Laugardagur, 15. apríl 2006
Hugi says: Heya
Anna says: hæhæ
Anna says: hvað segist?
Hugi says: alveg bara endalaus gleði og hamingja
Hugi says: og á efri hæðinni?
Anna says: bólurnar eru að dansa polka
Anna says: svo það hlýtur að vera gaman
Anna says: a.m.k. hjá þeim
Hugi says: harmonikkutónlistin væntanlega verst
Anna says: ég er að eipa
Anna says: glymur svoleiðis í hausnum á mér
Hugi says: hehe
Anna says: svo verður ein og ein svona.. over exited og springur yfir skjáinn hjá mér
Hugi says: þær eru náttúrulega bara bólur
Anna says: true
Anna says: maður verður að sýna umburðalyndi

Annars voru krakkarnir að koma heim frá ömmu sinni og Doddi sagði mér hróðugur frá því að amma hans klippti hann.
"-En bara vegna þess að hann klippti sig fyrst sjálfur", sagði frumburðurinn.
"DODDI!", hrópaði ég - því ég er búin að segja honum again and again að hann eigi ekki að klippa sig sjálfur.
Fór þá ekki litli púkinn að hlæja og sagði "ég gerði það fyrir löngu síðan!*** Þegar Jóhanna var í fermingarveislunni og þú í baði, sjáðu bara!" og svo náði hann í hárlokk sem hann hafði GEYMT SEM SÖNNUNARGAGN. "hahaha", hló Doddi og hélt á lokknum, "ég gerði þetta sjálfur og það sá það engin!"
"Jú, hún amma þín", svaraði ég.
"Nei. Hann var bara að monta sig af þessu við hana og þá lagaði hún aðeins", sagði frumburðurinn.
Þessi börn...
--
***Fyrir löngu síðan er í þessu tilfelli: í fyrradag.