www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Á lyfjum
Sunnudagur, 21. maí 2006

Andlitið á mér er MESS.

Ég er sannfærð um að þetta þunglyndi sem á að fylgja lyfjunum er ekki beinlínis lyfið sjálft heldur afleiðingar þess. Það er ekkert auðvelt að vera með svona flösu í framan og ef maður hnerrar dettur hálft andlitið af. Í alvöru. Þurrkublettir útum allt - ég er orðin eins og Madeline og Helen í fokking Death Becomes Her þarna undir það síðasta þegar þær voru báðar dauðar og að flagna!

Spes.

Fólk sem hefur meiri bólur en ég og fer á þetta lyf sem bætir á þær, þó að húðin sé að hreinsa sig.. þá er þetta bara ömurlegt ástand. Ef húðin undir því sem dettur af væri ekki orðin eins og á fokking ungabarni, fyrir utan blettina eftir bólurnar, væri ég vissulega orðin mjög þunglynd.

Eins asnalegt og það er að tala um heppni í þessu sambandi er ég samt í raun mjög heppin því hreinsunin virðist ganga ótrúlega vel hjá mér, sýnist þetta langt komið. Drottningabólurnar í kinnunum, held ég eigi tvær eftir hægra megin og fjórar vinstra megin. Sé ekki betur. Ef ég held áfram að vera heppin á ég kannski tvær vikur eftir í hreinsun og þá er bara að bíða eftir að húðin jafni sig.

Læknirinn sagði að hann gæti gefið mér ákveðið svar með hvað ég þyrfti að vera lengi í viðbót á lyfjunum þegar ég hitti hann næst - svo það verður spennandi að vita.

Ég er komin með sár í bæði munnvikin, samt er ég mjög dugleg að bera á þau varasalva og það verður erfiðara og erfiðara að halda vörunum góðum. Eða.. ekki góðum.. ásættanlegum. Það er langt síðan varirnar á mér voru "góðar". Samt eru þetta einu aukaverkanirnar sem geta kallast óþægilegar.

Samhliða þessum lyfjakúr er ég búin að vera í systematískri fitun undanfarið sem hefur gengið vel, fyrir utan að þetta sest alltaf beint á brjóstin á mér svo það er eins og ég sé búin að fara í sílíkon aðgerð. Get ekki beðið eftir að komast í ræktina til að dreifa þessu og vekja upp vöðvana mína aftur. Vona að ég geti haldið mér í þessar þyngd. Vil ekki vera léttari. Ekkert gaman að vera eins og tannstöngull.

All in all.. þá er þetta allt á réttri leið.

Það verður magnað að geta farið í sund án þess að líða illa útaf andlitinu á sér eins og mér leið þegar ég var með þetta ógeð framaní mér. Það verður nú ekki fyrr en í lok sumars - ef ég held áfram að vera heppin. Má náttúrlega ekki vera í sól..


| anna | 12:54 |
comments

Venn ze goingoing getz tough, ze tough bíta á jakzlinn.

Megi jakzlarnir þínir sýna styrk sinn og koma þér heilli á geði í gegnum þezza eldraun happy

Ég efast ekkert um það að þegar þú gengur út úr þessu eldhafi, þá höfum við hin grætt miklu flottari Önnu. wink

Sílíkonaðgerð ? Á maður að mæta með myndavél ? Borgar DV vel fyrir sílíkonumyndir ? angel

Nr. 1 | posted by: Þór | 21.05.2006 | 14:01:48 | [+] |

Er ekki hægt að skella bara flösusjampói á þetta?
Það skítvirkar í auglýsingum. clown

Nr. 2 | posted by: Lindablinda | 21.05.2006 | 20:53:14 | [+] |

Ég hugsa nú að margar konur yrðu alveg sáttar við að umframkaloríur settust á barminn en ekki aðra óheppilegri staði neðar á líkamanum happy . Getur þá líka huggað þig við það að helmingurinn af sundlaugargestum kemur ekki til með að spá neitt í hvort þú ert með bólur eða ekki if you know what I mean ...

Nr. 3 | posted by: Hugz | 22.05.2006 | 9:16:39 | [+] |

Já, ég væri alveg til í að umframkaloríurnar þínar töluðu við umframkaloríurnar mínar og kenndu þeim trixið. Við að lenda í brjóstunum altso smile

Nr. 4 | posted by: Sigga | 22.05.2006 | 10:51:40 | [+] |

Ég veit alveg hvað þú ert að meina. Hefur þú prófað að vera mjög bólugrafinn?

Ef þú hefur prufað það, þá veist þú hvað ég er að meina.

Nr. 5 | posted by: anna | 22.05.2006 | 10:52:33 | [+] |

Sigga: Ég gæti trúað að trixið sé að segja þeim að gera það.

Ekki gleyma.. the power of your subconcious mind. Kannski muna þær ennþá eftir þessu sem ég las yfir þeim þarna..

Nr. 6 | posted by: anna | 22.05.2006 | 10:58:00 | [+] |

Ójú .. ussssss ég hef verið pizzafeis. Og það á viðkvæmasta aldri. Ekki skemmtilegt. Hins vegar er ég ekki með brjóst og hef því ekki náð að prófa þessa samsetningu.

Nr. 7 | posted by: Hugz | 22.05.2006 | 11:51:32 | [+] |

Já er það? Og fannst þér ekkert mál að fara í sund og vera með pizzuna þarna uppúr vatninu?

Mér finnst það óþægilegt og kannski er það líka vegna þess að ég er að nálgast ELLILAUN og Á ekkert að vera með bólur núna.

Mér finnst þetta asnalegt og eins og ég sagði lækninum þá er ég fráskilin, að nálgast fertugt, má ekki fá mér hund þannig að ef ég á að eiga einhvern fokking séns þá verð ég að losna við þetta..

Nr. 8 | posted by: anna | 22.05.2006 | 11:57:41 | [+] |

Mér fannst sund hell enda voru þessar bólur nú ekkert að halda sig við fésið á manni. Var bólugrafinn ofan vatnsborðs og neðan. Enda fór maður nú ekki sund á þeim tíma sér til skemmtunar. Held jafnvel að ég sé enn í dag með ímyndunarbólur ...

Nr. 9 | posted by: Hugz | 22.05.2006 | 12:02:23 | [+] |

Já þannig að þú skilur hvað ég á við. Þetta er nefnilega ömurlegt og það skiptir engu máli þótt flestir séu ekkert að pæla í þér. Ef maður er að fara með einhverjum sem maður er t.d. hrifinn af.. það er martröð í helvíti þó maður reyni eins og maður geti til að láta sem ekkert sé.

Og ég er bara með bólur í andlitinu. Hvergi annarstaðar. Það er eins og það sé einhver skipting þarna við hálsinn eða kjálkann. Ég er bara eins og monster frá kjálka og upp.

Nr. 10 | posted by: anna | 22.05.2006 | 12:10:39 | [+] |

Monster ?

Það væri sennilega það síðasta sem ég færi að líkja þér við happy

Þig vantar *BIG*HUG* og ef það væri ekki svona freggin' kalt úti og skafrenningur á Langholtsvegi, þá kæmi ég með ís.

Nr. 11 | posted by: Þór | 22.05.2006 | 13:18:57 | [+] |

Long time, not written... en alltaf lesin reglulega! Hvernig fer maður að því að stjórna ákvörðunarstað fitunnar? Hef lengi reynt, fer alls staðar annars staðar en á brjóstin. Er hætt í fitun. melodramatic

Nr. 12 | posted by: Unnur | 23.05.2006 | 14:24:00 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web