www.anna.is
ravings of a lunatic í maí 2006
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Ég um mig frá mér til mín
Mánudagur, 01. maí 2006

Um daginn ákvað ég að taka mér frí í vinnunni og eyða lunganu af tveimur vikum í að skrifa sögu sem slagar nú hátt í bókalengd. Ég er ekki búin að birta allt sem ég hef skrifað en ég er búin með nánast 60% af sögunni þó ég viti að ég komi til með að laga og breyta miklu, þá fer ekki eins mikil orka í það og að skrifa grunninn og auðveldara að gera það í hjáverkum.

Þegar þú ert komin með grunninn er nefnilega töluvert mikið búið.

Þetta var ekki mikil breyting á daglegri rútínu fyrir mig, ég sat fyrir framan tölvuna og pikkaði. Ég eyði hvort sem er miklum tíma fyrir framan tölvuna því hún er verkfærið sem ég nota við vinnu mína. Fólk sem hefur ekki þekkingu á því hvernig hægt er að nota tölvur skilur oft ekki hversu öflugt verkfæri tölvan er og skilur því síður hvernig einhver getur eytt svona miklum tíma fyrir framan hana. Þetta skapar ákveðið "ímyndarvandamál", fólk er oft haldið þeirri ranghugmynd að allir sem eyða svona miklum tíma fyrir framan tölvu séu að "leika sér".

Merkilegt hvað þetta er algengt.

Ég á t.d. vinkonu sem er búin að "leika sér" í fjöldamörg ár í tölvunni í fjarnámi og núna er hún allt í einu orðin stúdent og á leiðinni í háskóla.

Nú vill svo til að mér finnst það sem ég er að gera í tölvunni ekki leiðinlegt svo ég get ekki svarið af mér að ég sé að hluta til að leika mér, en síðast þegar ég vissi var allt sem aflaði manni tekna kallað vinna og því lýg ég engu þegar ég segist vera að vinna í tölvunni, fólk er svo sannarlega að borga mér peninga fyrir það sem ég er að gera.

Með þessari vinnu hef ég aflað mér aukatekna sem fara í að borga reikninga, kaupa munað eins og föt og stundum nauðsynjavörur sem ég hefði annars ekki efni á. Ég fæ ekki styrki frá féló eða peninga frá ættingjum og vinum. Ég fæ lögbundið meðlag og afar og ömmur koma stundum með föt á krakkana færandi hendi.

En það er tímafrekt að vinna og með því geng ég á tíma sem ég gæti annars eytt með fjölskyldunni minni. Á móti kemur að þetta væri þá tími sem ég myndi eyða með kvíðahnút í maganum yfir því að ég hefði ekki efni á að borga alla reikninga um hver mánaðarmót og nauðsynjavörur eins og t.d. gleraugu fyrir börnin mín.

Það er nefnilega engin sem býðst til að borga þessa hluti fyrir mig.

Í fullkomnum heimi gæti ég verið heimavinnandi. Já, ég segi þetta og skrifa. Heimavinnandi. Ég myndi vakna fyrir klukkan sjö, fara í sturtu, klæða mig, elda hafragraut, bera á borð aldinsafa og ristað brauð. Þvo börnunum mínum og klæða í nýju fötin sem ég hafði tíma til að versla daginn áður og fylgja þeim í skólann, kveðja með kossi.

Í fullkomna heiminum ætti ég nefnilega peninga til að kaupa föt fyrir börnin mín, þrátt fyrir að vera heimavinnandi.

Í þessum fullkomna heimi gæti ég þrifið heimilið á daginn, jafnvel lagt mig ef ég væri þreytt, bakað og gert fleira notalegt. Þegar börnin kæmu heim væri ég ekki útkeyrð, nei. Ég myndi gefa þeim að drekka og hjálpa þeim með lærdóminn áður en ég sendi þau út í leik á meðan ég færi að undirbúa kvöldmatinn.

Ég held að allt fólk sem hefur smá sans fyrir raunveruleikanum sé löngu búið að átta sig á því að þessi fullkomni heimur sem ég er að lýsa er tálsýn þegar um venjulegt einstætt foreldri er að ræða. Nema þá sem hreinlega lifa á styrkjum frá féló og geta ráðstafað dögum sínum eftir eigin hentugleika. Þessi tálsýn er ekki einu sinni á færi flestra útivinnandi foreldra og ég er ekki svo skini skroppin að ég láti mig dreyma um að vera heimavinnandi í raunveruleikanum. Ég þekki ekki fólk sem situr á kvöldin og spilar lúdó við börnin sín. Því miður er þetta oft þannig að foreldrarnir eru á einni hæð og börnin í sínu herbergi hvert. Öll samskipti fara fram með öskrum á milli hæða og herbergja.

Hversu hollt og uppbyggilegt sem það nú er.

Ég er hinsvegar ekki svo vel stæð að börnin mín eigi sitt hvort herbergið. Ég er ekki heldur með skrifstofu sem ég get stundað vinnu mína í svo tölvan er staðsett í miðri íbúðinni. Þannig er ég oftast hjá börnunum þó ég detti vissulega oft úr í sambandi þegar ég einbeyti mér við að leysa þau verkefni sem fyrir mér liggja.

Lúxus, eins og sá sem ég lýsi hér að framan, var bara ekki í spilunum hjá mér og ég kæri mig ekki um að fara á féló. Ég gæti það ekki einu sinni þó ég vildi það, féló myndi ekkert fyrir mig gera. Þeir gera ekkert nema fyrir fólk sem hefur lágar tekjur og ég sýni því fullkominn skilning. Ég hef háar tekjur en ég skulda mikið. Þó ég geti sýnt frammá að ég sé með tekjur undir sultarmörkum til að spila úr þegar búið er að greiða af öllum lánum þá þjást börnin mín "því miður" ekki af ofvirkni eða athyglisbresti svo það eru engin "stig" þar. Við erum útí kuldanum þegar kemur að féló. Þeir vilja bara skjólstæðinga sem eru komnir til að vera.

Það blasir við að ef ég ætla að geta boðið börnunum mínum og mér uppá þau lífsgæði sem fjárhagslegt öryggi er, þarf ég að leggja meira á mig en dagvinnuna. Ég er þreytt. Ég er oft stressuð. Ég sef oft minna en ég ætti að gera og ég gef mér ekki tíma til að stunda líkamsrækt lengur eins og ég gerði á tímabili af því ég hef nóg af verkefnum sem borga mér peninga og þau eru ofar í forgang.

Nú hefur mér verið bent á að finna mér bara ríkann mann og giftast honum. Ég er líklega svo heimsk að ég vil frekar vera ein og þurfa að hafa meira fyrir hlutunum en að selja mig manni sem ég elskaði ekki. Ást er svo miklu meira virði í mínum huga en svo að peningar geti komið í staðinn fyrir hana og ástlaust hjónaband er ekki eitthvað sem ég óska mér eða börnunum mínum að búa við.

Ekki séns.

Hvert eitt og einasta verkefni sem ég tek að mér styttir hinsvegar það sem ég kalla afplánunina. Ég hef nefnilega kynnst því helvíti sem það er að geta ekki staðið í skilum og ég er smám saman að borga mig út úr því helvíti. Helvíti nær eiginlega ekki alveg að lýsa þeirri stöðu að eiga ekki peninga fyrir lágmarks lífsnauðsynjum eins og húsnæði og mat. Það vill engin lifa á þurru hrökkbrauði endalaust og þúsundkall fær alveg nýja merkingu þegar maður á bara hundrað kall. Það má kaupa brauð, smjör, mjólk og álegg fyrir þúsundkall. Þú færð bara hrökkbrauð fyrir hundrað.

Ef mér heldur áfram að ganga svona vel, þá á ég ekki svo langt eftir. Kláraði að borga tvö lán á síðasta ári og núna er ég að borga inná yfirdráttinn sem klárast vonandi snemma á næsta ári. Þetta gerist hægt, en bítandi.

Þegar ég er ekki að vinna eyði ég þeim frítima sem ég hef í að reyna að halda heimilinu í horfinu, þvo þvott, reyna að hafa heitan mat á kvöldinn (þrátt fyrir að börnin mín fái bæði heitann mat í skólanum á daginn) og spyr þau hvernig dagurinn var, á handahlaupum yfir kvöldmatnum.

Ég drekk ekki. Ég djamma ekki. Ekki á ég kærasta eða "vin" sem tekur frá mér tíma, athygli eða orku. Ég legg ekki stund á kaffihús, leikhús, veitingahús, kvikmyndahús (lengur) eða aðra mannfögnuði af nokkrum toga. Ekki fer ég á snyrtistofur í vax eða naglasnyrtingu. Ég lita ekki einu sinni á mér hárið. Ég lifi svo sannarlega ekki hátt. Er mest megnis heima hjá mér - punktur.

Jú ég fæ stundum gesti og fer sjálf í heimsóknir með börnin en eins og allir sem vinna úti vita er frekar tilgangslaust að vera að þvælast í heimsóknir á virkum kvöldum svo ég geri frekar lítið af því. Mér finnst mikilvægara að börnin séu komin í ró á skikkanlegum tíma. Ég held úti þessari sjálfhverfu síðu og hér fer mitt félagslíf að stórum hluta fram. Ég endurnýjaði meira að segja alla síðuna nýlega og eyddi í það töluverðum tíma. Það gera sjálfsagt ekki allir sér grein fyrir því að sú vinna hafði annan tilgang en bara þann að "fegra" heimasíðuna mína. Þessi vinna hefur þegar skilað sér í heimasíðum sem ég er að vinna fyrir aðra og hún mun halda áfam að gera það, eins og ég reiknaði með að hún myndi gera.

Lykilorðið hér er "templates" og þetta er mjög gott dæmi um eitthvað sem er ekki.. leikur.

Það má vel gagnrýna mig fyrir að ég skuli ekki eyða meiri tíma með börnunum mínum eða í uppbyggilega dægradvöl með þeim. Ekki ætla ég að halda því fram að ég reki fullkomið heimili, langt því frá. Stundum hleðst upp þvottur og uppvask og drasl útum alla íbúð þegar ég tek vinnutörn. Ég fæ mér ekki sæti á hverju kvöldi eins og ég ætti að gera til að fara yfir lærdóminn með krökkunum og stundum meira að segja gleymi ég að minna þau á að fara í bað! En ég er að reyna, það verður svo sannarlega ekki af mér tekið og fólk sem vill að ég geri betur ætti að prufa að hvetja mig áfram í stað þess að tilkynna mér að ég hugsi ekki um neitt annað en sjálfa mig. Hvatning væri svo miklu nær lagi því stundum er ég svo þreytt og útkeyrð að mig langar hreinlega til að gefast upp.

Að gefast upp er hinsvegar ekki einn af þeim kostum sem ég tel mig hafa í stöðunni.

Ég hata að vita að ég sinni börnunum mínum ekki eins vel og ég myndi gera ef ég væri ekki að vinna svona mikið en ég hata meira að hugsa til þess að ég nái ekki endum saman aftur. Það þarf ekki doktorsgráðu til að sjá hvernig það myndi fara. Með því að vinna mikið sé ég fram á að ég geti einn daginn fengið það sem ég þrái, að búa við fjárhagslegt öryggi og haft frítíma sem ég get eytt með fjölskyldunni minni.

Það er markmiðið.

En ég er vissulega þrælsek. Ég tók mér frí gagngert til að sinna þessu áhugamáli mínu sem þessi saga vissulega er. Ég gerði það fyrir sjálfa mig og engan annan. Ég er meira að segja svo forhert að ég er í skýjunum með að hafa gert það og sérstaklega hvað ég náði að afkasta miklu á þessum tveimur vikum.

Það verður svo spennandi að sjá hvort einhver vilji gefa söguna út - ef ég hef tíma til að klára hana einhvertíma. Ég er svo heppin að njóta stuðnings fyrrverandi eiginmanns míns í því máli og hann er virkilega að reynast mér vel. Ef það gerist, þá hættir þetta sjálfkrafa að heita "frí" og verður kallað vinna.

Vinna sem mun mögulega skila mér tekjum sem færa markmiðið mitt kannski örlítið nær.

Hver veit.

Í öllu falli var þetta kærkomið frí og þrátt fyrir að ég hafi setið nær sleitulaust við tölvuna líður mér eins og ég sé endurnærð. Átti meira að segja inni fyrir þessu, var ekki búin með sumarfríið síðan í fyrra. Á morgun er það hinsvegar back to the trenches.

Þegar ég skildi var ég ákveðin í að koma málum fyrir þannig að börnin mín þyrftu ekki að búa við endalaus óöryggi útaf peningum eða ættu móður sem lægi í rúminu vegna kvíða því hún sæi ekki fram á að geta borgað reikninga næsta mánaðar. Ég ákvað að gera allt sem ég mögulega gæti til að ná þessu fram. Frumburðurinn hefur komið til mín og sagt mér oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að þetta ætlunarverk mitt hafi tekist. Vissulega er víða pottur brotinn og margt mætti betur fara. Ég ætla rétt að vona að fólk sé ekki svo vitlaust að halda að mér sé alvara þegar ég held því fram hérna á síðunni að ég sé fullkomin. Ég er, þegar allt kemur til alls, bara ein manneskja. Mér hefur hinsvegar aldrei gengið eins vel eftir ég hætti alveg að treysta á aðra og fór að treysti eingöngu á sjálfa mig í þessum efnum. Ég er búin að vera dugleg og það er byrjað að skila mér árangri og á hverjum degi færist loka markmið mitt nær. Þó það sé ekki nema bara örlítið.

Ég hugsa ekki um neitt nema sjálfa mig.

Ef þetta.. er að hugsa um ekkert annað en sjálfan sig þá er hér yfirlýsing sem má hafa eftir mér hvar sem er.

Ég ætla að halda því áfram.


Frídagur verkalýðsins
Mánudagur, 01. maí 2006

Ég sendi börnin út í dag svo ég gæti haft íbúðina útaf fyrir mig. Mér finnst nefnilega betra að þrífa þegar ég er ein heima og svo hef ég lesið að ferskt loft sé hollt og gott og ég á til að trúa allskonar svona vitleysu sem ég les í blöðum. Þegar þau komu inn var haglél úti og ég lokkaði þau inní stofu og bað þau um að fá sér sæti áður en ég hóf ræðu mína.

Anna: "Börn! Ég þarf að biðja ykkur að vinna fyrir mig eitt verkefni - í nokkrum liðum. Kemur betur út fyrir mig þannig, eitt verkefni í mörgum liðum er minna en tvö verkefni, ekki satt? Ég átti leið inní herbergið ykkar áðan og þar sá ég föt á gólfinu. Verkefni ykkar er að taka saman öll föt sem eiga að fara í þvott og setja þau í þvottakörfuna, þegar þið eruð búin að því vil ég biðja ykkur að taka þennan þvott sem er hér (bendir á hrúgur af samanbrotnum þvotti á stofuborðinu) og ganga frá honum inní skápa. Öllu nema mínum fötum. Þegar þið eruð búin að þessu ætla ég að láta ykkur fá pening og þið getið farið og fengið ykkur ís! (strækar svona tata pose)

Frumburðurinn hlær, "það er haglél úti mamma."

Anna: "Ég veit! Ef það er ekki rétti tíminn fyrir ís þá veit ég nú ekki hvað!"

Tillaga mín fékk einróma samþykki.

Stuttu síðar.

Frumburður: "heyrðu mamma.. hvar eru þessi föt sem þú sást á gólfinu inni hjá okkur?"
Anna: "ha? Eru engin föt þarna?"
Frumburður: "ég sé engin"
Anna: "Dem it. Þarf ég sumsé að fara til sálfræðingsins næst og segja: "já.. nú er ég farin.. að sjá föt. Á gólfinu. Sem engin annar sér." Af hverju gat ég nú ekki heyrt raddir eins og allir hinir. Það er engin von fyrir mig. Þessu er lokið."
Frumburður fer að skellihlæja, "nei, ég var að sjá það sem þú varst að tala um!"
Anna: "phew"

Miklu seinna í dag.

Anna: "Yngsta barn! Nú ætlar þú að koma og aðstoða hana systur þína við að hengja upp þvott."
(Yngsta barnið hefur sökum aldurs sloppið ótrúlega vel við heimilisstörfin fram að þessu)
Yngsta barn: "ég nenni því ekkert"
Anna: "þú samþykktir að taka að þér eitt verkefni í dag. Þú vissir að verkefnið var í nokkrum liðum og þetta er liður.. c. Eða d. Kannski f - skiptir ekki máli, komdu hingað inná bað"
Yngsta barnið stynur mæðulega og draugast af stað

Á meðan ég er að kenna honum að slökkva á þvottavél, opna hana, setja balann fyrir framan og taka þvottinn úr, tékka á hvort eitthvað er eftir í vélinni segir hann:
Yngsta barn: "ég vil fá laun fyrir þetta"
(grundvallarmunurinn á kynjunum. Frumburðurinn hefur aldrei heimtað laun fyrir vinnu sína á heimilinu þrátt fyrir töluverða vinnu - mér finnst þetta athyglisvert)
Anna: "þú ert að fá laun fyrir þetta á hverjum degi, húsaskjól, mat og föt"
Yngsta barn: "dem it! (ég tók þetta dem it upp frá honum) cheater!"
Anna: "ég er ekkert cheater, ég er bara eldri en þú og töluvert reyndari í samningaviðræðum"
Yngsta barn: "DOH"


| anna | 18:56 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Örar niðurstöður - allt að gerast
Mánudagur, 01. maí 2006

calculus.gifLesendur eru flestir sammála mér um að hann eigi að heita Accountant King Calculus. Málið er þetta með ofurhetjumerkið.

Ég vil að ofurhetjumerkið hans sé A - svo ég geti samnýtt það þegar mér hentar. Hann heitir nefnilega ekki Accountant, hann er það. Alveg eins og spiderman heitir ekki spiderman, hann er það.

Er ekki soldið asnalegt að ofurhetju-essensið komi í miðjunni? Þó að það hljómi eiginlega betur. King Accountant Calculus. Ég þarf aðeins að velta þessu betur fyrir mér.

Nú vitiði hvernig Hörpu líður most of the time þegar ég hef spurt hana álits.

Annars fannst mér alveg frábært kommentið frá Begga.com um að þetta héti "örsmæðareikningur". King Accountant Calculus er nefnilega með minnsta hjarta í heimi svo þetta gæti ekki átt betur við. Hann er ekki smástærð þegar kemur að andans málum - hann er ör, og það hjálpar honum því þótt óvinir hans skjóti hann og stingi, þá hitta þeir ekki hjartað sem danglar þarna pínku ponsu lítið inní brjóstkassanum hans. Þetta er eitt af ofurhetjuhæfileikunum hans King Accountant Calculus og ef hann gerir góðverk þá stækkar hjartað aðeins og það setur hann í bráða lífshættu því hann á svo mikið af óvinum sem vilja vinna honum mein. Annað sem hann gerir. Ef King Accountant Calculus ætlar að myrða einhvern með hættulegu bréfaklemmunum sínum og saga af honum útlim með stóra þunga bréfahnífnum sínum, þá sendir hann þeim fyrst sápukúlur. King Accountant Calculus hefur nefnilega gaman að því að blása sápukúlur og vill gefa öllum tækifæri á að gera það áður en þeir deyja.

"And when you're dead.. you'll never blow bubbles again."

Þetta atriði er kannski eitthvað sem ég þarf að skilgreina aðeins betur.
Vil ekki að hann hljómi eitthvað gay or somethin'.

Er að láta mig hlakka til að fara í heitt bað á eftir, með froðu, og láta mig dreyma um atriðið í out of sight.. þegar hún kemur að honum í baði. Djöfull er það hot sena. Held ég skelli myndinni í snöggvast..

Hey! Það var sunnudagur í gær! Það þýðir að ég er búin að vera í mánuð á bólulyfjunum.

Ég er komin með varanlegan varaþurrk og þarf að maka á mig varasalva minnst sjö sinnum á dag. Þar fyrir utan er ég bara þurr í andlitinu en samt ekkert óhugnanlega. Keypti mér Locobase repair og Ceridal lipogel. Þetta Locobase reddaði mér algerlega í gegnum ráðstefnuna, maður verður samt hálf mongo í framan með þetta zinkpasta fyrst og farða yfir en what the hey - ég flagna allavega ekki á meðan. Takk Halldóra fyrir það tip! Á morgun prufa ég lipogelið.

Í dag myndaðist bóla á stærð við Heklu á hökunni á mér. Hún sígur í, og ég má burðast með þetta útum allt. Hnén fara bráðum að gefa sig, meinaða. Í stundarbrjálæði reyndi ég að kreista hana áðan en þessi er komin til að VERA. Ég yrði ekki hissa ef þetta væri svona bólu avenger, komin til að hefna allra hinna sem hafa dottið af. Hún HATAR mig, ég finn það. En ég er Anna ofurhetja og ætla að kaffæra henni með ást og alúð, er þegar búin að hekla á hana litla húfu með dúskum svo hún geti verið eins og ég. Nema hennar húfa er bleik. Close enough. Í baði ætla ég að syngja fyrir hana ljóð og hugleiða í eins og tíu mínútur hvað þetta er góð bóla. Komin til að breyta heiminum til hins betra.

Ég ætla að skíra hana.. Kleopötru. Aðeins slíkt nafn hæfir ofurbólu af þessari stærð.

Þar fyrir utan er ég verkjalaus og einkennalaus þó ég sé komin stundum með pínu augnþurrk en ég gæti líka bara verið þreytt.


| anna | 21:37 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Tími kraftaverkanna
Miðvikudagur, 03. maí 2006

Ég fór til Dr. Acne í dag. Hann gerði mig svo glaða. Hann náði í skrítnu gleraugun sín og rýndi í húðina á mér í gegnum þau og svo sagði hann að þetta gengi ótrúlega vel, ég væri að hreinsa mig mjög hratt og ef þetta héldi svona áfram gæti ég endað á að vera einungis í þrjá mánuði á lyfinu og þegar meðferð lýkur er ég að öllum líkindum laus við bólur for life.

F - O - R

L - I - F - E

Það er of gott til að vera satt en ég ætla samt að trúa því.

Má það alveg.

Hann sagði mér að brúnu ljótu blettirnir í andlitinu á mér myndu bráðum byrja að dofna og að ég ætti eftir að fá nokkrar svona "drottningabólur" (eins og ég kýs að kalla þær) á kinnarnar og á hökuna og þá væri hreinsunin búin. Honum fannst Kleópatra, drottnari hökunnar, tilkomumikil og hældi mér í mikið fyrir stuðningsspítuna (sem ég bjó til úr hrífu) sem ég hafði með til að halda henni uppi. Ég kem til með að fá einhver ör, hann minntist ekki á það en það er augljóst, nóg að líta í spegil í dagsbirtu til að átta sig á því. Hann sagði mér samt að lyfið minnkar örin og til frambúðar. Sjáum hversu vel til tekst. Ég verð í raun bara þakklát að losna við þetta ógeð úr andlitinu þó ég sitji upp með einhver ör. Shit happens.

Á morgun eða hinn fer ég í blóðprufu og þá kemur í ljós hvort lifrin í mér sé að höndla þetta. Ef hún er ekki að kópa, verð ég að hætta á lyfjunum strax. Ég vona að ég geti verið á þeim áfram því í raun finn ég mjög lítið fyrir því að vera á þessu svo ég er með fingers crossed.

Ég var búin að drekka heilu lítrana af vatni í morgun áður en ég fór til hans og hann var steinhissa að sjá mig inná skrifstofunni, tíu mínútum eftir að hann var búinn að vísa mér inná baðherbergi. Hann var búin að halla sér í stólnum, setja fæturna uppá borð og var að spjalla makindalega í símann. Hefur líklega átt von á mér með þetta snemma í næstu viku - miðað við hvernig gekk að pissa síðast.

Ég sagði honum að ég hefði verið að undirbúa mig í allan morgun.

Hann fór inní hliðarherbergið sitt með þvagprufuglasið og þegar hann var að sýsla með óléttuprófið sagði ég "ef það kemur eitthvað jákvætt út úr þessu hjá þér, þá neyðumst við til að hafa samband við Vatíkanið". Hann fór að skellihlæja og sagði mér að ESB hefði sett þessi lög varðandi óléttuprófið.

Þegar niðurstaðan í prófinu var ljós kom hann fram og sagði "engin kraftaverk hér í dag." Ég fór að hlæja en svo sat ég lengi og brosti svona.. sad brosi.


Sátt að sofa
Fimmtudagur, 04. maí 2006

Búin að vera að vinna (dag/kvöld/nótt) í gær og í dag. Var að leita að image rollover script-i. Prufaði DOM, það virkaði ekki, prufaði CSS + java combo, það virkaði ekki - allavega nennti ég ekki að finna helvítis xplorer hacks til að það virkaði í xplóder. Að Bill Gates sé ennþá á lífi er gjörsamlega beyond me. Endaði á eldgamla java scriptinu sem ég notaði á síðu sem ég gerði fyrir milljón árum síðan (2) því það allavega.. virkar.

Viðskiptavinurinn sem ég er að vinna fyrir núna bað mig um:

a) svarta síðu
b) útí noir
c) töff

Ég held að ég sé búin að setja saman síðu sem er ca þannig.

Nú, þegar ég er búin að fá rollover dæmið til að virka, er ég búin að breyta litunum á rollover myndunum ca 7 sinnum. Ég er sátt við það sem komið er. Þetta útlit er hrátt og það er.. afgerandi en ég er mjög ánægð og það sem meira máli skiptir: viðskiptavinurinn er mjög ánægður og þeir sem hann hefur sýnt demó-ið. Áætlaður skilatími átti að vera 13. júní. Færist líklega fram á mánudag því ég er komin með annað verkefni sem ég þarf að klára plús að ég er að gæsa systur mína og hosta brúðkaup í júní og má ekkert vera að því að vinna - nema bara þetta helsta.

Mun drekka mikið kók um helgina og sofa lítið.

Ef einhver veit um DOM eða java eða css eða bara eitthvað sem er ekki eldgamalt og virkar má hann alveg láta mig vita. Ég kem ekki til með að breyta á þessari síðu sem ég er að gera úr þessu (nema mér sé bent á eitthvað GEÐVEIKISLEGA GRÚVÍ) en það væri gaman að finna eitthvað sem er ekki jafn mikið hassle að nota.

Nú er ég hinsvegar að fara að sofa og note to self:
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.
Ekki borða neitt áður en þú ferð í blóðprufuna.


Samheitalyf og fordómar
Fimmtudagur, 04. maí 2006

Ég borðaði ekkert áður en ég fór í blóðprufuna!

Ég er svo dugleg.

Þegar ég var búin hjá vampírunni uppá heilsugæslustöð dreif ég mig með rófukattarlyfseðilinn í apótek - því það má bara gefa 30 daga skammt af þessu í einu. Blessað eitrið mitt. Í fyrsta apótekinu var lyfið ekki til, en þau voru svo indæl að hringja í annað apótek sem er ekki langt frá og fá staðfest að þar væri lyfið til.

Ég fór þangað.

Þar fékk ég afgreitt samheitalyf - sem ég man ekki hvað heitir. Af hverju fékk ég það? Jú.. rófukötturinn var ekki til!

Þið eruð að grínast í mér.

Nú vill svo skemmtilega til að ég er haldin gríðarlegum fordómum gegn samheitalyfjum. Ég er búin að vera á Roaccutan í mánuð, fæ sáralítið einkenni þrátt fyrir þvílíkar hryllingslýsingar á aukaverkunum plús.. þetta er að gera kraftaverk fyrir húðina á mér. Ég hef nákvæmlega ekkert garantí fyrir því að samheitalyfið geri þessa sömu hluti fyrir mig svo við skulum átta okkur á einni einfaldri staðreynd:

Ég fer ekki á samheitalyf.

Þetta sagði ég lyfjafræðingnum. Hún sagði mér að samheitalyfið væri bara svo miklu ódýrara, ég þyrfti að borga nærri fjögur þúsund fyrir hitt. Ég sagði henni að mér væri bara nákvæmlega sama, ég vildi fá lyfir sem læknirinn vísaði mér á.

Hún af-afgreiddi mig og ég hélt af stað í þriðja apótekið þar sem ég fékk loksins ósvikinn rófukött og í vinnunni skolaði ég niður fyrsta hylkinu af næsta 30 daga skammt.

Þá vitiði það.

Ég er með fordóma gegn samheitalyfjum og gervinöglum.


Firefox
Fimmtudagur, 04. maí 2006

| anna | 16:41 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Sjaldan hefur naglinn verið hittur jafn vel..
Fimmtudagur, 04. maí 2006

..á höfuðið.



Uncanny hvað þessi vefpróf eru orðin nákvæm.
(nema þetta er ekki my weapon of choice)


| anna | 18:37 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Til að Anna sé byggð upp þarf lifur að brjóta niður A
Fimmtudagur, 04. maí 2006

Ég var að koma úr baði og nú ætla ég að leggjast á bæn og biðja um blóðið sem var tekið úr mér í morgun sýni að lifrin mín sé að kópa við að brjóta niður allt A-vítamínið í lyfjunum því ég var að líta í spegil og ég trúi varla hvað er að koma fyrir mig.

Ég er komin með húð á ennið, ekki þúfu-rugl-eitthvað sem er rautt á litinn og á hverjum degi minnka brúnu blettirnir á kinnunum þannig að ég sé í alvöru mun og ekki einu sinni Kleópatra í öllu sínu veldi þarna á hökunni nær að skyggja á það sem er að verða að veruleika. Enda er nú mesta loftið farið úr henni greyinu. Hún er að flagna af.

Ég er smám saman að verða ég aftur.

Það er svo langt síðan ég hef verið ég að ég var búin að gleyma hvernig ég var!

Oh please, please ekki taka þetta frá mér.

Please.

Ég treysti á þig lifur. Sem aldrei fyrr.


Að panta pappír
Föstudagur, 05. maí 2006

Í gær þurfti ég að panta pappír í vinnunni svo ég hringdi í fyrirtækjaþjónustu ónefnds fyrirtækis.

Nema þegar kona svaraði símanum bað ég ekkert um pappír..

Anna: Já góðan daginn. Ég ætla að panta hjá þér karlmann. Ég vil að hann sé hávaxin, greindur og skemmtilegur. Já - og hann má ekki þjást af skuldbindingarfælni.

(Stundum kemur eitthvað svona útum munninn á mér og ég get ekkert að því gert.)

Kona í afgreiðslu: hahahaha.. eh.. ég er ekki með svoleiðis
Anna: Viss um að þú eigir ekkert svona inná lager?
Kona: því miður, þetta selst upp um leið
Anna: Andsk... jæja... þá er best ég panti bara pappír í staðinn..

Í dag kom pappírinn frá þeim og hvað haldiði að þessi frábæra kona hjá hafi sent mér!
Það næst besta á eftir nákvæmlega því sem ég bað um! Hraunbitakassa!

Oh ég elska að fá eitthvað svona óvænt.

Takk fyrir mig!


Daimler Double Six
Sunnudagur, 07. maí 2006

IMG_0792.jpg

Framleiddur af Jagúar.

Þetta er eini kötturinn sem ég á séns á að eignast um ævina þar sem ég hef ofnæmi fyrir þeim loðnu. Það vantar reyndar köttinn á húddið og nafnið er Daimler.. en bíllinn er Jagúar through and through.

Og mig langar í einn.

jags_21.jpg


The Wicked Witch of the East - is no more
Sunnudagur, 07. maí 2006

Í gær ákvað ég að fara í Kringluna, átti þangað erindi. Hringdi í Júlíu systur og við ákváðum að byrja í Smáralind og fara þaðan í Kringluna.

Í Smáralind datt ég inn í búðina Coast og sá alveg ofboðslega fallegan kjól. Mig vantar einmitt fallegan kjól til að vera í þegar Júlía giftir sig í næsta mánuði svo ég ákvað að máta. Helvítis kjóllinn var eins og hannaður utaná mig nema það var einn stór galli. Ég á ekkert við hann, þar á meðal skó. Júlía systir sagði mér að við svona kjól væri bara hægt að vera í rauðum skóm.

Þetta er í raun ein af staðreyndum lífsins.

Ég var hinsvegar svo heppin að afgreiðslustúlkan sagði að það væru til geðveikir rauðir skór í ákveðinni búð í Kringlunni þannig að ég bað hana að taka kjólinn frá fyrir mig því þetta var síðasti kjóllinn í mínu númeri. Við fórum í Kringluna og þar komst ég að því að afgreiðslukonan í Coast var engu að ljúga. Ég gekk inní skóbúðina og þessir skór voru það fyrsta sem ég sá. Ég sá einfaldlega ekkert annað í búðinni. Það var eitt par eftir í nr 38.

Í svona skóm.. geturðu ekki tapað. Þetta eru líklega einir fallegustu, mest kynæsandi skór sem ég hef á ævinni séð. Að máta þá var formsatriði því ég ákvað að kaupa þá um leið og ég sá þá.

Fór aftur í Smáralind og keypti kjólinn. Ég er reyndar ekki í honum á myndinni, þetta er náttkjóllinn minn.

Þessir skór eru samt þannig að ég er flott í þeim .. þó ég sé ekki í neinu öðru.

Ég efast ekki um að ég muni, einn daginn, finna mann sem mun staðfesta þessa fullyrðingu.

Nú ef hann getur það ekki, þá hendi ég honum út. Karlmaður sem kann ekki að meta svona skó, og mig í engu öðru, hann á ekki skilið að eiga konu eins og mig.

Það er líka ein af staðreyndum lífsins.


DeLiver
Þriðjudagur, 09. maí 2006

Þegar ég kom heim í kvöld náði ég í póstinn minn. Þar var bréf frá heilsugæslunni og í því stóð:

"Blóðprufuniðurstöður voru eðlilegar"

Game on.

Lifrin mín er að delivera - enda er ég ekki búin að taka neitt A-vítamín og ég drekk ekkert áfengi. Þegar kúrinn er búinn verður mitt fyrsta verk að byrja að hreyfa mig reglulega aftur. Það er náttúrlega bara rugl að fá hvorki heróín vímu sem ástin er OG ekki endorfín kick.

Maður verður að fá dose af öðru hvoru efninu reglulega og mig vantar endorfín. Sakna þess.

Lifur. Ég vissi að ég gæti stólað á þig.


Anna
Þriðjudagur, 09. maí 2006

Ég er búin að vera eitthvað hálf down undanfarið, svona.. aloof. En sama dag og ég fæ þær fréttir að lifrin mín er að standa sig.. kemur Lifur og stendur sig.

ANNA_lifurreidur.gif

Maður biður einfaldlega ekki um mikið meira en þetta.

Oh.. ég brosi hringinn því ég heyri hvernig hann segir þetta. Og það er akkúrat, nákvæmlega rétt.

Reyndar fíla ég þegar menn nota nafnið mitt þegar þeir tala við mig. Lifur er ekki sá eini sem gerir það. En af því ég fæ að ímynda mér hvernig hann beitir röddinni þegar hann segir það þá gerir hann það alveg rétt.

Ég hef bara einu sinni verið að hitta mann sem gerði þetta hárrétt upp á tíu.

Ótrúlegt en satt.

Hinir vilja af einhverjum ástæðum oft kalla mig jesús.


Brúðkaup
Miðvikudagur, 10. maí 2006

Var að panta það síðasta sem þarf fyrir gæsunina hennar Júlíu.

Þetta er náttúrlega allt leyndó svo ég mun ekki ljóstra upp hér hvað ég er búin að plana. Ég get hinsvegar ljóstrað upp að ég hef fordóma fyrir þessu fyrirbæri: gæsun og steggjun, þ.e. ruglinu sem það fer oft útí.

Kannski er það bara hjá fólki sem er twenty something. Veit það ekki. Að takmarkið sé að fylla tilvonandi brúður eða brúðguma finnst mér hallærislegt og mér finnst hallærislegt að reyna að gera lítið úr fólki. Mér finnst hallærislegt að fá strippara í partíið og mér finnst hallærislegt að brjótast inní brúðarsvítuna og fylla allt af smokkum og frauðplasti.

Mér finnst ekki ólíklegt að það sé ekki af ástæðulausu sem Júlía bað mig að hafa umsjón með þessu.

Í gærkvöldi pantaði ég svolítið sem ég ætla að gefa þeim í auka brúðargjöf, fann það á vef sem sendir vörur eingöngu til Bretlands en með hjálp góðra manna hefur því verið reddað. Ég er ekkert smá þakklát fyrir það vegna þess að þetta sem ég er að kaupa var lang, lang flottast í þessari búð.

Það eina sem ég get ekki ákveðið er hvað ég á að gefa þeim í brúðargjöf.

Hafi þið einhverjar tillögur?


Kötturinn úr pokanum
Miðvikudagur, 10. maí 2006

Júlía er búin að spyrja mig og spyrja mig hvað ég ætla að gera í gæsuninni. Hún er að gera mig geðveika og ég er hætt að reyna að berja hana frá mér með þessar spurningar sínar svo ég er búin að segja henni planið.

Get alveg eins sagt ykkur það líka.

Ég ætla að láta Ómar Ragnarsson sækja hana klukkan sex um morguninn, binda hana á bakið á sér og keyra með hana á mótorhjóli útað einhverjum klett - veit ekki hvað hann heitir en þetta er þverhnýpi. Ómar veit allt um málið og hann ætlar að vera í g-streng - eingöngu. Á leiðinni ætlar hann að syngja gamla slagara þangað til Júlíu langar til að deyja, sem er gott því þá streitist hún ekkert á móti þegar við hendum henni niður af klettinum.

Við ætluðum að hafa hana í svona fallhlíf en ég hætti við þegar ég komst að því hvað það kostar og auk þess skilst mér að það sé stórhættulegt að fara í fallhlífastökk.

Þá mun þyrla með björgunarsveitarmönnum sem eru í g-streng einum klæða mæta á svæðið og fljúga með okkur í útsýnisflug yfir Reykjavík og þaðan uppá slysó þar sem hún fær köku sem er eins og typpi í laginu og stjörnuljós og hjúkkurnar verða með skemmtilegar húfur og ýlur og unglæknarnir verða allir í g-streng.

Þá ætla einhverjir læknar að tékka á brotum því Ómar reiknar með fót og/eða handleggsbroti í fallinu niður af klettinum. Dagurinn fer í röntgen og skemmtilegheit og á eftir ætlum við að fara á Aktu Taktu og fá okkur samloku. Um kvöldið munum við skreppa niður á höfn og kjöldraga hana. Þar sem það bleytir líklega eitthvað upp í gifsinu endum við kvöldið aftur uppá slysó um svipað leyti og allt fyllist af drykkju-rugl-liði.

Viss um að einhver af þeim nennir að strippa fyrir okkur.

Hún er hætt að spyrja mig núna.


Great Odin's raven!
Fimmtudagur, 11. maí 2006

Gleymdi alveg að segja frá framgöngu rófukattarins núna á sunnudaginn. Ég er sumsé komin með sveppa-ves. Get haldið þessu niðri með stílum og kremi og sápum og svoleiðis dóti.

Djöfull er þetta skuggalega óþægilegt. Skilst að það séu til konur sem bara fá svona í tíma og ótíma. Kræst, finn til með ykkur.

Ég hef líka ekki verið nógu dugleg að bera varasalva í munnvikin því nú eru þau öll rifin af þurrki. Varirnar á mér eru bólgnar þannig að það lítur líklega út fyrir að ég sé búin að láta dæla í þær sílíkóni eða fitu úr rassinum á mér. Þá vitiði það. Rétti tíminn til að fá sér stærri varir er á meðan þú ert á rófuketti. Segir bara að þetta séu aukaverkanir.

Mér finnst hinsvegar eitt mjög fyndið. Ég er búin að hafa þessar bólur árum saman og á meðan fólk sagði mér að þetta væri "ekkert" hélt ég að ég væri bara geðveik. Nú er ég hinsvegar orðin þreytt. Ekki á þessu aukaverkanaböggi, því mér finnst þetta ekkert svo hrikalegt og átti von á svo miklu verra en þessu.

Nei, ég er orðin þreytt á þessum bólum.

Ég þoli ekki lengur að vera svona. Þoli ekki að vera eins og fokking pizza í framan og ég þoli ekki að þegar bólurnar detta af skilja þær eftir rauðbrúna bletti í einhverjar vikur á eftir. Ég nenni ekki að svona. Ég nenni ekki að bíða eftir að þetta sé búið. Ég nenni þessu ekki.

Mig langar að þetta sé búið NÚNA. Er til í að vera á rófuketti í fimm mánuði í viðbót og með þessar aukaverkanir, i don't care, ég er bara orðin leið á að vera með bólur. Hata það. Langar ekki að hafa þær lengur og ég er í krónísku vondu skapi.

Á sama tíma finnst mér þetta mjög fyndið því ég hef actually ekki litið eins vel út og ég geri núna mánuðum saman. Líklega er ég orðin heimtufrek bara og er í dekurdramadrottningarkasti.

Lifur lagaði skapið í mér ekki nema rétt í þessar mínútur sem hann kom að kommenta um daginn. Og þetta fer versnandi. Ég er pirruð, uppstökk, fúl og óánægð.

Ef ég væri karlmaður væri líklega hægt að segja að ég þjáðist af brundillsku.

Það eina sem kemur mér í gott skap þessa dagana (fyrir utan að ég er í ágætis skapi most of the time nema akkúrat núna) er myndin Anchorman. Will Ferrell er stórkostlegur og ég er farin að nota þessa upphrópun mikið í samræðum.

Great Odin's raven!


| anna | 15:38 | permalink | comments (7) | send to facebook |
Að læra af reynslunni
Fimmtudagur, 11. maí 2006

Fyrir nokkrum mánuðum síðan leitaði til mín maður og bað mig að gera fyrir sig heimasíðu. Hann sagði mér hvað hann vildi og ég byrjaði að vinna. Við vorum í tölvupóstsambandi og ég sendi tillögur, hann sendi myndir. Þegar kom að því að hitta manninn fór ég heim til hans eftir vinnu einn daginn. Þar settumst við niður við tölvuna hans og ég sagði honum hvað mér fyndist um þetta og hitt og við fórum yfir málið. Honum leist mjög vel á alltsaman og mér fannst verkefnið mjög spennandi og hlakkaði til að vinna við það.

Þegar ég kom heim var ég in high spirits. Tuttugu mínútum seinna hringdi hann í mig og sagði mér, í hálfum hljóðum, að hann yrði því miður að hætta við. Konan hans hafði bannað honum að skipta við mig því þegar hún sá mig varð hún afbrýðisöm.

Ég sat með símtólið í höndinni og bara.. come again?

Jebb. Maðurinn var ekki að grínast.

Ég sat lengi í stólnum mínum í hálfgerðu losti eftir þetta símtal. Fyrir framan mig fyrsta uppkast að síðunni - sem ég hef aldrei notað. Rassgat því ég var búin að búa til helv flott lógó fyrir hann.

Ég hef lært af reynslunni. Ef ég þarf að funda með giftum mönnum vegna heimasíðu, hitti ég þá helst heima hjá mér, ef ég neyðist til að fara heim til þeirra geri ég það eingöngu þegar ég er ekki búin að fara í bað í þrjár vikur og svo treð ég uppí mig sesamfræjum og læt þau festast á milli tannanna. Þörungar eru líka góðir. Ég túbera hárið útí allar áttir - hægra megin - eins og ég sé nývöknuð og svo set ég meira að segja á mig old spice frá pabba sem ég fann í geymslunni snemma í vor. Fer í ólögulegu hnésíðu pilsi með órakaða leggi og í ökklaháum gúmmístígvélum.

Hef ekki tapað fleiri verkefnum útá afbrýði - to date. Þeir hætta samt allir við af öðrum ástæðum og ég get ekki ímyndað mér hvaða ástæður það gætu verið. hehe

Maðurinn sem kom hingað í kvöld og ég er að fara að vinna fyrir sagði mér að ég þurfi að fá mér endurskoðanda. Ég er búin að hugsa málið og líklega er þetta rétt hjá honum, verð að viðurkenna að þetta er að vinda meira uppá sig en ég reiknaði með.

Kaldhæðni örlaganna.

Ég þarf að fá mér endurskoðanda. Mér finnst þetta á vissan hátt alveg óborganlega fyndið en hef ákveðið að setja auglýsingu í Morgunblaðið:

Endurskoðandi óskast.

Endurskoðandinn þarf að vera karlkyns á aldrinum 33-37. Hann þarf að vera hár og þreklega vaxinn en ekki hel massaður. Endurskoðandinn má ekki vera með strípur eða gervibrúnku. Endurskoðandinn þarf að vera ógiftur, barnlaus og með dökka skeggrót. Má vera latur að raka sig en aldrei svo að hann fái sítt alskegg. Þetta er samningsatriði. Má vera leiðinlegur en það er ekki skilyrði. Þarf að vera sterkur og með fallegar hendur. Verður að ganga um í jakkafötum. Viðkomandi mun aðallega sjá um bókhald en einnig er gerð krafa um að hann útdeili viðeigandi refsingum vegna fyrirliggjandi bókhaldsóreiðu. Ætlast er til þess að endurskoðandinn útvegi sjálfur nauðsynleg áhöld sem þessar refsingar krefjast. Endurskoðandinn verði til taks hvenær sem er sólarhings ef upp kemur óvænt bókhaldsóreiða sem krefst tafarlausrar refsingar.

Áhugasamir sendið mér póst

En svona grínlaust, þá þarf ég í alvörunni að fá mér endurskoðanda.

By the beard of Zeus!


Now you have given me total power
Föstudagur, 12. maí 2006

Ég var að tala við vinkonu mína í kvöld og ég sagði henni að ég væri pínu fegin, svona eftirá, að ég fékk ekki Albert. Það er alveg útséð með hvernig það hefði farið. Ég hefði bara endað með Albert og grátið svo úr mér augun þegar hann færi frá mér. Sem er eiginlega given - down the line.

Mér skilst nefnilega að hundar verði ekki jafn gamlir og við mannfólkið og svo er synd þegar heilbrigð manneskja sem á ekki við félagslega fælni að stríða og þjáist ekki af mikilli tilfinningahræðslu endi í sambúð með gæludýri. Það finnst mér allavega.

Albert var í raun the easy way out fyrir mig og ég kom sjálf í veg fyrir að ég gæti tekið þann kost.

Merkilegt.

Ég sit uppi með the real deal - einhvertíma seinna - en slepp við að syrgja einhvern einn enn sem mér þykir vænt um í millitíðinni. Not a bad deal really.

Þangað til ég finn the real deal sagði ég henni að ég ætti nú til dæmis hann Zurg sem á heima uppá tölvunni minni. Ég gæti farið með hann niður á Ægissíðu í eftirdragi:

Anna: "sjáðu Zurg! Fuglar!"
Zurg: "I have been assembled to conquer this planet, bow to Zurg!"
Anna (við gömlu konuna sem er að labba framhjá) "hann verður úrillur þegar hann er svangur"


badabing.is
Föstudagur, 12. maí 2006

Þegar fyrrverandi eiginmaður minn fékk sér lén í fyrsta skipti fékk hann sér lénið noir.is. Ég sagði honum að hann myndi eipa á að vera með þetta lén, því hann þyrfti líklega að stafa þetta ofaní mikinn meirihluta þeirra sem kæmu til með að senda honum tölvupóst. Eins og sannur karlmaður.. hlustaði hann ekki á mig.

Mig minnir að þremur mánuðum seinna hafi hann endanlega gefist upp á noir.is því hann nennti ekki að stafa nafnið lengur ofaní fólk.

Á þessum tíma átti ég anna.is en það stóð aldrei til að hafa neitt efni á síðunni. Ég ætlaði að nota lénið undir póst eingöngu. Planið var þó að hafa heimasíðu og þessvegna skráði ég lénið badabing.is, sem átti að vera heimasíðan mín. Ég var búin að halda úti song of the week í einhverjar vikur á henni þegar Tóti gafst upp á noir ævintýrinu og af því okkur datt ekkert sniðugt nafn í hug ákvað ég að láta hann bara fá badabing og ég myndi flytja mig yfir á anna.is.

Ákvörðun sem ég hef ekki séð eftir.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þetta gerðist. Við erum skilin og farin að lifa sitthvoru lífinu. Þess vegna kom mér svolítið á óvart þegar hann hringdi í mig fyrir nokkrum mánuðum og sagði mér að hann væri að hugsa um að setja badabing.is upp aftur og sagðist frekar vilja borga mér fyrir að gera síðuna en einhverjum öðrum. Hann hefur auðvitað reynslu af því að vera með heimasíðu undir minni umsjá og veit nákvæmlega hvað hann er að fá fyrir peningana.

Að sjálfsögðu sagði ég já.

Mér þykir vænt um badabing.is síðuna enda hef ég eytt ómældum tíma í að sjá um hana í gegnum tíðina. Þó þetta hafi átt að vera mitt svæði upprunalega þá finnst mér þetta fara Tóta svo miklu betur en mér í dag, ég er og verð anna.

Hann bað um að síðan væri svört, í stíl við hans skap - most of the time - og útí noir. Ég held að mér hafi tekist að gera badabing.is eins og hann vildi hafa síðuna, a.m.k. er hann mjög ánægður og ég líka.

Það er mér sönn ánægja að kynna til leiks, badabing.is í nýjum búningi.
(Þeir sem hafa verið að fara þarna inn gætu þurft að smella á reload eða refresh)


Ég þarf náttúrlega ekki að taka það fram.. en við höfðum ribbon cutting ceremony..


| anna | 13:00 | permalink | comments (9) | send to facebook |
Stjörnumerkin
Föstudagur, 12. maí 2006

Ég fékk þetta sent áðan.

Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaðu og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæðurópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

--

Ég er meyja og skv þessu leiðinlegasta manneskja á jörðinni!

Hvað ert þú?


Það sem ég er um það bil að fara að skrifa toppar engin
Föstudagur, 12. maí 2006

Rétt í þessu var að renna upp fyrir mér.. að ég á dóttur sem heitir Jóhanna og son sem heitir Jóhann.

Já. Þetta var að renna upp fyrir mér.. núna.

Hvernig læknir getur stytt í manni leiðslurnar?


Better Together
Mánudagur, 15. maí 2006

Ég hef ekkert að segja, en þetta er það sem ég er að hlusta á.


| anna | 10:27 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Ótímabært andlát.
Mánudagur, 15. maí 2006

Rétt rúmlega sextugt er ungur aldur á okkar tímum. Það finnst mér allavega.

Öll fjölskyldan er harmi slegin. Um helgina fór ég að hitta eiginkonu og börn hins látna. Ég kveið því svolítið því alltaf þegar ég hugsa um hvað þau eru að fara í gegnum fer ég hreinlega að gráta. Ímynda mér að þau þurfi á einhverju allt öðru að halda núna en að hugga mig. Mér fannst samt svo gott að hitta þau og taka utanum þau og segja þeim hvað mér þykir þetta sárt og votta þeim samúð mína. En sársaukinn hefur búið um sig í hjörtum okkar allra þó ég geti varla ímyndað mér hvernig þeim líður.

Þegar ég kom heim til mömmu á leiðinni til þeirra beið mín risa stór blómvöndur sem Beggi hennar mömmu hafði keypt fyrir mig og þegar hann sagði að honum þætti ekki hægt að kaupa blóm fyrir mömmu á mæðradaginn en ekki mig.. þá tók ég utanum Begga og gat ekki haldið aftur af tárunum, því þetta kom mér í svo opna skjöldu og mér þótti svo vænt um að hann hafi gert þetta og ég man ekki til þess að hafa fengið blóm á mæðradaginn fyrr. Frá neinum. Ég fór inná bað því ég þurfti hreinlega að ná mér.

Ég held að það hafi átt þátt í því að ég fór að gráta þegar ég fékk blómin frá Begga að maðurinn sem kvaddi þennan heim eins óvænt og raun bar vitni var einmitt svona maður. Maður sem hafði lag á að sýna þeim sem skiptu hann máli, í verki, að honum var ekki sama og að þau voru honum hugfólgin. Það er svo mikils virði í þessum heimi, að finna kærleika. Ég held að þessi fjölskylda hafi verið einn heilbrigðasti hluti míns fjölskyldutrés og þó ég hafi ekki þekkt manninn náið þá leit ég alltaf upp til þeirra hjóna og hef sagt fólki að þau séu fyrirmynd mín að góðu hjónabandi. Það er líka alveg satt og ég held að t.d. Júlía og Gulli hafi fundið það sama og þau fundu á sínum tíma.

Þau voru búin að vera gift í rúm þrjátíu ár. Urðu ástfangin og giftu sig stuttu seinna. Hún var ófrísk þegar þau giftu sig. Það kom aldrei neitt annað til greina hjá þeim og það breyttist aldrei. Þau voru viss um að þau væru rétt fyrir hvort annað. Eins og í öllum hjónaböndum hafa komið upp erfiðleikar en aldrei trúnaðarbrestur eða svik og þau stóðu við hvors hlið eins og styttur í gegnum allt mótlæti. Tilhugsunin, að eyða bróðurpart ævinnar með einhverjum og að hann sé tekin frá þér, hún nístir mig og ég get ekki ímyndað mér hvað það er sárt.

Það er svo skrítið með fjölskyldur, jafnvel jafn óstarfhæfar og mín er, að þegar einhver verður fyrir svona miklum missi þá þjappar fólk sér saman og slær skjaldborg utanum eftirlifendur.

Ég vona að það veiti eitthvað skjól, þó við séum eins og við erum.

Ég samhryggist þeim svo innilega.


Fréttatilkynning
Fimmtudagur, 18. maí 2006

Það þarf náttúrlega ekkert að pæla í hvort Silvía kemst áfram í kvöld með lagið sitt eða ekki. Að sjálfsögðu kemst hún áfram.

Ég stend heilshugar á bak við Silvíu og mun fagna í góðra vina hópi á laugardagskvöldið þegar hún annaðhvort

a) vinnur Eurovision fyrir Íslands hönd

eða

b) verður vísað úr keppni fyrir foul language sem mun gera Silvíu fyrsta keppanda í Eurovision frá upphafi sem er vísað úr keppni og gulltryggir henni um leið heimsfrægð.

Mér skilst að margir séu orðnir leiðir á uppátækjum Silvíu. Við ykkur segi ég: svona er að vera alltaf að horfa á fréttir í sjónvarpinu, lesa blöð og hlusta á útvarp! Látið ykkur þetta að kenningu verða.

Miklu betra að búa í helli eins og ég og hugleiða dýrð Silvíu við opin eld.

Klikkar ekki.

ÁFRAM SILVÍA NÓTT!


Hvað - hef - ég - gert!
Fimmtudagur, 18. maí 2006

Ég vil byrja á því að biðja íslensku þjóðina afsökunnar. Hvernig átti ég að vita að þetta curse næði yfir kvenfólk líka?

Það er löngu vitað og sannað, af vísindamönnum, að allt sem hefur púls og ég tek ástfóstri við verður fljótt hálf mongo og misheppnað og nú hefur enn einu sinni komið í ljós að ég get hreinlega þurrkað upp persónutöfra fólks með því að dá það nógu mikið.

Þetta fyrirbæri virðir engin landamæri.

Ég lýsi fullri ábyrgð á hendur mér bæði raddleysi Silvíu og sviðsskrekk. Ég hefði mátt vita að ekkert, EKKI NEITT sem ég ber hlýhug til fær að blómstra.

Það er mín einlæga von að Silvía geti fundið í hjarta sér að fyrirgefa mér einn daginn og farið að koma aftur í mat á sunnudögum.


Séð inní framtíðina
Föstudagur, 19. maí 2006

Á morgun ætla ég að fara og kaupa mér vöfflujárn. Þetta er eitt af þeim heimilistækjum sem mig hefur alltaf langað í en aldrei tímt að kaupa mér - af því mér fannst ekki bráðnauðsynlegt að eiga það.

Ég lá uppí rúmi áðan, nýbúin að lesa bókina sem ég er búin að vera að lesa á kvöldin undanfarið, þegar ég áttaði mig skyndilega á því að það er í raun alveg bráðnauðsynlegt að eiga vöfflujárn. Ég á alveg skilið að kaupa mér eitt og á morgun ætla ég að gera nákvæmlega það.

Þegar ég er búin að kaupa vöfflujárnið ætla ég að kaupa fersk jarðaber, dökkt súkkulaði og sýróp. Þá ætla ég að fara heim og saxa súkkulaðið og jarðaberin fínt niður og setja í skálar.

Þá baka ég vöfflurnar og svo sit ég við eldhúsborðið með börnunu mínum og held vöffluveislu. Byrja á að hella örlitlu sýrópi á volga vöffluna, strá jarðaberjum og súkkulaði yfir og.. það verður himneskt.

Á ég að hafa rjóma með? Held að það þurfi ekki. Þeir sem hafa ekki prófað vöfflur með þessu ofaná ættu að prufa einn daginn. It's to die for.

Hvernig vöfflujárn á ég nú að kaupa mér?


| anna | 22:24 | permalink | comments (8) | send to facebook |
Anna Vissi Everything
Laugardagur, 20. maí 2006

So what else is new?


| anna | 20:15 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Bosch TWA 3000
Sunnudagur, 21. maí 2006

TWA3000.jpg

Ég get séð inní framtíðina. Og það er betra að hafa rjóma.

Ég get líka sagt ykkur.. að það sem gerist tvisvar, það gerist þrisvar.


Á lyfjum
Sunnudagur, 21. maí 2006

Andlitið á mér er MESS.

Ég er sannfærð um að þetta þunglyndi sem á að fylgja lyfjunum er ekki beinlínis lyfið sjálft heldur afleiðingar þess. Það er ekkert auðvelt að vera með svona flösu í framan og ef maður hnerrar dettur hálft andlitið af. Í alvöru. Þurrkublettir útum allt - ég er orðin eins og Madeline og Helen í fokking Death Becomes Her þarna undir það síðasta þegar þær voru báðar dauðar og að flagna!

Spes.

Fólk sem hefur meiri bólur en ég og fer á þetta lyf sem bætir á þær, þó að húðin sé að hreinsa sig.. þá er þetta bara ömurlegt ástand. Ef húðin undir því sem dettur af væri ekki orðin eins og á fokking ungabarni, fyrir utan blettina eftir bólurnar, væri ég vissulega orðin mjög þunglynd.

Eins asnalegt og það er að tala um heppni í þessu sambandi er ég samt í raun mjög heppin því hreinsunin virðist ganga ótrúlega vel hjá mér, sýnist þetta langt komið. Drottningabólurnar í kinnunum, held ég eigi tvær eftir hægra megin og fjórar vinstra megin. Sé ekki betur. Ef ég held áfram að vera heppin á ég kannski tvær vikur eftir í hreinsun og þá er bara að bíða eftir að húðin jafni sig.

Læknirinn sagði að hann gæti gefið mér ákveðið svar með hvað ég þyrfti að vera lengi í viðbót á lyfjunum þegar ég hitti hann næst - svo það verður spennandi að vita.

Ég er komin með sár í bæði munnvikin, samt er ég mjög dugleg að bera á þau varasalva og það verður erfiðara og erfiðara að halda vörunum góðum. Eða.. ekki góðum.. ásættanlegum. Það er langt síðan varirnar á mér voru "góðar". Samt eru þetta einu aukaverkanirnar sem geta kallast óþægilegar.

Samhliða þessum lyfjakúr er ég búin að vera í systematískri fitun undanfarið sem hefur gengið vel, fyrir utan að þetta sest alltaf beint á brjóstin á mér svo það er eins og ég sé búin að fara í sílíkon aðgerð. Get ekki beðið eftir að komast í ræktina til að dreifa þessu og vekja upp vöðvana mína aftur. Vona að ég geti haldið mér í þessar þyngd. Vil ekki vera léttari. Ekkert gaman að vera eins og tannstöngull.

All in all.. þá er þetta allt á réttri leið.

Það verður magnað að geta farið í sund án þess að líða illa útaf andlitinu á sér eins og mér leið þegar ég var með þetta ógeð framaní mér. Það verður nú ekki fyrr en í lok sumars - ef ég held áfram að vera heppin. Má náttúrlega ekki vera í sól..


In bed with Eric Meyer
Mánudagur, 22. maí 2006

Ég hef loksins fundið karlmann sem mér finnst gott að hafa við hliðiná mér þegar ég fer uppí rúm. Finnst líka gott þegar hann er ofaná, eða.. þegar ég er að handleika hann öllu heldur.

Mér líkaði strax vel við hann þegar ég hitti hann og þegar ég sé:

"Unlearn what you have learned" - Yoda.

Þá vissi ég að við ættum vel saman.

Já. Ég var að fá sendingu frá Amazon og er að lesa bókina Eric Meyer on css. Já, akkúrat, þessi Eric sem faðmaði mig um daginn og nei - ég er ekki búin að fara í bað síðan.

Ég þarf að þakka Dave fyrir að benda mér á þessar bækur. Þetta virðist vera akkúrat það sem ég þurfti.


| anna | 11:18 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Silvia Night
Mánudagur, 22. maí 2006

Ég er búin að vera í kasti að horfa á fréttaskýringu á youtube þar sem Grikkirnir eru að fárast yfir Silvíu. Þar er sýnt fjórum sinnum (held ég) frá því þegar Silvía slær Romario utanundir, þar af þrisvar í slómó.

silv1.jpgÉg varð fyrir vonbrigðum að sjá hana á sviðinu í Aþenu. Mér fannst hún ekki syngja þetta vel, enda sjálfsagt verið ofurstressuð. Hún var andstutt, hikaði á textanum og svo teiknaði hún sig ekki nógu vel út á sviðinu. Þetta rann einhvernvegin eins og vatnslitamynd í rigningu allt saman í eitt.

silv.jpgÞað vantaði.. fun.. og liti eins og á sviðinu hérna heima. Saknaði líka stjörnunnar á andlitinu, mátti líka alveg hafa þrumuna. Kannski fannst mér þetta betra hérna heima vegna þess að það var svo dásamlega corny. Mér fannst þessir leiðindar píkuskrækir gera hana minna trúverðuga en hún var hérna heima og mér fannst líka fyndnara þegar hún hringdi í ömmu sína.

Það er náttúrlega alltaf auðveldara að sitja einhverstaðar og finna að hlutum, en að gera betur.

En. Grikkir hafa sýnt það og sannað að þeir eru engu minni dónar en Silvía. Ekki hef ég heyrt neitt um að gæjarnir frá Litáen hafi verið með kjaft, samt var baulað á þá líka - sem mér finnst mjög dónalegt í svona keppni. Tala nú ekki um þegar þeir voru kosnir áfram af hinum þjóðunum og í fullum rétti að flytja lagið sitt á sviðinu. Annað. Þegar Silvía segir "play the song" á æfingunni þá er tækiliðið með stæla og neitar að spila lagið nema hún segir "pretty please". Sem gerir þá að fucking amatörs í mínum huga og gefur henni fullt leyfi á að segja "play the fucking song". Síðast þegar ég vissi þá eiga tæknimenn að spila lögin þegar þeir eru beðnir um það. Efast líka stórlega um að hinir performerarnir hafi skriðið á fjórum fótum og beðið þá "fallega" um að spila lögin þeirra á æfingum. En þeim hefur þótt við hæfi að reyna að lækka í Silvíu rostann og fengu það sem þeir áttu skilið í staðinn.

Mér fannst líka ótrúlega hallærislegt þegar Grikkirnir bauluðu þegar þeir fengu 1-3 atkvæði frá löndum. Mjög flott pía sem þeir sendu en ég verð að viðurkenna að ég hélt á tímabili að hún væri flogaveik þarna á sviðinu.

Ég er ekki Eurovision fan. Hef ekkert á móti keppninni þannig lagað, mér er bara sama. Mér er sama þó Ísland vinni þessa keppni aldrei og ég skil ekki tónlistarmenn sem sjá það sem einhvert æðsta takmark að komast með lagið sitt í Eurovision. Enda er það ekki ávísun á eitt eða neitt. Korters frægð kannski. Silvíu tókst hinsvegar að ná athygli minni og ekki bara minni heldur allrar þjóðarinnar. Þeir sem horfa á Eurovision á hverju ári þurftu ekki Silvíu. Við hin, okkur sem er sama, við lögðum við hlustir og ég þori að fullyrða að nánast allir Íslendingar hafa skoðun á Silvíu. Sumir elska hana, aðrir hata. En þeir sem hata hana horfðu margir líka.

Fólk má alveg segja að hún hafi gengið of langt og kannski gerði hún það. En hvað er of langt í dag?

Hún er að gera stólpagrín að þessum helvítis beyglum sem gera nákvæmlega ekkert annað en að draga andan, finnast þær æðislegar og eyða peningunum hans pabba. Og hún gerir það þrusu vel. Ef Silvía er "ekkert", af hverju keppast þá fjölmiðlar um að fjalla um hana? Ég hló ekkert smá þegar hún, útgrátin í dekurdrottningarkasti, segir við blaðamenn "it's not true, someone has been telling lies about me.. and i think it's you" og bendir á einhvern random blaðamann.

Og blaðamaðurinn fer í vörn.

Þessi keppni í ár var djók hvernig sem á það er litið. Þrír keppendur voru þarna að gera grín að öllu saman. Lordi, Litháar og Ísland. Já og hárið á Rússanum. Mér finnst umdeilanlegt hvort er hallærislegra, fólk sem dansar með seglskip á hausnum eða í e.k. hálf höfrungabúningum eða skrímslabúninga -útjaskað-iðnaðar-rokk-lag. Það að Lordi hafi unnið segir meira um þessa keppni en þúsund orð, tek fram að eina atkvæðið sem Lordi fékk frá mínu heimili var frá Dodda - og bara útaf búningunum. Let's face it.. lagið með Lordi er einfaldlega crap.

Evrópa kaus þetta crap.. og sagði með því nákvæmlega allt sem meirihluta kjósenda finnst um þessa keppni.

Annað sem ég hef séð í umræðunni og það eru áhyggjur mæðra vegna áhrifa Silvíu á ungar stúlkur. Ég held að foreldrar stjórni miklu um hvað börnin þeirra dýrka og dá. Börnin mín dýrka ekki Silvíu, finnst hún hallærisleg en fyndin. Ég veit líka ekki betur en að djammið á Íslandi sé fullt af fáklæddum íslenskum dramadrottningum nú þegar, og það er ekkert sem var að gerast í gær. Íslendingar hafa hinsvegar löngum verið viðkvæmir hvað það mál varðar og maður má helst ekki segja það upphátt.

Eurovision er vettvangur fyrir fólk að koma sér á framfæri og Ágústa Eva hefur gert nákvæmlega það. Ef ég verð grýtt með leirtauji þegar ég fer til Grikklands, vegna þess að ég er frá Íslandi.. well.. so be it. Ég púa þá bara í staðinn.

Ég vona svo sannarlega að Íslendingar séu ekki jafn glataðir og Grikkir og taki vel á móti Ágústu Evu þegar hún kemur heim.


| anna | 12:50 | permalink | comments (9) | send to facebook |
Lost
Þriðjudagur, 23. maí 2006

Þeir sem hafa verið að spyrja mig um áframhald sögunnar minnar. Það verður einhver bið á að ég skrifi meira, bæði hef ég ekki tíma.. og þar sem ég hef hitt mikið af fólki undanfarið, fór á ráðstefnu og út að borða og fékk gesti! - Hef ég hert varnirnar til muna, búin að bæta við nokkrum veggjum og mér skilst að crew-ið hans David sé að fínpússa núna.

Burðarveggir.

Það er ekkert lítið sem ég er tilbúin til að gera til að vernda þetta blessaða hjarta mitt.

Ég grínast stundum með það hér á síðunni að ég endi ein.

Stundum óttast ég.. að ég sé ekkert að grínast.

Samt fegin að ég er ekki að leita mér að manni um þessar mundir. Skilst að þessir höfðingjar á mínum aldri, a.m.k. þeir sem eru á djamminu, séu allir í tvítugu stelpunum. Ég held reyndar að lykilorðið í því dæmi sé "djammið". Menn sem vilja jafnöldrur sínar eru annarstaðar. Líklega heima hjá sér að horfa á sjónvarpið því þeir vita ekki hvert þeir eiga að fara til að finna það sem þeir eru að leita að.

Ég vil ekki vera fundin.


| anna | 0:01 | permalink | send to facebook |
Ó vá!
Þriðjudagur, 23. maí 2006

Ég var að fá hugmynd.

Note to self: CSS - headset - Lucy Lu - Magnolia.

Get ég púllað það off?

I'm not quite sure on that one.. stundum eru hugmyndir mínar bara of.. magnaðar.


Vetrareinkunnir 2005 - 2006
Þriðjudagur, 23. maí 2006

Íslenska 9,5
Stærðfræði 8,0
Danska 9,5
Enska 9,5
Náttúrufræði 9,5
Landafræði 9,5
Íslandssaga 9,0
Trúarbragðafræði 9,5

Vetrareinkunn 10

--

Ég er svo stolt af frumburðinum mínum núna.. að ég er gjörsamlega að springa.


Hlaut að vera skýring á þessu..
Þriðjudagur, 23. maí 2006

Ég var að taka próf á netinu sem mér var bent á.
Nú veit ég af hverju samböndin sem ég er í klikka.

Ég er overqualified.

hehehe

relationship_iq.gif

Your Relationship IQ measures what you know about relationships compared to others. It is built off the foundation of the traditional IQ test, where 68% of people who take this test worldwide score between 85 and 115. The above chart shows where you fall on the Relationship IQ scale compared to others.

As we previously mentioned, your Relationship IQ score is determined by your general knowledge of how people should behave in relationships. But we also took a look at how you actually behave in your relationships. To get this information, we compared your responses to the Relationship IQ test questions against what experts say is the right way to have a healthy relationship.


Ég er með svo flott hár!
Þriðjudagur, 23. maí 2006

Hún Elín í Hár Fókus Grímsbæ er snillingur. Ég fór til hennar, gráhærð, lúin, brotin og beygð. Sagði henni að engin elskaði mig og ég væri orðin gömul og ljót.

Nei ég er að ljúga, færi ekki að segja svona rugl.

Ég sagði "Hæ" og hún sagði "Hæ. Hvað á ég að gera við þig núna?" og ég sagði "Gerðu mig gorgeous."

Og hún gerði nákvæmlega það. Ég er búin að læra að þegar ég fer til Elínar þá er nóg að segja þetta. Fyrst kom ég stundum með myndir og eitthvað svona.. rugl óskir um hvernig ég vildi líta út - enda er ekki hægt að klippa á fólk nýtt höfuðlag - segir hún. En hún sagði mér alltaf að tillagan mín hentaði ekki höfuðlaginu mínu og gerði eitthvað allt annað - og ég var ánægð. Ég þekki Elínu reyndar persónulega en ég veit að hún klippir fólk ekki eftir myndum ef klippingin passar ekki andlitinu.

Í dag fer ég bara til hennar og segi þetta. "Gerðu mig gorgeous" og hún gerir það. Ég er alveg hætt að skoða myndir og hafa skoðanir á því hvernig ég á að vera. Prufaði það samt aðeins áðan, sýndi henni mynd af svona.. tjah.. nokkuð stuttu hári og Elín hristi hausinn, skellti slánni utanyfir mig og sagði "iss ég hlusta nú ekki á ruglið í þér, við höldum í síddina". Svona á þetta að vera! Ef ekki væri fyrir Elínu væri ég líklega löngu orðin sköllótt sem afleiðingu af einhverju helvítis fyrirtíðarspennu fokki.

Það líður nefnilega oftast bara korter eftir að ég hef látið klippa mig stutt.. þangað til ég sé eftir því.

Þetta veit Elín.

Ég er reyndar búin að streitast á móti því að láta lita á mér hárið núna í langan tíma en síðast þegar ég fór til hennar, og hún sá gráu nornahárin sem standa útí loftið eins og á brjáluðum vísindamanni, sagði hún - mjög ákveðin, að næst myndi hún lita mig. Ég bara trúði því alveg og reyndi ekkert að malda í móinn. Þegar ég kom áðan sagðist ég villja lit sem væri eins og háraliturinn á mér er fyrir og ekkert strípudót. Elín hlustaði ekkert á mig, frekar en fyrri daginn, sagði að ég væri með svo dökkt hár að ég yrði eins og svarthöfði og hún léti mig ekkert ganga út með einhvern hjálm, setti í mig eitthvað álpappírs-dót og ég ákvað að verða ljóshærð rétt á meðan og þar með clueless um að þetta væru, in fact, strípur.

..og ég er með svo flott hár - SHIT HVAÐ ÞAÐ ER FLOTT! Hún hefur alveg einstakt lag á að lita mann þannig að hárið virkar ekki litað og óeðlilegt. Auk þess litaði hún mig bara í mínum lit í grunninn.

Ef þið eruð orðnar leiðar á hárinu á ykkur og þurfið inngrip frá alvöru fagmanni, tékkiði á Elínu. Það eru reyndar tvær Elínar að vinna á Hár fókus en þessi Elín - MÍN Elín - vinnur ekki á mánudögum.

Ég er farin að dást að mér fyrir framan spegil.

Oh.. ég er eins og sjampó auglýsing!


The simple pleasures in life
Miðvikudagur, 24. maí 2006

vaffla.jpg


Margeir
Miðvikudagur, 24. maí 2006

margeir.jpg

Ég varaði hann við - ítrekað. En hann stóð þarna eins og lítil ljótur dvergur með kryppu - sem hann er - og neitaði að lækka í sjónvarpinu fyrir mig þegar ég nennti ekki að standa upp og í staðinn.. maukaði ég uppáhalds bananann hans í nýja blendernum og öll jarðaberinn sem hann tíndi útá svölum í frostinu í dag. Setti meira að segja bláber útí líka, sem var ofrausn, því ég lét hann drekka þetta.

Nú þarf ég ekki lengur að fá mér fjarstýringu því ég hef séð Margeir gera sér dælt við peru í ávaxtaskálinni og nú veit hann að mér er full alvara.

I don't make idle treats.

Margeir skuldar mér bláber. Hann mun verða sendur í berjamó. Sniðugt, berin verða líklega frosin. Geymast lengur þannig. Svona er móðir náttúra alltaf að betrumbæta sig - og akkúrat þegar maður hélt að hún gæti ekki toppað sig.

En við skulum ekki gleyma að móðir náttúra ber ábyrgð á tilvist Margeirs. Einhverstaðar eru.. sköllóttur api og kameldýr ennþá í sjokki, spyrjandi sig: hvað höfum við gert?


Voila
Miðvikudagur, 24. maí 2006

nyjaharid.jpg


Úff!
Miðvikudagur, 24. maí 2006

Ég var í glímu við Dodda. Hann svoleiðis grýtti mér í gólfið og lagðist ofaná mig og taldi uppá tíu og stóð svo upp sigri hrósandi og kallaði "ég vann!"

Ég átti þetta auðvitað skilið. Hann sagði mér að hann hefði verið hjá vini sínum í heimsókn og að þeir voru í glímu. Mig langaði að prófa. Hann byrjaði á að fella mig en ég stóð upp en þá réðist hann á mig og náði mér í gólfið. Ég er að jafna mig, búin að kasta upp og búa um brákaða öklann.

Ætti að leggja mig aðeins.


| anna | 18:16 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Brundillska
Miðvikudagur, 24. maí 2006

Þegar maður þjáist af brundillsku verður maður pirraður, uppstökkur og finnst allir sem brosa vera fávitar - most of the time. Ég fæ þetta í köstum. Þá sígur höfuðið örlítið nær herðunum eða ég færi herðarnar upp, veit ekki hvernig ég geri þetta nákvæmlega enda skiptir það ekki máli. Ég set upp illilegt augnarráð og hugsa um allt sem fer í taugarnar á mér.

Það fer til dæmis í taugarnar á mér hvað það er kalt og ég þoli það ekki. Það fer í taugarnar á mér að ég sé ekki með kokk á launum við að gefa mér að borða - pirrar mig sérstaklega mikið og það fer ósegjanlega í taugarnar á mér þegar klósettpappírinn er búinn þegar ég fer á klósettið.

Það pirrar mig líka hvað ég á mikið af klósettpappír og að ég er farin að geyma auka klósettpappír í skottinu á bílnum mínum. Ég skil reyndar ekki alveg hvernig það kemur til með að hjálpa þegar mig vantar hann.

Það pirrar mig þegar eitthvað virkar ekki.

Það pirrar mig stundum þegar eitthvað virkar.

Það pirrar mig að kaupa nýtt sjampó sem er lélegt - gerðist einmitt um daginn og ég er ennþá pirruð yfir því.

Hamingjusamt fólk pirrar mig sérstaklega þegar ég er illa haldin af brundillsku og fólk þarf eiginlega ekki einu sinni að vera hamingjusamt, það þarf bara að vera par. Má alveg vera óhamingjusamt par mín vegna, pirrar mig samt. Stundum þegar ég sit svona eins og púki á fjósbita með augun pírð og munninn í fýluskeifu hugsa ég um allt fólkið sem er að gera það öllum stundum og útum allt. Uppá borðum, ofaná heimilistækjum, útá svölum, í sófum, bílum, kjörbúðum.. tekur sér ekki einu sinni pásu til að borða.. og ég finn hvernig ég hata þetta fólk af áður óþekktum innileika. Ég óska þessu fólki kynsjúkdómum og dauða og svo kippist ég örlítið til og glotti viðbjóðsglotti á meðan ég sé þetta fólk fyrir mér veslast upp af flatlús og DEYJA HRYLLILEGUM DAUÐDAGA.

En svo rifjast skyndilega upp fyrir mér að það að vera einhleypur er mjög svipað því að vera giftur, svo ég læknast strax og get haldið áfram lífi mínu sæl og glöð með tilveruna.

Þar fyrir utan hef ég alltaf hann Margeir til kvelja þegar ég er mjög illa haldin.

Var að fá mér ferða rafgeymi.


| anna | 19:17 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Bað II
Miðvikudagur, 24. maí 2006

tasluribadi.jpg


Bað III
Fimmtudagur, 25. maí 2006

Ef hún er ekki komin inn nú þegar, þá þarftu bara að gera reload/refresh.

Í femme fatale fílíngnum.. þá hef ég skírt þessa mynd: "Would I lie to you".

Finnst það mjög viðeigandi fyrir þessa síðu - auk þess er ég hætt að vera dased and confused.

Í bili.

Look into my eyes.. would I lie to you baby..


| anna | 22:44 | permalink | comments (7) | send to facebook |
wahahahahaha
Fimmtudagur, 25. maí 2006

Ég var að ganga frá í eldhúsinu áðan þegar ég fékk hugmynd. Hafiði séð svipinn á dverg þegar ristavél er hent ofaní bað til hans?

Priceless.

Margeir skuldar mér brauðrist.


Just the way you are
Föstudagur, 26. maí 2006

Just the way you are mp3

Don't go changing, to try and please me
You never let me down before
And don't imagine you're too familiar
And I don't see you anymore

I wouldn't leave you in times of trouble
We never could have come this far
I took the good times, I'll take the bad times
I'll take you just the way you are

Don't go trying some new fashion
Don't change the color of your hair
You always have my unspoken passion
Although I might not seem to care

I don't want clever conversation
I never want to work that hard
I just want someone that I can talk to
I want you just the way you are.

I need to know that you will always be
The same old someone that I knew
What will it take till you believe in me
The way that I believe in you.

I said I love you - and that's forever
And this I promise from the heart
I couldn't love you any better
I love you just the way you are.

I don't want clever conversation
I never want to work that hard
I just want someone that I can talk to
I want you just the way you are.

Verð eiginlega að taka fram að þó ég virki stundum eins og fullkomin draumóramanneskja þá er ég mjög raunsæ. Ég veit alveg að sambönd eru vinna. Veit líka að lífið er ekki dans á rósum og ég ætlast ekki til þess.

Enough sentimental bullshit. Má ekki vera að þessu rugli, þarf að drífa mig að hitta fuglinn sem ég ætla að ná heimsyfirráðum með. Hann var að senda mér sms, ætlum að byrja á Færeyjum. Erum að spá í að flensa liðið bara. Lifur, held þú ættir að forða þér.

Mér er full alvara þegar ég segist vera raunsæ manneskja.

Mjög jarðbundin.


One of these days
Föstudagur, 26. maí 2006

Dagurinn í dag ætlar að verða one of these days, but in a good way.

Allt sem ég er búin að gera so far hefur gengið upp. Þar sem ég keyri eru græn ljós alla leið og allt sem ég bið um er gert hjá þeim sem ég er í viðskiptum við - strax.

Og Vodafone eiga skilið alveg sérstakt hrós. Sendi inn beiðni í morgun og ég var varla búin að henda einhverjum random fúkyrðum í Margeir þegar ég fékk svar. Búið að gera allt sem ég bað um. Ekki bara það. Um daginn græjuðu þeir símann minn þannig að "Og Vodafone" er hætt að standa stórum stöfum þvert yfir símann hjá mér. Nú er ekkert sem skyggir á nektarmyndina af Jude Law sem ég fann af netinu og sofna með þétt upp við brjóstið á mér á kvöldin þegar ég er búin að.. lesa andrésblöð.

Já. Það er ástæða fyrir því að Jude er farin til Siennu aftur. Ég sendi honum sms um daginn og sagði honum að mér fyndist við ekki eiga neitt sameiginlegt lengur, ég væri gjörsamlega að kafna í þessu sambandi, þyrfti mitt personal space og fyndist rétt að við hættum að hittast. Hann er brotinn maður - eins og við var að búast, en hún er sæt stelpa og hlýtur að geta tjaslað honum eitthvað saman.

Annars er Jude svo mikill rugludallur. Hann veit ekkert hvað hann vill.

Ég ætla samt ekkert að hætta að horfa á hann. Ekki alveg strax.

Kalli var að spá í hvað svipurinn sem ég er með á nýju myndinni efst til vinstri gæti þýtt. Ég veit alveg hvað ég var að hugsa.. en hvaða svipur er þetta?

Það verða veitt verðlaun fyrir rétt svar.


Hei Lifur..
Laugardagur, 27. maí 2006

..ég er eitthvað tense. Geturðu nuddað á mér axlirnar aðeins?


Mitt atkvæði
Laugardagur, 27. maí 2006

Ég fór snemma að kjósa í dag. Skrítið að fara einn að kjósa, ég hef aldrei gert það áður.

Sat hérna að vinna áðan þegar stór hlussu fluga flaug innum gluggan hjá mér.
Ég snéri mér við og sagði ákveðin "farðu út".

Hún fór strax.

Ég held að þær skilji íslensku.


| anna | 17:35 | permalink | comments (8) | send to facebook |
Glasses on.. glasses off
Sunnudagur, 28. maí 2006

Ég var að fatta soldið fyndið. Ég er með ofurhetjukomplex.

Eins og Súperman nota ég nota gleraugu til að fela mig á bakvið því ég á mér secret identity sem er anna.is.

Eins og Súperman.. þá held ég actually að það virki.

Kannski að við Súperman ættum ekkert að vera að fara í nein gáfnapróf, það gæti mögulega sent okkur í geðlægð.

Ég skrapp á kosningavöku Sjálfstæðisflokksins áðan. Stóð við sviðið þegar Villi mætti á svæðið og hrópaði "VILLI! VILLI! HETJAN MÍN! ÉG ELSKA Þ.."

Komst ekki lengra - var hent út.

Smá grín en mikið djöfull er ég ánægð með Villa.

Var vitni að alveg ótrúlega.. smooth pickuppi áðan. Maður rétt um fertugt dróst eftir gólfinu og að litlu borði þar sem tvær bráðhuggulegar konur voru að tala saman. Þar muldraði hann þvoglumæltur "mér finnst þið rosalega flottar".

Þeim fannst það æðislegt og þau fóru öll að tala saman.

Stuttu síðar, kannski eins og þrjátíu sekúntum fór annar maður að dragast eftir gólfinu, jafn fullur og hinn. Og skyndilega var allt í gangi.

Mér fannst þetta ferlega sætt. Kannski vegna þess að ég var áhorfandi. Ef þeir hefðu dregist eftir gólfinu að mér.. hefði mér hinsvegar ekki verið neitt sérlega skemmt. hehehe

Mér fannst áberandi hvað það vantar miklu fleiri karlmenn í heiminn sem nota rauð axlabönd.


Edrú
Sunnudagur, 28. maí 2006

Það er eitt sem mér finnst mjög þægilegt við að vera á rófukettinum og það er að ég má ekki drekka áfengi.

Þegar læknirinn sagði mér að ég mætti alls ekki drekka ofaní lyfið gaf ég ekkert útá það, svo hann ítrekaði það og ég sagði að það væri ekkert mál. Þá sagði hann að þetta væri eitt algengasta umkvörtunarefni þeirra sem fara á lyfið - að þeir mega ekki drekka á meðan þeir eru á því.

Mér finnst það hinsvegar kostur. Með þessu móti get ég farið í partí og engin reynir að troða ofaní mig áfengi. Hver kannast ekki við "come on marr, láttu ekki svona.. vertu hress!" Ég þarf ekki að drekka til að vera hress og það er til einfalt ráð til að losna við svona leiðindi. Mæta með kók og sítrónu í partíið og drekka kók með sítrónu útí allt kvöldið. Það dettur engum í hug að þú sért að drekka dry kók fyrst þú nenntir að setja sítrónu saman við.

Án gríns.

Sama gildir á veitingastöðum, sódavatn og sítróna lítur alveg eins út og gin og tonic. Seinna um kvöldið, þegar hinir eru orðnir vel slompaðir, lítur kranavatn og sítróna alveg eins út og gin og tonic - og kostar ekkert. Það sem þú græðir hinsvegar er að allir eru rólegir því þeir halda að allir séu að drekka. Hvað er með fólk sem getur ekki drukkið rólegt nema það sé sannfært um að allir aðrir séu líka að drekka? Er þetta hjarðdýra hegðun einhver? I don't get it.

Eftir því sem ég verð eldri finnst mér nefnilega leiðinlegra að drekka og ég nenni því ekki. Mér finnst þægilegra að vera á bíl, betra að vera algjörlega in control - sérstaklega síðan ég varð single og með úlfa allt í kringum mig.

Nú er ég þannig gerð að ég afþakka þegar bláókunnugir karlmenn bjóða mér í glas. Fyrir það fyrsta, þá þarf ég þess ekki - get keypt mér mín glös sjálf og í öðru lagi kæri ég mig ekki um það. Kannski vegna þess að ég hef ekki hitt rétta manninn sem býður - gæti verið. Mér finnst hórulegt að sjá konur biðja menn að bjóða sér í glas á börum. En segjum að ég myndi hitta rétta manninn og hann myndi bjóða mér í glas og mig langaði actually að þiggja það.

Ég má ekki drekka. Hvað segi ég ef hann spyr af hverju?

Það er nefnilega mjög algengt að fólk sem er edrú er stimplað alkóhólistar - on cue. Og ég er ekki alkóhólisti. Í gær var mér sagt að ég gæti alltaf sagt að ég væri á sýklalyfjum, því það vita allir að það má ekki drekka ofaní svoleiðis og þetta er víst vinsælt hjá ófrískum konum sem eru komnar stutt og ástandið er leyndó ennþá. (kók og sítróna virkar í þeim tilfellum líka).

Fyrir mína parta.. myndi ég aldrei segja á bar "nei ég má ekki drekka, ég er á sýklalyfjum". Ófrískar konur eiga nefnilega oftast mann. Single konur eiga ekki mann og hvað lækna sýklalyf?

Ég kæri mig heldur ekki um að segja "nei takk, ég er á lyfjum". Hljómar skerí í mínum eyrum.

Um daginn, þegar ég fór út að borða eftir ráðstefnuna, fórum við á bar. Maðurinn með augnarráðið hafði áhuga á að koma ofaní mig áfengi. Hann vissi náttúrlega ekki að ég er næstum tíu árum eldri en hann og með töluvert mikla reynslu í viðreynslu.

Ég tók ekki vel í að fá mér að drekka en hann gafst ekki upp og stakk uppá að við myndum öll fá okkur koctail kenndan við skemmtistað sem var starfræktur hér í eina tíð á sumrin í Reykjavík. Við vorum fjögur eftir í hófinu og Hugi varð hissa þegar ég sagði "Okay let's do it". Hann horfði á mig með áhyggjusvip og spurði mig hvort ég væri viss. Ég sagði jebb og hann fór á barinn fyrir okkur öll. Þegar hann gekk framhjá mér bað ég hann, svo lítið bar á, að hafa minn drykk "virgin".

Lifrin ánægð, bæði sú sem ég geymi inní líkamanum og sú sem ég er í fjarbúð með. Maðurinn með augnarráðið var ánægður og ég var ánægð því hann hætti að bögga mig með að ég ætti að fá mér í glas og samræðurnar gátu farið að snúast um eitthvað annað og skemmtilegra.

Seinna sagði Hugi mér að þessi sami maður hefði sagt honum að alltaf þegar hann heldur fyrirlestra byrjar hann á að skanna salinn til að leita að álitlegum konum. Hugi ljóstraði því upp að í þetta sinn hætti þessi tiltekni maður að skanna salinn þegar hann rak augun í mig og að honum hafi þótt mjög fyndið að ég skyldi svo koma með þeim út að borða um kvöldið.

Seinna um kvöldið pikkaði ég upp ákveðin merki frá þessum manni, merki sem segja mér að þessi maður er ekki fyrir mig. Rangir menn. Þeir spotta mig alveg um leið.

Það er ekkert skrítið að ég vil vera edrú þegar rangir menn sogast svona að mér og þrá ekkert heitara en að hella mig fulla og ef gjaldið sem ég þarf að borga fyrir að vera edrú er að vera stimpluð alkóhólisti.. well.. it's a small price to pay. Þetta eru ekki menn sem ég hef áhuga á hvort sem er.


8. sunnudagurinn af Roaccutan
Sunnudagur, 28. maí 2006

Ég er farin að finna fyrir þurrk inní nefinu núna en get ekki sagt að ég þjáist neitt sérstaklega.

lansinoh.jpgVarirnar á mér ennþá smá bólgnar en mér tekst alveg að halda varaþurrkinum niðri með því að vera dugleg að bera Lanshinoh á þær. Tip sem ég fékk frá henni Jóhönnu Ýr. Hún hefur ekki verið á svona lyfjum en sagði mér að hún væri oft með varaþurrk og þetta væri bara málið.

Hún var ekkert að plata.

Jújú.. þetta er ekki selt sem varasalvi.. en þetta er líklega einn besti varasalvi sem ég hef notað. Áður en karlmenn sem þjást af varaþurrki hlaupa útí apótek til að kaupa Lansinoh langar mig að deila með ykkur að þetta er smyrsl sem er ætlað konum sem eru með barn á brjósti - og hafa viðkvæmar geirvörtur.

Húðin á mér lagast með hverjum deginum og ég er farin að fara meira út meðal fólks. Ég er ekkert hrikalega þurr í framan, kemur mér eiginlega á óvart.

Já ég er orðin þurr á höndunum líka. Þarf að nota handaáburð mikið. Fyrir utan þetta er ég í góðum málum. Er ekki þunglynd eða lífsleið, enda er það sjaldgæf aukaverkun með þessu lyfi. Er bara all around hress. Kannski pínu þreytt, búin að vera mjög dugleg að vinna um helgina, skila af mér á morgun. Get samt ekki fundið útúr ákveðnu útlitsdæmi fyrir næsta verk. Sef á því í nótt.


| anna | 22:52 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Á leiðinni í bað
Sunnudagur, 28. maí 2006

Ég ákvað að fara í bað áðan.. en um leið og ég ætlaði actually að gera eitthvað í því fór ég.. af einhverjum alveg gjörsamlega óskiljanlegum ástæðum... að hugsa um sjálfssprottnar refsingar og aðallega hversu mikil hljóð fólk framleiðir þegar það stundar þær.

Þegar ég refsa mér, þá tek ég út mína refsingu án mikilla láta. Eða.. ég er kannski eins og.. já. Best að fara ekkert nánar útí það - en á skalanum 1-10 þá er ég kannski.. 2. Stundum.. ef ég elska mig mjög mikið og hef kannski ekki gert það lengi.. þá gæti það farið alveg uppí fimm, en ekki meira en það.

Allavega.. ég frétti af konu sem heldur bókstaflega vöku fyrir fólki í næstu herbergjum þegar hún leggur stund á sjálfselsku. Frétti þetta fyrir nokkrum dögum og síðan þá.. get ég ekki hætt að velta fyrir mér.. hvernig dót á hún eiginlega? Því ég á alveg frábært dót og samt fer ég aldrei uppí tíu eins og hefur gerst stundum þegar ég er með lífrænt.

Ætli hún elski sig kannski meira en ég elska mig? Er hún bara svona mikil óhemja?

Kannski ég ætti að kaupa bókina "hvernig elska á konu".

Hvað ætli síminn hjá henni sé?

Þetta kallar á rannsóknir.


Perfect ten
Mánudagur, 29. maí 2006

Í gærkvöldi fór ég í bað áður en ég fór að sofa. Í dag kvartar Hugi yfir sprungu í loftinu hjá sér og að austurveggurinn hafi rifnað af íbúðinni í heilu lagi.

Þetta er stórlega ýkt hjá Huga. Það er alveg einn fjórði eftir af veggnum, og rúmlega það.

Þegar ég fór í bað í gær ákvað ég að nú myndi ég komast uppí tíu. Ég skolaði baðið að innan, eins og ég geri alltaf, blandaði þægilega heitt vatn og lét renna í baðið. Bætti smá froðu ofaní. Kveikti á ilmkertum og flottu skraut seríunni sem ég keypti fyrir jólin. Það er saga á bakvið þessa skrautseríu, ég keypti hana sem svona auka-gjöf en svo urðu ákveðnir atburðir til þess að ég hætti snarlega við að gefa hana og kom henni fyrir inná baði. Mjög sniðugt því það kemur rosalega flattering birta af þessari seríu og mér finnst gaman að halda að ég líti alveg rosalega vel út þegar ég er í baði.

Ég setti rólega tónlist í gang og færði hátalarann inná bað. Þegar ég leit í kringum mig sá ég að þetta var fullkomið - og baðkarið alveg að fyllast af vatni blandað dásamlega ilmandi froðu. Ég stóð þarna í smá stund, teygði úr mér og undirbjó mig andlega fyrir verkefnið sem lá fyrir. Þegar ég var tilbúin, klæddi mig úr fötunum, tók spennurnar úr hárinu þannig að það féll niður á bak og svo steig ég varlega ofaní baðið.

Og það var dásamlegt. Ég lá í heitu vatninu, lygndi aftur augunum og fann hvernig ég slakaði á í öllum líkamanum.

Á baðbrúninni stóð sá sem hefur hlotið nafnið Jesús - enda er það nafn sem ég nota oft þegar ég á í samskiptum við hann - þó ég segi það bara á volume 2 -5.

Þegar ég var búin að liggja í baðinu í ca fimm mínútur teygði ég mig í rllo æ+sys ugolit yrys +o jih s' +rh gsto s' dltogs RYysþwjj9y w-' wppp9 o9pi9 ´w-' e5r 'r rt 5s'- dotfrs.

Byrjaði að jskrjs pb jbs' s r+h gpbjuprt, aftur og +s ,r'sm Ryys rt dbpms ,pmhp ns hr'broyl ,jkph hpyy, rólega frs,r ph yoæ nsls.

Við þetta jbs' drhot +pæo hpyy +o fsh. Hafði aldei dottið í hug að ´wefrvb rmfs rllrty æ+oly b+o romd hs,sm s' dðoæs yrytod. 5

Ekki séns að ég myndi láta fimm nægja svo dyimfi, rt nryts s' g+s d+rt nsts d+illiæs'o ph dær,,s Rddsto boyærudi. ,umfo +rh jsæfs r's jbs'. JÁ! yrytod rt dlr,,yoærhit ærolit ph h+p'it gutot d+sæoms jræf +rh barði +rh rt ds,y rllo bodd i, s' +rh ,umfo mrmms slóst s' dðoæs yrytod +o Rddi, æoyæi ærolksy-æbi, dr, rti +s ,stls'mi,. +p broy ,s'it sæftro +rh mrmmo +u,di RHst +rh yrl ,oh yoæ.

<ÆPTR, o,di, næsf+onæs es gumfo' dlr,,yoærh pt' dr, ,umfdsdy RHst ,s'it rt s' dltogs dbpms tihæ. go,,dy +rt rllo. ´SN ÞRDD SÐ ÆYLS M´RT ÞSÐ! JESÚS! <,+rt gommdy nryts s' jsgs s'romd ,roto yrcys rg +rh ´+s s' vpbrts sææy dr, hrt'ody STms +o ns'omi +o h´t. dr, bst rllo ,rtloærhts rm s'... jesús, s' +rh +slbr' s' gsts +o bro'ogrt' ph lsiðs bro'of+py. ,+rt gommdy s' trumfst sææhk-t dmoææf. ÆSMHST DYTSC!

JEEEEEEEEESÚÚÚÚÚS!

DYimfi, Rhst ,+rt æro'ody +o bommimmo +s jihds +rh i, jbs' s' b´to hr'broy s' hyrys dloiðy i, dystgdbryybsmhu ph gsto' s' bomms bo' royyjbs' sææy smm. +rh b´nrdyi jih,umfostmst ,+omst +o ns'o. s' rt dys'trumy!

TÍU.

TÍU.

TÍU.

TÍU.

phew.

Af þessu má sjá að það þarf ekki kanínu til að ná tíu, það þarf tíma, ásetning, reynslu og útsjónarsemi.

Læknirinn minn segir að ég fái kannski mátt í hægri höndina með haustinu en ég má búast við að fá röddina aftur þegar líður á vikuna. Baðherbergið mitt er í rúst, hluti austurveggjarins er horfinn, en það þurfti nú að laga hann hvort sem er svo það hlýtur að reddast.

Allt þetta - og ég náði að djúpnæra á mér hárið líka!


Gjöfin fundin
Mánudagur, 29. maí 2006

ringring.jpgÍ dag tókst mér loksins að finna gjöf til að gefa Gulla og Júlíu í brúðargjöf. Það þýðir að ég gef þeim þríþætta gjöf því í fyrramálið er maður að fara til London og í leiðinni ætlar hann að ná í hluta gjafarinnar fyrir mig sem var keypt í breskri verslun og situr þarna í kassa úti og bíður eftir að komast í mínar hendur svo ég geti pakkað því inn með slaufu. Hann er þvílíkt að redda mér því þessi verslun sendir ekki vörur til Íslands.

Ég var í bölvuðum vandræðum með hvað ég ætti að gefa þeim en svo mundi ég eftir svolitu sem mig er sjálfa búið að langa í síðan það varð fáanlegt - mjög eigulegur gripur svo ég keypti svoleiðis handa þeim. Ég reikna alltaf með að fólk sé að gifta sig "for life" og þessvegna vil ég gefa alvöru gjöf. Ég vil líka ekki gefa gjöf eins og pönnu eða einn fokdýrann disk eða eitt glas, mér finnst það mongo. Mig langar að gefa eitthvað sem.. sem fólk á lengi og helst alla ævi. Þau bjóða reyndar ekki uppá svoleiðis diska dæmi þar sem þau neituðu að vera með gjafalista en það eina sem þeim langar að fá er Kitchenaid vél. Sem var líka það eina sem mig langaði að fá í gjöf þegar ég gifti mig - en fékk ekki svo ég keypti mér hana bara sjálf og hef svo sannarlega aldrei séð eftir því.

Og ég fann gjöfina!

Loksins. Ég var hreinlega farin að missa svefn yfir þessu því mér er bara alls ekki sama hvað ég gef henni systur minni í gjöf þegar hún giftir sig.

Oh ég hlakka svo til að sjá þau og ég er búin að kaupa tissjú í gámavís því ég mun gráta úr mér augun þegar litla dúllu systir mín er orðin FRÚ.

Er í svo miklu stuði, búið að vera gaman hjá mér og krökkunum eftir vinnu í dag. Fórum í bíltúr og hlustuðum á Bobby Darin á milli þess sem við plönuðum óvissu-veiðiferðir í sumar.

Hlakka svo til. Er að fara að kaupa veiðigræjur um helgina..


Skilningur
Þriðjudagur, 30. maí 2006

Tobbi, Kalli og Þór hafa með skrifum sínum um að þeir skilji ekki konur fengið mig til að hugsa.

Ég held að ég þekki engan karlmann sem hefur ekki, einhvertíma, sagt að hann skilji ekki konur. Ég er kona. Ég skrifa á netið og ef þetta er satt sem þeir segja þá eru þeir að lesa óskiljanlegt bull þegar þeir lesa mig.

Samt er hægt að eiga við þá coherent samræður á kommentakerfinu.

Eru þeir að feika það? Konur feika fullnægingar, karlmenn feika samræður?

Is that it?

Getur verið að ég sé að skrifa hluti sem eru karlmönnum algjörlega framandi og þeir hafi ekki hugmynd um hvað ég er að tala most of the time? Eða fá þeir kannski innsýn inní þennan umtalaða reynsluheim kvenna sem engin veit neitt um?

Eða er þetta bara tómt kjaftæði allt saman því þeir skilja mig ágætlega?

Ef það er tilfellið - og þeir skilja mig - skilja þeir þá ekki allavega eina konu?

Ég held að karlmenn skilji konur alveg ágætlega en ég held líka að stundum, þegar við komum inn á þennan "reynsluheim kvenna" sem er karlmönnum framandi.. þá séu þeir lost. Þessi reynsluheimur er í raun ekkert merkilegur. Konur þekkja bara tilfinningar sínar betur en margir karlmenn og tilfinningar eru stór hluti af þessum reynsluheim. Þeir hafa tilfinningar líka. Þeim finnst bara ekkert gaman að tala um þær - en þeir þurfa líka ekkert að gera það. Þeir þurfa hinsvegar að vita að þeir hafa þær og læra að sýna þær á einhvern vitrænan hátt og málið er dautt.

Eftir því sem karlmenn eldast eykst pressan á að þeir læri að þekkja tilfinningar sínar vegna þess að þegar fólk eldist þá þroskast það og ef þeir vilja eiga séns í að ná sér í konu, sem er á svipuðum aldri og þeir sjálfir, og eignast með henni líf þurfa þeir að sýna fram á lágmarks þroska. Eftir því sem konan er yngri er gerð minni krafa um þetta ákveðna atriði. Þetta endar oft sem munstur hjá sumum karlmönnum. Þeir finna sér konu sem er tíu árum yngri en þeir, og þar með á svipuðu þroskaskeiði, eru með henni í tíu ár - eða þangað til hennar þroski hefur farið fram úr þeirra eigin og þá finna þeir sér aðra, tíu árum yngri en þá fyrri.

Endurtekið eftir þörfum og þroskaleysi.

Auðvitað er þetta ekki algilt. Sumt fólk þroskast hraðar en annað fólk en sumt fólk þroskast aldrei.

Karlmenn sem skilja ekkert í konum og þessum óhugnanlega tilfinningareynsluheim þeirra eru hreinlega bara grænir.

Óþroskaðir.

Sumir karlmenn virðast eingöngu hafa gaman að því að ræða mál sem "skipta máli". Hver á mestu peningana. Hver sagði hvað í síðasta fréttatíma og hver skoraði í landsleiknum. Mér finnst umdeilanlegt hversu miklu máli þessi mál skipta. Ég á ekki mestu peningana, þekki ekki þann sem á mestu peningana og það snertir mig ekkert hversu marga peninga hann á. Mér er skítsama hvað fólk segir í fréttatímum og nenni ekki að velta mér mikið uppúr slíkum dægurflugum - enda.. eru það oftast nákvæmlega dægurflugur sem lifa í korter og öllum er sama þegar þær deyja. Mér gæti hreinlega ekki verið meira sama um hver skorar mark, í hvaða leik og gegn hverjum. Því það skiptir mig engu máli. Það skiptir karlmenn líka engu máli í raun og veru - nema þá sem hafa big fat bet riding on the game.

Karlmenn eru ekkert sérstaklega hrifnir af því að ræða um þegar þeim líður illa eða þessháttar og hver þekkir ekki frasann um að það séu bara hommar sem tala um svona hluti.

Ókey, ekki tala. En hvað er svona erfitt að skilja?

Tökum dæmi.

Ég og Júlli stuð erum að deita og við erum búin að deita í fimm mánuði. Ég er sjúklega ástfangin af Júlla og ákveð að bjóða honum í mat. Júlli kemur hálftíma of seint. Ég er ekkert of ánægð en ákveð að segja ekkert því Júllí segir að hann hafi tafist í vinnunni sem diskótekari á Grund.

Ég býð Júlla aftur í mat og aftur kemur hann of seint og lætur mig og börnin bíða - nema ég nenni ekki að bíða eftir honum og við erum búin að borða þegar hann kemur. Honum finnst það svona.. hálf asnalegt.. en afsakar sig aftur með því að hann hafi verið seinn vegna áríðandi vinnu sinnar.

Ég ákveð að segja ekkert enda kæri ég mig ekki um að ræða þetta fyrir framan börnin mín. Ég sendi Júlla hinsvegar tölvupóst sem er svona:

Hæ Júlli.

Ég var að spá í hvort það væri enhver dagur sem hentaði frekar en annar þegar þú kemur í mat til okkar því mér finnst leiðinlegt þegar þú mætir ekki á réttum tíma. Börnin eru svöng og eiga ekki að þurfa að bíða í hálftíma eftir matnum og svo líður mér eins og ég sé ekkert rosalega ofarlega á forgangsröðinni þegar þú kemur ekki á réttum tíma og þar sem ég er mjög hrifin af þér finnst mér það sárt.

Ertu kannski ekki búinn að slíta þessu með Gunnu?

-Anna

--

Ef Júlli skilur ekki hvað ég er að segja í póstinum. Er hann..

a) Fæðingarhálfviti
b) Sljór
c) Ólæs

Ef Júlli kemur aftur seint næst þegar ég býð honum í mat, hvaða skilaboð er hann að senda mér?

a) Hann er dóni
b) Honum er sama þó ég verði sár
c) Ég skipti hann ekki það miklu máli

Sure. Ég veit alveg að ég er sek um að bregðast við á skrítinn hátt sem karlmenn skilja ekki - og stundum er ég ekkert að útskýra af hverju. Oft á tíðum er það einfaldlega vegna þess að það sem mér finnst eða það sem ég upplifði er ekki eitthvað sem mig langar að deila með þeim hreinskilnislega. Stundum vegna þess að það kemur þeim ekki við, stundum vegna þess að ég myndi bara særa þá. Í öllum tilfellum sem þetta gerist er um að ræða menn sem ég er ekki að fara að eyða ævinni með og sumt er betra ósagt.

En í þeim örfáu tilfellum sem mig hefur actually mögulega langar að eyða ævinni með einhverjum hef ég reynt að koma til skila hvernig mér líður, af hverju og hvað ég þarf.

Dauf eyru og áhugaleysi er það sem hefur mætt mér og ég er ekkert viss um að það sé vegna þess að þeir skilji ekki konur. Þessir karlmenn nenna ekki að leggja sig eftir því að láta öðrum líða vel - ekkert bara konum. Þeir uppskera líka nákvæmlega eins og þeir sá og fá í lokin.. ekkert - og eru alltaf jafn hissa.

En kannski þora þeir ekki að treysta á að ég sé að segja þeim satt. Kannski eru þeir hræddir við að ég hætti svo við allt saman - af því bara. Eins og einn karlmaður sagði við mig þegar ég var á stefnumóti "we have established you are a liar.. I just don't know if you have lied to me yet." Hann átti við síðuna mína og sá ekki muninn á því að skrifa á netið og tala við fólk face to face. Það sem mig langaði að segja við hann var "we have also established you are a player, I just don't know if you're toying with me yet."

Ég gerði það ekki vegna þess að ég vissi að það er veikur blettur þegar kemur að þessum ákveðna manni en sannleikurinn er sá að maður lýgur ekki um svona mál. Bæði myndi ég ekki græða neitt.. jú.. ég myndi mögulega ná að særa þann sem ég væri að ljúga að. En af hverju ætti ég að vilja gera það? Af einskærri mannvonsku?

Maður leikur sér ekki þannig að tilfinningum fólks. Maður bara gerir það ekki.

Ég miða að sjálfsögðu allt úr frá sjálfri mér og reikna með því að aðrar konur séu eins og ég og reyni að tala við mennina í lífi þeirra um hvernig þeim líður. Þegar maður er búin að tala x mikið og fær ekkert feedback hættir maður hinsvegar að nenna því.. og þá er ljóst hvert stefnir.

Stundum held ég að ég skilji karlmenn ágætlega og dags daglega á ég mjög góð samskipti við karlmenn allt í kringum mig. Reynslan hefur hinsvegar kennt mér, að daginn sem ég fer að sofa hjá þeim er dagurinn sem jákvæðum samskiptum af þeirra hálfu er lokið.

Finnst ykkur eitthvað skrítið að ég sé hætt því?

--

Eftirmáli.

Seinna kom í ljós að Júlli stuð var að stunda sveitt kynlíf með Gunnu í 3-B á Grund og þann dag var honum sparkað. Þau reka saman Stuð-ferðadiskótekið Gunna Júll og eiga saman tvo hamstra.


Heimilistækja-karma
Miðvikudagur, 31. maí 2006

Undanfarið hef ég verið að kaupa mér dót sem var á listanum yfir dót sem mig langaði að eiga en hafði ekki efni á að kaupa mér. Er nánast búin að tæma listann.

Keypti vöfflujárn um daginn, sem hefur verið notað mikið. Það virkaði. Keypti líka blender en hann virkaði ekki. Það var ekki hægt að slökkva á honum og nú, rúmri viku síðar, er búðin ekki búin að fá nýjan fyrir mig. Ég hringdi í dag og var sett "on hold". Þegar kona kom í símann eftir töluvert mikla bið og sagði "og þú varst að bíða eftir hvaða deild?" Ég þagði í smá stund þangað til hún sagði "halló?". Þá sagði ég "Ha? fyrirgefðu, ég sofnaði. Já, heimilistækjadeild."

Blenderinn verður kominn á föstudaginn. Aha.. trúi því þegar ég sé það.

Í gær fór ég og keypti tæki sem var neðarlega á listanum en er í raun bráðnauðsynlegt að eiga. Ég keypti mér bartskera. Ég hef reyndar ekki barta, en ég hef soldið annað.

Keypti mér sæmilega græju á þrjú þúsund og fimm hundruð kall og brosti alla leiðina heim. Þegar ég kom heim eldaði ég og græjaði ýmis mál og svo dró ég fram kassann með stjörnur í augunum. Oh.. hugsaði ég, hvað þetta kemur til með að auðvelda líf mitt. Loksins á ég svona galdratæki!

Ég opnaði kassann og þegar ég sá innihaldið fékk ég sjokk. Í kassanum var hleðslutæki og greiða.. en engin bartskeri.

Það fyrsta sem mér datt í hug var það sem öllum hefði dottið í hug - þetta var æðri máttur að segja mér að ég myndi á næstunni hitta alvöru frummann og hefði í raun ekkert við þetta tæki að gera. Pirraðist smá yfir því af hverju æðri máttur gat þá ekki sagt mér það í draumi eða í sms. Hefði sparað mér þessa peninga. Þar sem ég trúi ekki á æðri mátt en mig sjálfa bægði ég þessum raunsæu hugsunum frá mér og áttaði mig á því að ég var í djúpum skít. Hvernig átti ég að sýna frammá að kassinn var tómur þegar ég fór með hann útúr búðinni?

More important. Af hverju þurfti þetta að gerast þegar ég var að kaupa mér bartskera? Það vita allir til hvers konur nota bartskera - til að snoða börnin sín! Ég hefði verið alveg sátt við að labba með hann út og þurfa aldrei að minnast á það við nokkurn mann að ég ætti svona tæki. Nema á heimasíðunni minni auðvitað - sem allir geta lesið.

Andskotans vesen alltaf.

Jæja. Í dag hringdi ég í búðina og fékk að tala við yfirmann. Sagði honum að ég hefði keypt umræddan bartskera og þar sem kassinn var tómur væri ég búin að vera í áfallahjálp frá því ég opnaði hann.

Af því ég hef töluverða reynslu í svona slæmu heimilistækja-karma hef ég lært að það er mismunandi hversu fagnandi starfsmenn verslana taka svona óheillakrákum þegar þær leita til þeirra í vandræðum sínum. Oft vilja þeir senda tækið í viðgerð, sem mér finnst fáránlegt. Ef tækið virkar ekki þegar þú tekur það uppúr kassanum finnst mér að viðskiptavinurinn eigi að fá nýtt. Þú ert ekki að kaupa þér tæki til að byrja á að fara með það í viðgerð. Það er rugl, RUGL segi ég. Ég var mjög spennt að vita hvað myndi gerast þegar ég hafði ekki einu sinni tækið sem ég taldi mig hafa keypt!

Mér til furðu var maðurinn sem ég talaði við ekkert nema almennilegheitin, tók niður make og model á græjunni, símann hjá mér og sagðist myndi hringja í mig innan örfárra mínútna. Hann stóð við það og hringdi í mig stuttu seinna. Sagði mér að þetta ákveðna tæki væri ekki til og hann myndi bara láta mig fá dýrara og betra tæki í staðinn.

Nú hef ég heyrt allskonar tröllasögur af því að fólk fái allskonar miskabætur þegar það lendir í svona HRÆÐILEGUM lífsreynslum en það hefur aldrei komið fyrir mig - og ég var viss um að hann myndi henda í mig einhverju ónothæfu rusli sem engin vildi kaupa en þakkaði honum fyrir því ég var í raun fegin að sjá frammá að fá eitthvað fyrir peningana sem ég hafði borgað fyrir tóma kassann minn með fallegu myndinni utaná.

Little did I know.

Ég fór áðan og náði í nýju græjuna og skilaði tóma kassanum. Það sem ég fékk í staðinn er fokking deLÚX græja, straumlínulaga, silfruð og hreint út sagt bjútifúl. Það fylgja allskonar flottir hlutir með, greiða, skæri, eitthvað sem lítur út fyrir að vera barbie kústur, geisladiskur með leiðbeiningum um hvernig ég á að nota græjuna og taska undir allt dótið! Nú sit ég og horfi á nýja dótið mitt með aðdáun og stundum kveiki ég á herlegheitunum til að hlusta á fallega hljóðið sem þetta gefur frá sér. Hringdi í Júlíu systur líka og leyfði henni að heyra. Hún sagði að þetta væri "spennandi" - og ég trúi að hún sé að segja satt.

Áðan var hringt í mig úr þessari verslun og mér boðið starf sem sérstakur gallagripur - því ég virðist hafa náttúrulegt aðdráttarafl þegar kemur að gölluðum vörum - hvort sem það eru karlmenn eða heimilistæki. Var beðin um að koma einu sinni í mánuði, ganga um verslunina og velja öll þau tæki sem mig langar í. Þessum vörum verður svo kippt úr umferð. Búðirnar uppskera hamingjusamari viðskiptavini því þeir hætta að lenda á gölluðum vörum og þar sem þeir ætla að borga mér stórfé fyrir þessa þjónustu verð ég rík kona.

Allir græða.

Svona getur lífið í alvöru stundum verið eins og ævintýri. Ég hef myndað sterk tengsl við bartskerann minn - finn á mér að ég og hann munum lifa hamingjusöm til æviloka. Nú ætla ég hinsvegar.. að nota hann.



ravings í maí 2006
monthly archive

links
blogs
links - web