Miðvikudagur, 12. apríl 2006
Ég kláraði allt það sem ég ætlaði að gera í gær, en það var eftirfarandi:
Útbúa útgáfu af simpsons cluedo spilinu sem ég keypti í London sem Doddi getur spilað líka.
Útbúa aðra útgáfu af restricted area síðunni.
Það kunna áræðanlega margir að spila cluedo og þeir vita að maður fær svona tékklista - því spilið gengur útá að finna morðingjann, hvað hann notaði til að murka lífið úr fórnarlambi sínu og hvar. Ég keypti þetta því mér ofbýður endalaust sjónvarpsgláp barna minna og vil að þau geri eitthvað uppbyggilegra við tíma sinn en að horfa á sjónvarp. Að fremja morð og leysa glæpinn hljómar mjög uppbyggilegt og þroskandi í mínum eyrum. Ég keypti Simpson útgáfuna þar sem börnin mín eru forfallnir Simpsons sjúklingar og kunna heilu þættina utanað.
Uppáhalds þátturinn þeirra er þegar Barney, the designated driver, týnir bílnum hans Homers svo fjölskyldan fer til NY til að bjarga bílnum.
Þetta er með betri þáttum sem ég hef séð.
Á tékklistanum er listi yfir allar persónur, öll morðvopn og alla mögulega morðstaði og leikurinn gengur útá að þú útilokar eitt og eitt atriði þangað til þú finnur út hver morðinginn er.
Doddi á ekki eins auðvelt með að lesa ensku og frumburðurinn. Því skannaði ég inn öll spilin með leikendum, morðvopnum og stöðum, minnkaði spilin verulega og bjó til nýjan tékklista með myndum sem Doddi getur notað.
Reyndar finnst frumburðinum þetta svo sniðugt að hún ætlar að nota mína útgáfu af tékklistanum líka og ég vildi klára að útbúa myndatékklistann vegna þess að ég lofaði börnunum mínum að spila mikið við þau um páskana.
Nú er ekkert því til fyrirstöðu.
Ég hef kynnst svo mörgu frábæru fólki í gegnum þessa síðu og alltaf bætast nýjir í hópinn sem láta vita af sér, núna síðast í gær. Einn af þeim sem hefur reynst mér alveg svakalega vel er Simmi og í gær sendi hann mér notendaskilmála sem hann bjó til fyrir mig, en með þá gat ég líka sett upp betri útgáfu af restricted síðunni í gærkvöldi! Kærar þakkir Simmi! Ég bætti þarna smá við skilmálana varðandi premature ejaculation, fannst það vanta.
En sumsé, ný restricted síða og tékklisti fyrir cluedo.
Þeir sem voru búnir að skrá sig sem áskrifendur að universe ættu að gera það aftur því ég er búin að flytja hana yfir á sér blogg og heill kafli úr henni mun ekki lengur birtast hér undir ravings heldur bara stuttir bútar úr hverjum hluta fyrir sig.
Annað. Einhverjir eru á tengingu sem úthlutar þeim nýrri IP tölu í hvert sinn sem þeir tengjast netinu sem veldur því að þó fólk skrái sig og komist inn, þá hættir það að komast inn næst þegar það tengist Internetinu.
Ef þú komst inn fyrst þegar þú skráðir þig en kemst ekki inn lengur, láttu mig vita. Það eru til ráð við því.
Í morgun komst ég svo að því að það er komið páskafrí á morgun. Eitthvað sem ég hafði ekki gert mér nokkra einustu grein fyrir.
Algjör snilld.