Miðvikudagur, 24. maí 2006
Þegar maður þjáist af brundillsku verður maður pirraður, uppstökkur og finnst allir sem brosa vera fávitar - most of the time. Ég fæ þetta í köstum. Þá sígur höfuðið örlítið nær herðunum eða ég færi herðarnar upp, veit ekki hvernig ég geri þetta nákvæmlega enda skiptir það ekki máli. Ég set upp illilegt augnarráð og hugsa um allt sem fer í taugarnar á mér.
Það fer til dæmis í taugarnar á mér hvað það er kalt og ég þoli það ekki. Það fer í taugarnar á mér að ég sé ekki með kokk á launum við að gefa mér að borða - pirrar mig sérstaklega mikið og það fer ósegjanlega í taugarnar á mér þegar klósettpappírinn er búinn þegar ég fer á klósettið.
Það pirrar mig líka hvað ég á mikið af klósettpappír og að ég er farin að geyma auka klósettpappír í skottinu á bílnum mínum. Ég skil reyndar ekki alveg hvernig það kemur til með að hjálpa þegar mig vantar hann.
Það pirrar mig þegar eitthvað virkar ekki.
Það pirrar mig stundum þegar eitthvað virkar.
Það pirrar mig að kaupa nýtt sjampó sem er lélegt - gerðist einmitt um daginn og ég er ennþá pirruð yfir því.
Hamingjusamt fólk pirrar mig sérstaklega þegar ég er illa haldin af brundillsku og fólk þarf eiginlega ekki einu sinni að vera hamingjusamt, það þarf bara að vera par. Má alveg vera óhamingjusamt par mín vegna, pirrar mig samt. Stundum þegar ég sit svona eins og púki á fjósbita með augun pírð og munninn í fýluskeifu hugsa ég um allt fólkið sem er að gera það öllum stundum og útum allt. Uppá borðum, ofaná heimilistækjum, útá svölum, í sófum, bílum, kjörbúðum.. tekur sér ekki einu sinni pásu til að borða.. og ég finn hvernig ég hata þetta fólk af áður óþekktum innileika. Ég óska þessu fólki kynsjúkdómum og dauða og svo kippist ég örlítið til og glotti viðbjóðsglotti á meðan ég sé þetta fólk fyrir mér veslast upp af flatlús og DEYJA HRYLLILEGUM DAUÐDAGA.
En svo rifjast skyndilega upp fyrir mér að það að vera einhleypur er mjög svipað því að vera giftur, svo ég læknast strax og get haldið áfram lífi mínu sæl og glöð með tilveruna.
Þar fyrir utan hef ég alltaf hann Margeir til kvelja þegar ég er mjög illa haldin.
Var að fá mér ferða rafgeymi.