Fimmtudagur, 11. maí 2006
Fyrir nokkrum mánuðum síðan leitaði til mín maður og bað mig að gera fyrir sig heimasíðu. Hann sagði mér hvað hann vildi og ég byrjaði að vinna. Við vorum í tölvupóstsambandi og ég sendi tillögur, hann sendi myndir. Þegar kom að því að hitta manninn fór ég heim til hans eftir vinnu einn daginn. Þar settumst við niður við tölvuna hans og ég sagði honum hvað mér fyndist um þetta og hitt og við fórum yfir málið. Honum leist mjög vel á alltsaman og mér fannst verkefnið mjög spennandi og hlakkaði til að vinna við það.
Þegar ég kom heim var ég in high spirits. Tuttugu mínútum seinna hringdi hann í mig og sagði mér, í hálfum hljóðum, að hann yrði því miður að hætta við. Konan hans hafði bannað honum að skipta við mig því þegar hún sá mig varð hún afbrýðisöm.
Ég sat með símtólið í höndinni og bara.. come again?
Jebb. Maðurinn var ekki að grínast.
Ég sat lengi í stólnum mínum í hálfgerðu losti eftir þetta símtal. Fyrir framan mig fyrsta uppkast að síðunni - sem ég hef aldrei notað. Rassgat því ég var búin að búa til helv flott lógó fyrir hann.
Ég hef lært af reynslunni. Ef ég þarf að funda með giftum mönnum vegna heimasíðu, hitti ég þá helst heima hjá mér, ef ég neyðist til að fara heim til þeirra geri ég það eingöngu þegar ég er ekki búin að fara í bað í þrjár vikur og svo treð ég uppí mig sesamfræjum og læt þau festast á milli tannanna. Þörungar eru líka góðir. Ég túbera hárið útí allar áttir - hægra megin - eins og ég sé nývöknuð og svo set ég meira að segja á mig old spice frá pabba sem ég fann í geymslunni snemma í vor. Fer í ólögulegu hnésíðu pilsi með órakaða leggi og í ökklaháum gúmmístígvélum.
Hef ekki tapað fleiri verkefnum útá afbrýði - to date. Þeir hætta samt allir við af öðrum ástæðum og ég get ekki ímyndað mér hvaða ástæður það gætu verið. hehe
Maðurinn sem kom hingað í kvöld og ég er að fara að vinna fyrir sagði mér að ég þurfi að fá mér endurskoðanda. Ég er búin að hugsa málið og líklega er þetta rétt hjá honum, verð að viðurkenna að þetta er að vinda meira uppá sig en ég reiknaði með.
Kaldhæðni örlaganna.
Ég þarf að fá mér endurskoðanda. Mér finnst þetta á vissan hátt alveg óborganlega fyndið en hef ákveðið að setja auglýsingu í Morgunblaðið:
Endurskoðandi óskast.
Endurskoðandinn þarf að vera karlkyns á aldrinum 33-37. Hann þarf að vera hár og þreklega vaxinn en ekki hel massaður. Endurskoðandinn má ekki vera með strípur eða gervibrúnku. Endurskoðandinn þarf að vera ógiftur, barnlaus og með dökka skeggrót. Má vera latur að raka sig en aldrei svo að hann fái sítt alskegg. Þetta er samningsatriði. Má vera leiðinlegur en það er ekki skilyrði. Þarf að vera sterkur og með fallegar hendur. Verður að ganga um í jakkafötum. Viðkomandi mun aðallega sjá um bókhald en einnig er gerð krafa um að hann útdeili viðeigandi refsingum vegna fyrirliggjandi bókhaldsóreiðu. Ætlast er til þess að endurskoðandinn útvegi sjálfur nauðsynleg áhöld sem þessar refsingar krefjast. Endurskoðandinn verði til taks hvenær sem er sólarhings ef upp kemur óvænt bókhaldsóreiða sem krefst tafarlausrar refsingar.
Áhugasamir sendið mér póst
En svona grínlaust, þá þarf ég í alvörunni að fá mér endurskoðanda.
By the beard of Zeus!