Mánudagur, 29. maí 2006
Í dag tókst mér loksins að finna gjöf til að gefa Gulla og Júlíu í brúðargjöf. Það þýðir að ég gef þeim þríþætta gjöf því í fyrramálið er maður að fara til London og í leiðinni ætlar hann að ná í hluta gjafarinnar fyrir mig sem var keypt í breskri verslun og situr þarna í kassa úti og bíður eftir að komast í mínar hendur svo ég geti pakkað því inn með slaufu. Hann er þvílíkt að redda mér því þessi verslun sendir ekki vörur til Íslands.
Ég var í bölvuðum vandræðum með hvað ég ætti að gefa þeim en svo mundi ég eftir svolitu sem mig er sjálfa búið að langa í síðan það varð fáanlegt - mjög eigulegur gripur svo ég keypti svoleiðis handa þeim. Ég reikna alltaf með að fólk sé að gifta sig "for life" og þessvegna vil ég gefa alvöru gjöf. Ég vil líka ekki gefa gjöf eins og pönnu eða einn fokdýrann disk eða eitt glas, mér finnst það mongo. Mig langar að gefa eitthvað sem.. sem fólk á lengi og helst alla ævi. Þau bjóða reyndar ekki uppá svoleiðis diska dæmi þar sem þau neituðu að vera með gjafalista en það eina sem þeim langar að fá er Kitchenaid vél. Sem var líka það eina sem mig langaði að fá í gjöf þegar ég gifti mig - en fékk ekki svo ég keypti mér hana bara sjálf og hef svo sannarlega aldrei séð eftir því.
Og ég fann gjöfina!
Loksins. Ég var hreinlega farin að missa svefn yfir þessu því mér er bara alls ekki sama hvað ég gef henni systur minni í gjöf þegar hún giftir sig.
Oh ég hlakka svo til að sjá þau og ég er búin að kaupa tissjú í gámavís því ég mun gráta úr mér augun þegar litla dúllu systir mín er orðin FRÚ.
Er í svo miklu stuði, búið að vera gaman hjá mér og krökkunum eftir vinnu í dag. Fórum í bíltúr og hlustuðum á Bobby Darin á milli þess sem við plönuðum óvissu-veiðiferðir í sumar.
Hlakka svo til. Er að fara að kaupa veiðigræjur um helgina..