8. sunnudagurinn af Roaccutan
Sunnudagur, 28. maí 2006
Ég er farin að finna fyrir þurrk inní nefinu núna en get ekki sagt að ég þjáist neitt sérstaklega.
Varirnar á mér ennþá smá bólgnar en mér tekst alveg að halda varaþurrkinum niðri með því að vera dugleg að bera Lanshinoh á þær. Tip sem ég fékk frá henni Jóhönnu Ýr. Hún hefur ekki verið á svona lyfjum en sagði mér að hún væri oft með varaþurrk og þetta væri bara málið.
Hún var ekkert að plata.
Jújú.. þetta er ekki selt sem varasalvi.. en þetta er líklega einn besti varasalvi sem ég hef notað. Áður en karlmenn sem þjást af varaþurrki hlaupa útí apótek til að kaupa Lansinoh langar mig að deila með ykkur að þetta er smyrsl sem er ætlað konum sem eru með barn á brjósti - og hafa viðkvæmar geirvörtur.
Húðin á mér lagast með hverjum deginum og ég er farin að fara meira út meðal fólks. Ég er ekkert hrikalega þurr í framan, kemur mér eiginlega á óvart.
Já ég er orðin þurr á höndunum líka. Þarf að nota handaáburð mikið. Fyrir utan þetta er ég í góðum málum. Er ekki þunglynd eða lífsleið, enda er það sjaldgæf aukaverkun með þessu lyfi. Er bara all around hress. Kannski pínu þreytt, búin að vera mjög dugleg að vinna um helgina, skila af mér á morgun. Get samt ekki fundið útúr ákveðnu útlitsdæmi fyrir næsta verk. Sef á því í nótt.