www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Brúðkaup
Miðvikudagur, 10. maí 2006

Var að panta það síðasta sem þarf fyrir gæsunina hennar Júlíu.

Þetta er náttúrlega allt leyndó svo ég mun ekki ljóstra upp hér hvað ég er búin að plana. Ég get hinsvegar ljóstrað upp að ég hef fordóma fyrir þessu fyrirbæri: gæsun og steggjun, þ.e. ruglinu sem það fer oft útí.

Kannski er það bara hjá fólki sem er twenty something. Veit það ekki. Að takmarkið sé að fylla tilvonandi brúður eða brúðguma finnst mér hallærislegt og mér finnst hallærislegt að reyna að gera lítið úr fólki. Mér finnst hallærislegt að fá strippara í partíið og mér finnst hallærislegt að brjótast inní brúðarsvítuna og fylla allt af smokkum og frauðplasti.

Mér finnst ekki ólíklegt að það sé ekki af ástæðulausu sem Júlía bað mig að hafa umsjón með þessu.

Í gærkvöldi pantaði ég svolítið sem ég ætla að gefa þeim í auka brúðargjöf, fann það á vef sem sendir vörur eingöngu til Bretlands en með hjálp góðra manna hefur því verið reddað. Ég er ekkert smá þakklát fyrir það vegna þess að þetta sem ég er að kaupa var lang, lang flottast í þessari búð.

Það eina sem ég get ekki ákveðið er hvað ég á að gefa þeim í brúðargjöf.

Hafi þið einhverjar tillögur?


| anna | 10:25 |
comments

Verð að viðurkenna að einu sinni var ég ung og vitlaus og ákavað að gifta mig. Silly me. Það er nú samt ekki í frásögur færandi þar sem að það er einhvers annars saga núna.....en.....

Þegar að við komum á hótelherbergið var búið að strá rósarblöðum yfir allt rúmið og fallega skreytt flaska lá í því miðju. Mér fannst þetta voðalega rómó.

Þegar að flaskan var hins vegar skoðuð kom í ljós að þar var íslenskur Tindavodki mættur í allri sinni dýrð. Mér þótti það pínu skrítið en..........

...þegar svo lagst var í rúmið blómum prýdda heyrðust brak og brestir og eitthvað var það nú óþægilegt.

Grínararnir höfðu stráð kornflexi yfir allt lakið.
Það fannst mér ekkert rómó.

Af því að ég var enn ung og vitlaus þegar að bróðir fyrverandi (grínarinn) gifti sig skömmu seinna, var ákveðið að hrella á móti. Vitandi að bróðirinn er landsfrægur fyrir yfirdrifinn fíflagangshúmor var farið alla leið.

Kornflex-fánum, borðum, pökkum, kössum auglýsingaspjöldum, öllu sem hægt var að fá frá Kellogg's umboðinu var troðið inn í herbergið hjá brúðhjónunum þannig að vart sást í það fyrir drasli.
Það var örugglega ekkert rómó - en mér finnst það samt alltaf pínu fyndið. Kannski vegna þess að ég er ennþá vitlaus.

Niðurlag: Hvorugt þessara hjónabanda entist, þannig að kannski er betra að sleppa svona bjánagangi. Maybe it sets the tone. clown

Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 10.05.2006 | 11:07:18 | [+] |

Mér finnst einmitt ekkert hallærislegra en akkúrat þetta og mér finnst það ekki einu sinni fyndið. Trúi að þér hafi fundist ágætt að gjalda líku, en eins og þú bendir á.. þá var ekkert átakanlega spennandi að vera on the receiving end.

Mín spurning. Myndir þú gera þetta svona í dag eða myndirðu gera eitthvað allt annað.

Tek fram að það var ekkert gæsapartí áður en ég gifti mig. Ég saknaði þess aldrei.

Nr. 2 | posted by: anna | 10.05.2006 | 11:24:36 | [+] |

eiga þetta að vera góðar eða vondar hugmyndir?

Nr. 3 | posted by: Gestur | 10.05.2006 | 11:28:05 | [+] |

hmm.. skil þig eiginlega ekki Gestur..

Nr. 4 | posted by: anna | 10.05.2006 | 11:33:25 | [+] |

Ég er nú svo gamall að þetta tíðkaðist ekki í mínu ungdæmi. Reyndar tíðkuðust giftingar ekki, þannig að flestir vinir mínir og vinkonur sem hafa hangið í langtímasamböndum eru ógift, þrátt fyrir 25 ára sambúð og barnafjöld.

Svo gifti ég mig fyrir 8 árum. Ég man ekki eftir því að nokkur hafi minnst á gæsun eða steggjun.

Nr. 5 | posted by: Elías | 10.05.2006 | 11:59:42 | [+] |

grín eða alvara? maður veit ekkert hvernig smekk þau hafa.

Nr. 6 | posted by: Gestur | 10.05.2006 | 12:02:10 | [+] |

Ekki gift mig hingað til - en tek undir það með þér að mér finnast Gæsa/Steggjapartí sem ganga út á "að reyna að gera lítið úr fólki" vera alveg sorgleg. Hef þess vegna vegna ákveðið að ef einhvern tíma kæmi til þess að ég gifti mig þá gerist það í útlöndum og hef meira að segja fundið kirkjuna líka - http://en.wikipedia.org/wiki/Santo_Domingo%2C_Oaxaca

colgate

Nr. 7 | posted by: Simmi | 10.05.2006 | 12:03:39 | [+] |

Gefur maður grín gjafir í brúðargjöf? doubt

Nei það er nefnilega vel hægt að gera þetta þannig að það sé bara skemmtilegt. Dettur mér annað í hug, Linda, þessi fyndni gæji sem stóð fyrir kornflakes-inu.. fannst honum þetta ekki hræðilegt? Það er nefnilega yfirleitt þannig að þeir sem ganga harðast fram í kvikindisskapnum þola svo ekki þegar aðrir koma eins fram við þá.

Nr. 8 | posted by: anna | 10.05.2006 | 13:35:59 | [+] |

Ég gefst upp. silent

Nr. 9 | posted by: Gestur | 10.05.2006 | 13:44:17 | [+] |

Nei, ég myndi ekki gera þetta í dag. En þetta var líka aðallega til að gjalda líku líkt. Gæjanum fannst þetta fyndið - enda þannig týpa - ekki viss um konuna hans.

Mín gæsun var frekar lame. Eitthvað vandræðalegt kaffiboð sem skildi lítið eftir. En ég fékk æðislega falleg brúðarnærföt gefins. Það man ég og mér þótti vænt um það. Hefði ekki fílað að fá dildó t.d. - átti gæinn ekki að sinna þeirri deild??

Svona rugl veislur geta og hafa endað í slysum og óförum

Mér finnst dekur og góður matur í góðra vina hópi góð gæsun og kannski einmitt eitthvað svona sætt í pakka. Mér finnst alltaf gaman ef að fólk er búið að setja saman atriði eða eitthvað - en þá er ég líka svo korný.

Brúðargjafir sem ég vildi fá í dag t.d.:
(allt sem við gætum gert saman)

Sælkerabakki með góðu víni og kerti.
Helgi í bústað
Dekurdagur fyrir okkur bæði
Dansnámskeið (Tangó.... eða eitthvað)
Jöklaferð á vélsleða
Rómantískur Ratleikur
Nuddolíur og bók um nudd
Ferðaáætlun fyrir lífið - búið að setja saman staði og annað til að sjá.......
Allt sem að viðkomandi þ.e. gefandi hefur búið til, sett saman eða skapað á einhvern hátt sjálfur. Það voru gjafirnar sem ég hélt upp á. Allt hitt mátti missa sín.

Nr. 10 | posted by: Lindablinda | 10.05.2006 | 14:04:22 | [+] |

Sko. Lífið er bara fokking korný stundum! Það er korný og væmið og hallærislegt og mongo OG ÉG MYNDI EKKI VILJA HAFA ÞAÐ NEITT ÖÐRUVÍSI! smile

Nr. 11 | posted by: anna | 10.05.2006 | 14:14:37 | [+] |

ég fer alltaf að gráta í brúðkaupum og já, það er örugglega hallærislegt að viðurkenna það.

gifti mig sjálf í rauðum kjól (í fornöld). hafði aldrei heyrt um gæsapartí.

Anna - mér sýnist þú vera á hárréttri leið (með skynsamlegar og skemmtilegar pælingar) og brúðhjónin eru ljónheppin að eiga þig að smile

Nr. 12 | posted by: baun | 10.05.2006 | 15:12:18 | [+] |

Ég tárast alltaf en í þessu brúðkaupi mun ég líklega fara að gráta.

Dem it! hahaha

Nr. 13 | posted by: anna | 10.05.2006 | 16:44:39 | [+] |

Ég tek undir skoðanir önnu varðandi gæsun og steggjun.

Lykilatriðið er að það sem gert er hæfi þeim sem á að gæsa eða steggja. Það er hann/hún sem á að njóta þess - með hinum. Ekki hinir að njóta þess - á kostnað hans/hennar.

Nr. 14 | posted by: igor | 10.05.2006 | 18:45:42 | [+] |

ég var einmitt á tímabili hrrrikalega fegin að hafa gift mig áður en þetta gæsa/steggjarugl komst í tísku. Hefði samt verið fínt að fá eitthvað svona eins og meinvill og fleiri lýsa.

Brúðargjafir, humm. Varla fer hún í neitt (mega) fjallaklifur eða rafting með krókódílinn. En svona eitthvað rómantískt hljómar vel - sérstaklega fyrir barnið. Við fengum einu sinni gjafabréf upp á 3 passanir svo við gætum gert eitthvað fyrir okkur sjálf. Tótal snilld.

Nr. 15 | posted by: hildigunnur | 11.05.2006 | 16:36:04 | [+] |

heyrðu! Það er engin smá snilld! Ég ætla að láta svoleiðis fylgja með. Enda kem ég sjálfsagt til með að reyna að stela þessum krókódíl ef ég þekki mig rétt.

Get ekki beðið eftir að hann komi í heiminn, sver það...

Nr. 16 | posted by: anna | 11.05.2006 | 16:41:06 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web