinu en hinir.

MÚHOHOHOHOHOHO

Nr. 3 | posted by: anna | 7.05.2006 | 13:30:23 | [+] |

læðist að mér grunur að þú viljir ekki Skóda eða Volvó heldur...

vínrauða drossían er æðislega flott annars wink

Nr. 4 | posted by: baun | 7.05.2006 | 13:49:51 | [+] |

Skoda kæmi aldrei til greina, þó ekki væri nema bara útaf þessu skelfilega græna lógói.

Ég verð reyndar að viðurkenna eitt og eftirfarandi er eitthvað sem ég hélt að ég myndi aldrei segja né skrifa - því mér hefur alltaf fundist Volvo styggðarlega ljótir bílar. En eftir S40/60 týpuna hjá Volvo þá féll ég algerlega.

Ég þekki annan bílaáhugamann sem fór með mig í reynsluakstur í slíkum bíl þegar hann var glænýr og shit. Úff. Vá.

Það var love at first ride. Bíllinn, ekki ökumaðurinn. Enda er hann harðgiftur.

Annars er þetta mest í nösunum á mér. Þó ég myndi reyndar ekki einu sinni þiggja Volkswagen að gjöf. Fólk má alveg eiga Volkswagen mín vegna en.. þessir bílar eru ekki fyrir mig.

Nr. 5 | posted by: anna | 7.05.2006 | 14:09:36 | [+] |

veistu, ég hef alltaf verið veik fyrir volvóum og veit að það er gríðarlega lummó en...

það verður hver að vera eins og hann er gjörður og eins gott að viðurkenna það bara melodramatic

Nr. 6 | posted by: baun | 7.05.2006 | 14:26:15 | [+] |

Alveg er ég innilega sammála þér Anna.
Auðvitað er létt að dissa peninga ef maður á þá ekki, en í dag finnst mér eiginlega áhugaverðara að keyra um á gömlum bíl. Það er að minnsta kosti alternatívt. Og heimilið á að vera fullt af plasti og brjáluðu seventís kitsch drasli, í mótmælaskyni.

Nr. 7 | posted by: Gestur | 7.05.2006 | 15:25:00 | [+] |

Er búin að spyrja föður minn spjörunum úr um hvar hann var staddur og hvað hann gerði vikuna sem þú komst undir.
Þetta er alveg að hætta að vera fyndið og er eiginlega bara að verða svolítið mikið undarlegt.

Hann heldur því fram að hafa ekkert gert af sér.........við sjáum nú til með það. Kannski þú grillir mömmu gömlu líka. wink

Nr. 8 | posted by: Lindablinda | 7.05.2006 | 15:27:01 | [+] |

Hei.. hvað veit ég. Sagði ekki Huey Lewis "It's hip to be square!" wink

Gamlir bílar eru bara oft svo miklu flottari. Þessi bíll er 91' árgerð btw.

Linda. wink

Nr. 9 | posted by: anna | 7.05.2006 | 15:32:54 | [+] |

Anna, það voru tæpar tvær millur. Ásett 1990þ. minnir mig að bílasallinn hafi sagt þegar ég skilaði honum wink Staðfestir bara það sem ég hef sagt lengi að maður þarf ekki að vera milli til að keyra flott.

Mikið grunar mig hvaða aðstæður voru í kringum Volvo reynsluaksturinn...

Nr. 10 | posted by: Kalli | 7.05.2006 | 18:20:05 | [+] |

Hmm... ekki að mig langi að hljóma leiðinlegur, en þú þarft að vera milli til að eiga tvær milljónir. Múltí-milljóner meira að segja.

Það getur hver sem er skuldað tvær milljónir, en það er bara ekki það sama, að keyra bíl sem þú veist að þú átt, eða keyra bíl sem þú veist að einhver annar á ( bankinn, t.d. )

Anna: líst frábærlega á þessa kerru. Hlakka til að sjá þig á rúntinum á henni wink

Þó ég þurfi að bíða þess dags að ég verði kominn í gamalmennagöngugrind, þá skal ég samt vera á planinu og hvetja þig áfram happy

Nr. 11 | posted by: Þór | 7.05.2006 | 20:27:34 | [+] |

Já... það er samt bara djók að vera milljóner í íslensku...

Nr. 12 | posted by: Kalli | 7.05.2006 | 20:39:44 | [+] |

Eigum við annars að kalla þetta tvímilljóner? Gætum þýtt það á ensku sem bimillioner...

Nr. 13 | posted by: Kalli | 7.05.2006 | 20:40:33 | [+] |

Hmmm. Er munur að keyra bíl sem maður á, frá því að keyra bíl sem bankinn á? Í mínu tilfelli hefur aðalmunurinn verið sá að bankinn hefur haft efni á að eiga nýrri og betri bíla. cool Reyndar hafa 3 eða 4 síðustu bílar sem ég hef átt alveg einn kostað innan við 100,000 IKR.

Samanlagt toungue

Flottur Daimler btw. Er þetta virkilega Double Six?

Nr. 14 | posted by: beggi dot com | 7.05.2006 | 22:09:19 | [+] |

Nei við skulum nú ekki alveg missa okkur hérna. Verður þetta ekki orðið of mikið af hinu góða þegar Anna, rauðu skórnir og Jagúarinn koma saman?

Nr. 15 | posted by: Radebe | 7.05.2006 | 23:00:20 | [+] |

Jebb, Double Six. Upplýsingar hérna: http://www.blyfotur.is/spjall/viewtopic.php?t=2230 og mig grunar að eigandinn hafi ekkert á móti því að ég misnoti bloggið hennar Önnu til að segja að hann sé til sölu.

Ég heyrði annars sögu af því að einhver kona hefði gefið manninum sínum bróðir þessa bíls í jólagjöf. Nú vitiði hvernig þið eigið að heilla Önnu. Hún er ekki búin að eiga afmæli í ár wink

Nr. 16 | posted by: Kalli | 7.05.2006 | 23:28:40 | [+] |

Er hægt að fá of mikið af hinu góða?

Nr. 17 | posted by: anna | 7.05.2006 | 23:52:18 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web