sko..
Þriðjudagur, 18. apríl 2006
Af hverju kann ég engin orð til að lýsa skipum á ensku? Ha? Ég veit ekki hvað snýr upp eða niður á þessu drasli - er að hugsa um að SÖKKVA ÞESSU BARA til að sleppa við að lýsa þessum óhugnaði.
hehe
Þá vitiði hvað ég er að hugsa núna og af hverju ég er með heimasíður eins og "Glossary of nautical terms" opnar. Náttúrlega RUGL. Annars kann ég færri svona skipaorð á íslensku en ensku svo ég gæti verið í verri málum.
Ég kann skutur - en veit ekki alveg hvað það er. Annaðhvort fram eða afturendinn - eða hvorugt. Akkeri veit ég hvað er og ég veit að það er notað í skipum og í Europris. Káeta... bauja? Er það ekki eitthvað skipadót? Hvað heita hliðarnar á þessu? starboard og það þarna.. hull? Hvað er það?
Ég hef aldrei fundið hjá mér þörf áður fyrir að eiga langt og innihaldsríkt samtal við enskumælandi sjómann og er satt að segja að vona að hún líði fljótt hjá. Næst ætla ég að láta þau daga uppi á endurskoðunarskrifstofu og hringja í einhvern random endurskoðanda og segjast þurfa að hitta hann því ég sé að gera "research" fyrir bók sem ég er að skrifa - ég sé á lausu og eigi ofgnógt af bólum - sem hafa ágætis húmor og syngja mig í svefn á kvöldin með angurværum ljóðum þar sem þær biðjast vægðar því ég er að drepa þær allar hægt og rólega.
Vá hvað þetta hljómar spennandi - gjörsamlega sold ef ég fengi þetta símtal.
Ég þarf reyndar að gera nákvæmlega þetta þegar ég byrja að skrifa um hann King Accountant Calculus, ómótstæðilega vondukallaendurskoðandann minn í rauðu axlaböndunum sem ég elska meira en allt annað í heiminum.
Seinna.
Annars er þetta skip algjört aukaatriði og ég mun reyna að sleppa með sem fæstar lýsingar á því.
Það er greinilegt að ég hef í einhverju tölvupóst-hreingerningaræði, eytt út einhverjum af póstunum sem voru sendir til að fá aðgang að universe svæðinu. Ekki vera feimin að senda mér póst og krefjast réttlætis. Ég fullvissa ykkur um að mér verður refsað grimmilega fyrir þessa handvömm. Þið ættuð bara að vita hvað ég ætla að borða í kvöldmatinn. Það er sko ekkert hollt og kemur til með að kýtta rækilega í einhverjar æðar í útlimum sem detta síðar af!