www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
the end
Laugardagur, 08. apríl 2006

Ég er búin að skrifa endirinn á sögunni "universe" og ég er ánægð með hann. Það verður þó einhver bið á að ég birti hann á síðunni þar sem sagan er ekki hálfnuð.

Það erfiðasta við að skrifa sögu svona "on the fly", er að ég þarf ég að vita nákvæmlega hvað gerist næst.. og þó ég hafi verið með endirinn þannig lagað tilbúin.. þá hefur hann tekið smá breytingum síðan ég fékk hugmyndina - og eiginlega vegna tilkomu sögunnar.

Fer ekki nánar útí það.

Ég er með beinagrind en veit ég ekki nákvæmlega hvað kemur til með að gerast í sögunni, er ennþá í "on the fly" mode, en með endirinn tilbúinn er ég öruggari með miðjuna og get leikið mér meira. Þetta er by far það lang skemmtilegasta sem ég hef á ævinni skrifað - enda eins og sumar betri færslur sem ég hef skrifað á anna.is, þá skrifar þetta sig að mestu leyti sjálft, og eftir að Lindablinda varð yfir editor - get ég einfaldlega ekki tapað.

Það hjálpar hvað ég er svakalega fljót að skrifa á lyklaborð eins og mér var bent á í gær - og skondið.. ég rétt skreið í vélritun á sínum tíma. Ég hef hinsvegar alltaf þvingað mig til að nota fingrasetningu á lyklaborðið - þó snigill hefði verið fljótari að koma frá sér hlutunum, og með því að skríða á milli hnappa - en eftir öll skrifin mín í gegnum tíðina efast ég ekki um að ég myndi ná vélritun with flying colors ef ég tæki próf í dag og sé ekki eftir að hafa haldið mig við fingrasetninguna.

Ég er í stuði. Búin að vera að hlusta á Bobby Darin syngja "call me irresponsible", "I like new york in june" og "beyond the sea". Ég fíla svona big band croonera og er búin að láta mig hlakka til að horfa á myndina "Beyond the sea" þar sem Kevin Spacey - hetjan mín - leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í biography mynd um the hearthrob Bobby Darin.

Ég hef ekki viljað leggja það á mig ennþá. Við skulum átta okkur á að Kevin Spacey er ímynd hins fullkomna karlmanns í mínum huga og ég er ekki viss um að ég geti höndlað að horfa á hann í þessu hlutverki. Bobby Darin var killer gæji. Mér finnst Bobby reyndar ljótur en Kevin Spacey.. getur ekki tapað.

You go ahead and call me.. irresponsible, I admit - I am.. unreliable - but it is undeniably true

That I'm irresponsibly mad.. for you


| anna | 18:04 |
comments

Hef ekkert með þetta að gera. All yours babe.. happy

Nr. 1 | posted by: Lindablinda | 8.04.2006 | 23:28:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web