Miðvikudagur, 05. apríl 2006

2006 færslur komnar á anna.is.
Rak augun í þetta þegar ég var að fara að setja inn færslu og tilkynna að nú er hægt að gerast áskrifandi að kommentunum. Mér finnst þetta mjög sniðugur fítus. Ég er sjálf áskrifandi að kommentunum á anna.is, af því ég rek síðuna, og mér finnst mjög þægilegt að fá póst í hvert skipti sem einhver kommentar. Nú geti þið það líka.
Þetta virkar þannig að þú hakar í kassann við subscribe to this.. blablabla og þá færðu sendan póst sem inniheldur slóð sem þú þarft að smella á til að staðfesta áskriftina. Þetta er til þess að það geti ekki hver sem er skráð hvern sem er að þeim forspurðum. Þú færð svo sendan tölvupóst í hvert sinn sem einhver kommentar á færsluna sem þú ert áskrifandi að. Í hverjum tölvupósti er slóð sem þú getur fylgt til að hætta sem áskrifandi.
Og endilega látið mig vita ef eitthvað virkar ekki í þessu nýja dóti.
Það er hægt að gerast áskrifandi af rss feed-inu á síðunni og þessvegna setti ég ekki upp sérstakan stað til að bæta sér sem áskrifanda til að fá póst þegar ég birti nýjar færslur.
Ef einhver sér ástæðu til að ég setji svoleiðis upp má hann alveg láta mig vita, það er ekki mikið mál að græja það.
En 9610 komment.
Ég þakka bara fyrir mig!